Ný vikutíðindi - 22.12.1964, Blaðsíða 4
4
NÝ VIKUTÍÐINDI
MADE IN U.S.A.
„Camel stund
er ánægju stund!u
Kveikið í einni Camel og njótið
ánægjunnar af gæðatóbaki, mildu
og hreinræktuðu tóbaksbragði.
BEZTA TÓBAKIÐ GEFUR BEZTA REYKINN.
strax í dag!
Aðalskrifstofur Samvinnutrygginga og Líftryggingafélagsins Andvöku hafa nú ver-
ið fluttar úr Sambandshúsinu við Sölfhólsgötu í nýtt hús við Ármúla 3. Ennfrem-
ur hefur skrifstofa Sjódeildar verið flutt úr Bankastræti 7 á sama stað. Sam-
vinnutryggingar hafa nú í 18 ár leitazt við að veita fullkomna tryggingaþjónustu,
bæði með ýmsum nýjungum á sviði trygginga og með nútíma skrifstofutækni.
Með bættum húsakynnum eiga Samvinnutryggingar hægar meö en áður að
veita nýjum og gömlum viðskiptavinum betri þjónustu og bjóða þá velkomna í
Ármúla 3.
SAMVIIVNUTRYGGINGAR .Ajsrro-safcjKA.
Skuldakóngar —
(Framh. af bls. 8)
ar útgerðarmönnuin saman í
deildir, sem þegar allt kem-
ur til alls eru svo undir yfir-
stjóm aðila fiskkaupenda,
með andstæða hagsmuni við
útgerðina. Það er kátbros-
legt að koma á svona fundi.
Eftir að fyrirfram er búið
að tryggja endurkjör stjórn
ar og trúnaðarmanna, með
nauðsynlegum breytingum
til þess að viðhalda pólitískri
valdaaðstöðu, þá stendur ein
hver fundarmanna upp og
ber fram þá frómu ósli, að
Jón Ámason aljtni. frá Akra
nesi eða Davíð Ólafsson
fiskimálastjóri vilji sýna þá
einstöku vinsemd við sam-
töldn að stýra fundinum og
svo hefst leiksýningin, sem
endar ávallt á einn veg, með
þeim einstæðu frávikum, að
ef einhver er sérstaklega ó-
þægur og erfitt að útiloka
hann, þá er hann kosinn í
einhverja trúnaðarstöðu hjá
samtökunum, þar sem hann
fær svo engu ráðið og gefst
upp á að sprikla.
Gott dæmi um svona að-
ferð er þegar Tómas í
Grindavák var í forystu and-
stöðu vegna of lágs fisk-
verðs. Hann var kosinn í
stjórn S. 1. F. og sendur út
í lönd með sendimönnum í
fisksöluerindum, honum
haldnar dýrðlegar veizlur,
hvar sem hann kom, ásamt
hinum sendimönnunum, og
svo látinn hafa framsögu
um frásögn af ferðalaginu á
næsta aðalfundi þeirra sam-
taka. En fiskverðið var ekki
leiðrétt eða hækkað.
Munið jólasöfnun
MÆÐRASTYRKSNEFNDAR