Ný vikutíðindi - 04.06.1965, Page 5

Ný vikutíðindi - 04.06.1965, Page 5
NY VIKUTlÐINDI 5 iðnréttindin, ef þeir færu ekki að lögum, heldur en að gera veitingahúsin ábyrg, þvi varla er ætlazt til þess að veitingamennimir fram- fylgi fyrirmælmn með of- beldi, ef annað dugar ekki. Nei, þjónamir ættu að gæta hófs í þessum málum, en vanda hins vegar veiting- ar sínar betur en hingað til. Þeir eiga t. d. ekki að blanda sjússana í pukri, heldur eiga þeir að koma með flöskuna að borði gestsins, hella þar sjússunum í glösin og hafa blönduflöskuna á borðinu. Annað er ómenning, sem hvergi tíðkast. Þjónamir em að gera sig hlægilega í augum fólks, svo yfirgengilegt er bramboltið í þeim og kröfurnar fjarstæðu kenndar. Nú ættu þeir að snúa blaðinu við og gera kröfur til sín og bæta úr þeirsri ómenningu, sem tíðk- azt hefur í sjússaafgreisðlu til gesta. Það er eins með þjóna og aðrar stéttir, að þeir em því aðeins metnir og viðurkennd ir, að þeir sýni góða þjón- ustu og gæti hófs í kröfum sínum. —y- AÐVORUN um stöðvun atvinnureksturs vegna vanskila á SÖLUSKATTI. Samkvæmt kröfu tollstjórans í Reykjavík og heimild í lögum nr. 10, 22. marz 1960, verður atvinnurekstur þeirra fyrirtækja hér í umdæminu, sem enn skulda söluskatt I. ársfjórðungs 1965, svo og söluskatt eldri ára, stöðvaður, þar til þau hafa gert full skil á hinum vangreiddu gjöldmn ásamt áföllnum dráttarvöxtum og kostnaði. Þeir, sem vilja komast hjá stöðvun, verða að gera full skil nú þegar til tollstjóraskrifstofunnar, Araar- hvoli. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 17. maí 1965. Sigurjón Sigurðsson. — FJÖLSKYLDAN FERÐAST MEÐ — REKJAVIK — LEITH — KAUPMANNAHÖFN FARÞEGUM, sem ferðast fram og til baka með skipinu, gefst kostur á að búa um borð í erlendum höfnum án aukagreiðslu fyrir þau hlunnindi. FÁEINIR FARMIÐAR eru ennþá óseldir í ferðina 12. júní frá Reykja- vík, og einnig eru nokkur farþega- rúm, sem ekki hefur verið lofað í næstu ferðum þar á eftir. H.F. EIMSKIPAFÉLAG ISLANDS Ný Vikutíðindi BANNAÐ er að lána blaðið til af- lestrar í búð- um. ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ AUÐVITAÐ ERU FÁANLEGAR ALLAR GERÐIR AF FILMUM 1 R A P I D -MYNDAVÉLARNAR ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥ (-*(-***-**-**+**** ***¥-*-**-*-k-fc-*-********-*¥-*<-*-***-*-k-K-tc-fc-K-K-M VHE) ÖÐINSTORG — SlMI 20-4-90. Þytur eykur flug eign sína Flugskólinn Þytur var að fá þrjár nýjar flugvélar af Cessna-gerð. Allar eru þær eins hreyfils vélar, tvær þeirra eru f jögurra sæta, og má auk þess koma fyrir tveimur barnasætum í ann- arri, en sú þriðja er tveggja sæta. Þytur á von á fjórðu Cess na-vélinni, tveggja sæta, á næstunni, og þegar hún er komin, á Þytur 11 flugvél- ar, þar af tvær tveggja hreyfla. Þytur stundar nú leigu- flug um allt land, auk þess sem um tvö hundruð nem- endur eru við flugnám í skól anum. með litprentuðu sniða- örkinni og hámálrvæmu sniðunum! — Utbreidd-' asta tízkublað Evrópu! AGFA-rapid-filmur Fegurðarsamkeppnin 1965 LOKAÚRSLIT 0G KRYNINGARHATIÐ fer fram á HÓTEL SÖGU — SÚLNAS ALNUM fimmtudag 3. og föstudag 4. júní FIMMTUDAG: Kjömar verða: UNGFRU ISLAND 1965 Og UNGFRU REYKJAVIK 1965 MEÐAL SKEMMTIATRIÐA: Hljómsveit Ásgeirs Guðmundsson (Dumbo sextett frá Akranesi). Söngvari: Sigur- steinn Hákonarson. — Tízkusýning, nýjasta kvenfatatízkan frá kjólaverzluninm Elsu og dömubúðinni Laufið. — Háttar frá Hattaverzlun Soffíu Pálma. Stúlkur úr Tízkuskólanum Bankastræti 6 sýna. Sstjómandi Sigríður Gunnarsdóttir. — Danssýning: Camilla Hallgrímsson. — Gamanvísur og eftirhermur: Jón Gunnlaugs- son. — Dans til kl. 1 eftir miðnætti. FÖSTUDAGUR: KRYNINGARHATIÐ 0G TIZKUSYNING — Einnig verða hin sömu skemmtiatriði og fyrra kvöldið. — Rósa Einarsdóttir krýnir ungfrú ísland 1965 og ungfrú Reykjavík 1965. - Hljómsveit Ásgeirs Guðmundssonar (Dumbo sextett frá Akranesi skemmta til kl. 2 eftir miðnætti. Aðgöngumiða að báðum kvöldunum má panta í síma 20743 og Súlnasal og borðpantanir verða í Súlnasal Hótel Sögu miðvikudag, fimmtudag og föstudag milli klukkan 2 og 6 e. h.

x

Ný vikutíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.