Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 14.01.1974, Side 4

Ný vikutíðindi - 14.01.1974, Side 4
4 NÝ VIKUTÍÐINDI A MORGt YERÐt RÐII HÚN var dásamleg — væg- ast sagt dásamleg, stúlkan, sem sat andspænis mér í strætis- vagninum. Hárið var kastaníu- brúnt, augun sægræn og lítið, einbeittnislegt nefið þakið pínulitlum freknum. Ég gat ekki látið vera að brjóta heilann um, hvort hún ætti ponnastrákinn, sem sat hjá henni. Ekki þar fyrir, að ég hyggði á skyndiárás; ég var nefnilega trúlofaður, og átti að hitta mína útvöldu eftir tíu mínútur hjá Aðalleikhúsinu, þar sem hún var á æfingu. Hún var í dansflokknum. Strákponninn var líka reglu- lega skemmtilegur að sjá. Um mittið hafði hann hárautt skot- færabelti úr plastik, dinglandi skammbyssu í hulstri, og á brjóstinu bar hann stjörnu, sem á var letrað: „Yfirvald!“ Hann brosti skyndilega til mín, og það var einmitt þetta bros, sem kom mér til að segja: „Jæja, yfirvald. Hefur þú klófest nokkra glæpamenn í dag?‘“ „Nei, manni“, svaraði hann. „Vilt þú kannske vera fanginn minn?“ Hann stakk annarri hendinni niður í vasann og dró upp glampandi handjárn, furðuleg útlits. „Þú mátt ekki vera ókurteis við ókunna manninn, Johnny!“ Unga stúlkan leit ákveðin á hann; Og brosti síðan yndis- lega við mér. Og þetta bros var svo yndislegt, að mér hlýn- aði stórlega um hjartaræturn- ar. „Við skulum bara lofa hon- um að skemmta sér,“ sagði ég, og rétti hlýðinn báðar hend- urnar í áttina til hans. „Nú er ég fangi þinn — en aðeins stundarkorn. Ég verð rétt strax að fara úr vagninum.“ Það small í handjárnunum. „Röskur strákur,“ sagði ég og vogaði mér meira að segja að bæta við: „Eigið þér hann?“ „Já.“ svaraði hún. Óskiljan- lega leiddist mér að heyra þetta svar, en jafn óskiljanlega gladdist ég, þegar hún bætti við: „Ef þér eigið við, að ég eigi hann fyrir bróður.“ Síðan sátum við stundarkorn og horfðumst innilega í augu, og ég skammast mín fyrir að viðurkenna, að meðan á því stóð, gleymdist mér algerlega, að ég var á leiðinni til að tala við unnustuna mína. „Á morgun við sólarupprás verður þú hengdur,“ sagði drengurinn og rauf þannig skyndilega töfrana, sem um- luktu okkur. „Þá hef ég sannarlega eitt- hvað til að hlakka til,“ sagði ég, og bætti brosandi við: „En nú neyðist ég því miður til þess að taka þetta af höndun- um á mér. Skolli líta þau ann- ars eðlilega út. Ja, leikfanga- smiðirnir nú til dags láta ek’.i að sér hæða.“ „Þau eru ekta,“ sagði unga stúlkan. „Frændi hans, sem er lögregluþjónn, gaf honum þau. Vertu nú fljótur að finna lykil- inn, Johnny. Maðurinn er að fara.“ Strákurinn, sem hafði hafið tryllta leit í öllum vösum sín- um, varð skyndilega rauður eins og blóðappelsína í framan. Síðan sagði hann lágri rödd: „Ég er ekki með lykilinn. Hann er heima.“ „Hvað ertu að segja?“ Stúlk- an starði skelfingu lostin á hann. „Guð minn góður,“ stundi ég. Hún varð fyrst okkar til að ná sér. „Við verðum að stíga öll þrjú af, þegar vagninn stopp- ar næst,“ sagði hún ákveðin. „Síðan fáum við okkur bíl heim til mín. Við hljótum allt- af að ná í bíl.“ „Ég verð að vera mættur við Aðalleikhúsið eftir nokkrar mínútur,“ sagði ég örvænting- arfullur og renndi huganum til Ritu, sem stóð þar og beið eftir mér. Ef ég kæmi ekki stundvíslega, myndi hún fá taugaáfall. Ennþá hafði enginn karlmaður látið hana bíða. Ef ég hins vegar kæmi með hand- járnin um úlnliðina, myndi hún gera slíkt uppistand, að umferðin raskaðist. „Það er líklega bezt að gera eíhs og þér' segíð;" sagði ég niðurbrotinn. Steinþegjandi tók hún skræpóttan höfuðklútinn af sér og breiddi hann yfir handjárn- in, svo að þau hurfu að mestu. Strætisvagninn nam staðar og við fórum út. Við vorum stödd í lítilli hlið- argötu, sem lá niður að aðal- torginu, sem Aðalleikhúsið stóð við. „Bíðið þér hérna andartak," sagði hún, „meðan við skrepp- um og náum í leigubifreið.“ Með þessum orðum hurfu þau drengurinn, og ég stóð einn eftir með skræpóttan höf- uðklút yfir handjárnunum. Stórkostlegustu myndir úr næturlífi Parísarborgar þöktu klútinn. Skyndilega hrökk ég við. Lögregluþjónn kom labbandi í hægðum sínum í áttina til mín. f fátinu reyndi ég að hagræða höfuðklútnum sem allra bezt með þeim afleiðingum, að inn- an skamms lá hann á gang- stéttinni. Lögregluþjónninn nam staðar nokkur skref frá mér og glápti eins og þrumu lostinn á úlnliðina á mér. Fyrst á úlnliðina — síðan á mig sjálfan. Þá var það, að örvænt- ingin greip mig. í staðinn fyr- ir að skýra honum rólega frá öllum málavöxtum, greip ég til heimskulegasta ráðs, sem hugs- ast gat undir þessum kringum- stæðum — ég tók til fótanna eins og skrattinn sjálfur væri á hælunum á mér. Niður á hornið og síðan þvert yfir torg- ið í veg fyrri bifreiðar og spor- vagna. Þegar ég var kominn miðja vegu út á akbrautina, hrasaði ég og fleytti kerlingar á mag- IM HENGDUR anum langar leiðir eftir asfalt- inu. Ég fann til ógurlegs sárs- auka, asfaltið blautt og skít- ugt. Fallegi, ljósi frakkinn minn fékk líka að kenna á ferðalaginu, og spánýi hattur- inn minn fauk beina leið und- ir sporvagn. En ég veitti þessu alls enga athygli. Trylltur af skelfingu reyndi ég að komast aftur á fæturna, og það heppn- aðist mér, þegar ég sá, að lög- regluþjónninn var rétt á hæl- unum á mér. Og þá tók ég aldeilis til fótanna, móður og másandi og svitinn bogaði af andlitinu á mér. Allt í einu kom ég auga á Ritu. Ég var alveg búinn að steingleyma henni, en þarna stóð hún, eins og hún hafði lofað, rétt fyrir framan leik- húsið. Hún var eina bjargráð mitt! Hún gat sannað lögreglu- þjóninum, hver ég í rauninni var! Ég hljóp til hennar, og másandi og blásandi stundi ég upp: „Rita — þú — verður að hjálpa mér! Það er lögreglu- þjónn alveg á hælunum á mér.“ Mér er ómögulegt að lýsa augnaráðinu, sem hún sendi mér. Það var ekki einungis blandið skelfingu og undrun, heldur einnig fyrirlitningu og fjölmörgu öðru frábrugðið ást og meðaumkun. „Hvað er eiginlega að sjá þig, maður? Fötin þín eru öll útötuð — og hvar er hattur- inn þinn?“ hrópaði hún upp yfir sig. Þá fyrst kom hún auga á handjárnin. „Og — — og þú ert með handjárn! Segðu mér hvað hefur eiginlega kom- ið fyrir þig?“ „Ég get ekki útskýrt þetta núna,“ sagði ég í örvæntingu. „Þú átt aðeins að segja lög- regluþjóninum, hver ég er — segja honum, að ég sé alls eng- inn glæpamaður!“ í þessu kom lögregluþjónn- inn til okkar, og jafnskjótt safnaðist stór hópur í kringum okkur. „Unnusta mín getur sagt yð- ur, hver ég er,“ sagði ég við hann. „Eruð þér unnustan hans?“ spurði lögregluþjónninn og leit efablandinn á Ritu. Ég hafði búizt við að heyra hana játa spurningunni hátt og skýrt, en svarið hitti mig eins og hnefahögg í andlitið. Hún svaraði nefnilega: „Ég hef aldrei fyrr á ævi minni séð þennan mann.“ Með það fór hún. Á þeirri stundu varð mér ljóst, hvers konar kvenmaður Rita i rauninni var — konan, sem ég hafði elskað! Vonbrigðin og gremjan gerðu mig hreint og beint óð- an. f hendingskasti ruddi ég mér braut út úr mannþyrping- unni, sem safnazt hafði saman umhverfis okkur. Síðan tók ég aftur á sprett og hljóp eins og ég hefði aldrei tekið til fót- anna áður. En þeir voru líka á hælun- um á mér. Nú var það nefni- lega ekki aðeins ’ögregluþjónn- inn, sem elti mig, heldur allur hópurinn, og þegar mér varð litið sem snöggvast aftur fyrir mig, sá ég, að hann jókst í sífellu. „Stöðvið hann!“ hrópuðu all- ir í sefellu, og á næsta augna- bliki var ég orðinn að morð- ingja. Nú tóku þeir nefnilega að hrópa: „Stöðvið morðingjann!“ Ég beygði niður eftir lít- illi hliðargötu, og hróp mann- fjöldans bergmáluðu niður hana alla, svo að vegfarendur tóku brátt að veita för minni athygli. Stór, kraftalegur náungi brá fæti fyrir mig, svo að ég féll endilangur, og þegar ég reyndi að reisa mig á fætur, var sparkað svo hranalega í mig, að ég datt afur. Þá gaf ég upp alla von, því að þéttur fólks- veggur — þar á meðal þrír lögregluþjónar — umgirti mig á alla vegu. Ég hlýt sannarlega að hafa litið heldur óhrjálega út, þar sem ég lá, skítugur, löðrandi í svita og másandi. — og með bannsett hanjárnin auk þess um úlnliðina. „Það ætti að refsa þessum glæpamanni þegar í stað,“ heyrði ég einhvern segja. „Ójá, við skulum ekkert vera að draga það að láta hann fá það, sem hann á skil- ið,“ svaraði annar. „Lögreglan er ekkert nema meinleysið við þessa náunga. Henging upp á gamla móðinn er það eina, sem þessir karlar kunna að bera virðingu fyrir.“ Og svona héldu menn áfram að rausa, miskunnarlausir í kaldhæðni sinni. „Nú ertu ekki eins frakkur, karlinn," heyrði ég stóra, feita kvensu hreyta út úr sér. En þá varð nokkuð til að beina athygli mannfjöldans frá mér — sírenublístur yfir- gnægði allan annan hávaða, og stundarkorni síðar ruddi lög- reglubifreið sér braut gegnum mannþyrpinguna. Einhver hlýt- ur að hafa kvatt hana á vett- vang. Nokkrir stórir og sterkir lög- regluþjónar reistu mig á fætur og tróðu mér hranalega inn í bifreiðina við megn reiðiöskur fjöldans. Síðan var mér ekið á brott. Ég held, að ein mannvera geti varla verið meira niður- brotin en ég var, þegar komið var með mig á lögreglustöðina. Ég hafði gefið alla mótspyrnu á bátinn, hvað þá allar tilraun- ir til að afsaka mig, heldur lét ég draga mig viljalaust til slátrunarinnar. Og þá stóð hún allt í einu frammi fyrir mér — yndislega, unga stúlkan úr strætisvagnin- um. Ég hélt fyrst í stað, að ég sæi hillingar. En á því var eng- inn efi. Hún var þarna sjálf. Með tárin í augunum hljóp hún á eftir mér, greip utan um hlekkjaðar hendur mínar og sagði hrærði rödd: „Hvað hafa þeir eiginlega gert yður? Og allt er þetta mér að kenna, að ég skyldi nokkurn tíma yfirgefa yður.“ Síðan hrópaði hún til gamla lögregluþjónsins, sem hún hafði staðið hjá: „Frændi, frændi, þetta er hann . Guði sé lof!“ Sjálfsbjargarhvötin vaknaði með lífsvoninni, og þar með forvitnin. „Hvernig í ósköpunum eruð þér hingað komnar?" spurði ég undrandi. „Það er ósköp einfalt mál,“ svaraði hún. „Þér voruð farnir, þegar við Johnny komum með bífreiðina, og þá gruriaði 'mig strax, að eitthvað hefði komið fyrir yður, svo að ég .ók-sam— stundis hingað, þar sem frændi minn var á vakt, til þess að spyrja hann, hvað ég ætti til bragðs að taka — og þá kom- uð þér svona allt í einu! Það versta er, að það eru bara eng- ir lyklar hérna, sem ganga að handjárnunum. Þetta er svo gömul tegund. Þér neyðist þess vegna til að aka heim með okkur Johnny, svo að við get- um losað yður við þau.“ Nokkrum mínútum síðar sát- um við, ég og hún, einsömul í fangageymslu eins lögreglu- bílsins. Til allrar hamingju Framhald á bls. 7. _ » # um, hvort þú vilt giftast V js 1111“ mér, þá ættum við aö búa y LLLLI saman um tíma til reynslu, sagði hann. — Þá Hvernig líkar þér nýja getum viö komist að raun hljómsveitin hérna? —- Illa. Hún er svo léleg, að þegar einhver þjónanna missir iaúst bollabakkann í gólfið, fara 7 pör að dansa. um, hvort viö höfum gert skyssu og skilið vandræða- — Já, elskan, sagði hún. — Það væri kannske ekki svo vitlaust. En hvað eig- um við að gera við skyss- urnar? Anna: — Nýi kærastinn „Kæri Konráð frændi. Þakka þér fyrir flotta bruna- bílinn, sem þú gafst mér í jóla- gjöf. Það er skömm að því, að ég skuli ekki hsfa þakkað þér fyrr en núna. Ég á það líka minn er ákaflega íhalds- skilið að þú gleymir afmælis- samur. deginum mínum á þriðjudag- Birna: ________ Hvernig þá? inn kemur. Anna: — Hann er aldrei * með meira a ser en emn hundrað-kall, þegar við eig- — Fyrst þú ert ekki vissum stefnumót.

x

Ný vikutíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.