Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1911, Side 35

Sameiningin - 01.03.1911, Side 35
i7 Hann landsins biskup lengi var og leiðtogi þjóðarinnar. D. G. Monrad. Ditlev Gothard Monrad, biskup í Danmörk, er Vestr-lslending- um, og ef til vill íslendingum í heild sinni, helzt kunnr og kær af bókinni Úr hcimi bœnarinnar, sem kom út hér í Winnipeg í íslenzkri þýðing eftir ritst. blaös þessa árið 1888. Frábærlega vænt þykir mörgum um þá bók, enda mun hún réttilega talin ágætasta ritverk hans. I þessu júbíl-númeri „Sameiningarinnar" birtist nú loks mynd af þeim ágætismanni, og verða væntanlega allir lesendr blaSsins því fegnir. Monrad biskup andaSist árinu áSr en hin dýrmæta bók hans kom út í íslenzku þýðingunni. En er þýSing sú var nýlega út komin, sendi dóttir höfundarins, sem þá átti meS manni sínum fN. Fredriksen prófessorý heima í Bandaríkjum hér vestra, þýSanda mynd af föSur sínum meS mjög vinsamlegu bréfi. ÞaS er sú mynd, sem nú er lögS fram fyrir lesendr vora í þessu blaöi. Stutt ágrip af æfisögu Monrads stendr í „Sam.“, 2. ári, Maí- blaSinu frá 1887. Tveim mánuSum áSr hafSi hann látizt — 28. Marz '87, en fœddr var hann 1811—24. Nóv. Prestvígör 1846. Dengi mjög mikiS viö stjórnmál Danmerkr riSinn. AnnaS veifiS frá 1848 í ráðaneyti konungs, enda aöal- höfundr grundvallariaganna dönsku, en öSru hvoru talinn óvinr stjórnarinnar og föðurlands síns. Úr biskupstööu yfir Lálandi og Falstri, sem hann komst í 1849, var honum vikiö áriS 1854. HafSi forustu stjórnarinnar á hendi þá er ófriSrinn viS Þýzkaland brauzt út 1863, og var honum kennt um ófarir Danmerkr þá. Dvaldi um hríö þar á eftir í Nýja Sjálandi í Ástralíu. Kom svo aftr heim 1869 og gjörðist aftr prestr. Frá 1871 aS nýju biskup á sama staS og fyrr, og var í þeirri stöðu til dauðadags. Um lát þeirra SKREFSRUDS, hins víSfræga norska kristniboSa í Santalistan á Indlandi, og dr. KORENS, forseta Norsku synódunnar hér í Vestrheimi, var getiS í Janúar-blaSi „Sam.“, og um leiS nokkur helztu atriði úr æfisögum beirra. Nú flytr blaS vort myndir af þeim báðum, en einnig af dr. STUB, vini vorurn, sem sókti oss heim á júbíl-þinginu síðastliSiS sumar og minntist þá svo vel viS kirkjufélagiS islenzka. Þessi mynd af honum sýnir hann einsog hann er nú; hin í Desember-blaSinu sýnir hann einsog hann var fyrir mörgum árum. Dr. Stub hefir nú aS fullu og öllu tekiS viS formennsku í kirkjufélagi því hinu volduga, sem hann svo lengi og vel hefir þjónaS. Sama heiörs nýtr hann heima í Norvegi einsog meðal landa sinna og annarra lúterskra manna hér í álfunni.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.