Sameiningin - 01.04.1943, Side 17
63
Aimanak Ólafs S. Thorgeirssonar
fyrir árið 1943
Úigefendur Thorgeirsson Company, Winnipeg, 49. ár.
Þetta merka, þarfa og vinsæla rit er á næsta ári búið
að fullenda hálfrar aldar sögu. Verður þá fjórða ritið meðal
Vestur-fslendinga, sem nær svo háum aldri. Eins og kunn-
ugt er hafa Sameiningin og vikublöðin Heimskringla og
Lögberg fyrir nokkrum árum komist á síðari hluta fvrstu
aldar í sögu sinni. Alt of fáir gera sér grein fyrir því hvílíkt
þrekvirki það er að halda slíkum menningarritum við líði
í jafn fámennum hópi og hér er um að ræða, með sífelt
vaxandi tölu þeirra er ekki láta sig varða útkomu þeirra
eða veita þeim stuðning. Þeim mun meiri ástæða fyrir þá
er þetta kunna að meta, að sýna það með óskiftum stuðn-
ing og áhuga. Almanakið á þar réttmæta kröfu.
Ritið flytur að þessu sinni auk tímatalsins áframhald
á safni til Landnámssögu íslendinga í Vesturheimi i tveim-
ur flokkum, ritgerðir um einstaklinga, eitt kvæði, skrá yfir
helztu viðburði meðal íslendinga í Vesturheimi, og síðast
Mannalát. Er það meir en lítil greinargerð á menningar-
sögu hins litla íslenzka þjóðarbrots, sem komið hefir í
almanakinu frá byrjun. Enda hafa ágætir menn staðið að
útgáfunni. Ólafur S. Thorgeirsson sýndi glöggva sjón á
möguleikum og þörfum þegar hann lagði út í fyrirtækið
á eigin ábyrgð og kom því á fastan rekspöl. En auk þess
mikla er hann sjálfur lagði til af áhuga og dugnaði, hafði
hann lag á því að fá í lið með sér hæfustu menn. Kunnugt
er um þann verðmæta skerf er kom frá séra Friðrik J.
Bergmann. Allmargir aðrir af ritfærustu mönnum vorum
hafa þar einnig átt hlut að máli. Nú hafa synir Ólafs er
með ræktarsemi halda áfram fyrirtæki föður síns, borið
gæfu til að fá Dr. Richard Beck til að annast ritstjórn,
þó þess sé ekki beint getið. Skiftir það fádæmum hve miklu
sá maður getur afka|tað af ritverkum, auk kennarastarfs
og víðtækrar félagslegrar starfsemi. Hefir Almanakið grætt
á hans umsjá. í þetta sinn leggur hann til all-ítarlega rit-
gerð um prófessor Sveinbjörn Johnson og aðra styttri um
Bjarna Lyngholt. Myndir fylgja, en því miður hefir prent-
un á mynd Sveinbjörns mishepnast. Jón J. Bíldfell ritar