Nýi tíminn


Nýi tíminn - 19.02.1948, Blaðsíða 5

Nýi tíminn - 19.02.1948, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 19; febrúar 1948 5 NÝI TÍMINN HBMSVB I STUTTU B9ALI Frá síðustu sýningu Nínu Tryggvadóttur í New York. asyn- / Telias* Vfðskiptanefiid eisiskis tsfHI kysma Fyrir skömmu heiðraði þckkt iistastotnun, „The New Art Circle“ í New York, Nmu Tryggvadóttur méiara með því að bjóða henni afi haida sýn- ingu á sínum vegum. Tíðindamaður Þjóðv. hitti ^ listakonuna að máli um daginn _og bar þá margt á góma; ,,Er ekki ánægjulegt að starfa aftur á gaiiiia Fróni? Finnst yður ekki Esjan falleg ?'‘ ,,Því miður hef ég ekki getað unnið mikið siðan ég kom heim vegna húsnæðisleysis.; Það er eiginlega merkiiegt hvað við Is- lendingar erum að verða stór þjóð — okkur tekst a!ls ekki að vera nógu fljótir að byggja, til * þess að allir geti haft þak yfir höfuðið! Mín eina von er að síldin bjargi þessu öllu við, enda hefur hún aldrei svikio okk- ur, eða að minnsta kosti ekki viljandi. Hvað Esjuna snertir, þá held ég að það sé erfitt fyrir húsnæðislaust fólk að hafa þá réttu tilfinningu fyrir henni.“ „Haldið þér að síldin hafi á- . hrif á listina?" „Það liggur í augum uppi að síldin hefur geysilega mikil á- hrif á Ustina hér á landi — en því miður lield ég ekki að iistin liafi nein áhrif á síldiná!" „Finnst yður íslenzk málara- list þjóðleg?“ „Meinið þéi', hvort það séu einhver einkenni í íslenzkri list, sem ekki eru til annarsstaðar ?“ / „Já, það er eimnitt það sem ég á við.“ „Eg hef orðið vör við það hjá ýmsum, að þeir álíti það þjóo- lega list að mála mynd af Heklugosi eða einliverju þess háttar. — Eftir því ætti það að vera óþjóðlegt að mála mynd af Maríu mey af því hún var ekki íslenzk bóndadóttir eða að. mála gítar af því hann var ekki fundinn upp á íslandi — að mínu áliti er list aldrei þjóðleg, heldur einungis persónuleg!" „Hvar álítið þér að íslenzk málaralist standi, borið saman víð umheiminn ?“ „Því get ég ekki svarað, þar sem ég þekki ekki nútimalist meirihluta mannkynsins, það er að segja Indverja og Kínverja". „Finnst yður það skipta svo miklu máli að þekkja þeirra líst?“ „Já, í dag er það tímabært að taka meirihluta mannkynsins með í reikninginn11. „Já, rétt er nú það — og skulum við nú ekki ræða þetta frekar, heldur snúa okkur að yður sjálfri — það er slæmt að heyra að íslenzkir listamenn skuli vera á verðgangi í hinu unga íslenzka lýðveldi." „Já, vissulega er það slæmt i hvaða þjóðfélagi sem er, og ekki sízt hér hjá okkur, þar sem vitað er að okkar lýðveldi er byggt einmitt á okkar fornu ’ist, og hlýtur hún því alltaf að veroa okkar sterkasta land- vörn“. „Vel á minnzt; landvörn, haf- ið þér ekki einmitt fengið boð frá New York um að halda sýn- ingu þar?“ „Jú, fyrir íjórum mánuðum fékk ég boð frá „New Art Circle“ í New York, um að koma og lialda þar sýningu á þelrra vegum í byrjun febrúar." „Það er skemmtilegt og í rauninni stórkostlegt að miilj- óna þjóð skuli hafa áhuga á verkum listamanna okkar fá- mennu þjóðar. — Svo þér eruð þá á förum — hvenær farið þér ?“ „Eins og ég hefi áður sagt, var mér boðið að háfa sýning- una í byrjun febrúar, og þess var jafnframt óskað að ég vrði sjálf viðstödd meðrui á henni stæði. Eg sótti því um gjald- eyri (800 dollara) til fararinn- ar, en fékk neitun, og virðist þetta þar með strandað. Lifi ís- ienzka lýðveldið“. Frjáfsífíréi Framhald af 1. síðu. greinum: Hlaup: 100 rn, 200 m„ 400, 800, 1500, 5000 m„ 110 m. grindhlaup, 4x100 m. boðhlaup og 1000 m. boohlaup. Stökk: hástökk, langstökk og stangar stökk. Köst: kúluvarp, kringlu- kast og spjótkast. Hvor þjóð sendir 2 keppendur í hverri grein. Þetta er fyrsta millilanda- keppnin í frjálsum íþróttum, sem íslendingar heyja, en FRÍ hefur hug á að slíkar keppnir verði háðar á hverju ári, ýmist hér á landi eða erlendis. LGPHn! i siisiar Mikill vafi ér talinn á því, að einn bezti frjálsíþróttamað- ur landsins nú, Finnbjörn Þor- valdsson úr ÍR geti keppt í sumar, vegna-gamatla meiðsla sem tekið hafa sig upp áð ilýju. Mega frjáisiþrótíimar illa við því ao missa svo góðan liðs- mann, ekki síst í millilanda- keppni. Stjórn FRÍ skipa: Konráð Císlason, Jóhann Bernhard, Guðmunduj’ Sigurjónsson, allir í Reykjavík, Lárus Halldórsson, Bróarlándi ög Oiiver Steinn, UTANRÍKISRÁÐUNEYTI Sov- étríkjanna segir um skjöl þau varðandi skipti Þýzka- lands og Sovétríkjanna í fyrstu árum styrjaldarinnar er utanríkisráðuneyti Banda- ríkjanna birti nýlega, að þa: séu tilraun til að falsa ganj: sögunnar. Segir utanríkis ráðuneytið, að Bandaríkja- stjórn hafi birt þessi óstað- festu nazistaplögg í þeim til- gangi einum að reyna að skaða Sovétríkin í augum heimsins. Minnir ráðuneytið á það, að þegar 1945 hafi það stungið upp á því við brezku stjórnina að þær skipuðu sameiginlega sér- fræðinganefnd til að rann- saka skjöl, er herir beggja tóku herfangi í Þýzkalandi. Brezka stjórnin hafnaði þessari málaleitun. Sömu- leiðis svæfðu fulltrúar vest- urveldanna í herr.ámsstjórn- inni í Berlin tillögu um að skjalasöfn á hemámssvæði eins hemámsveldis skyldu opnuð sérfræðingum hinna. í yfiriýsingunni segir, að þar sem stjórnir Bretlands og Frakklands hafi verið með í ráðum um birtingu hinna bandarísku skjala, tclji Sov- étrikin sig hafa óbundnar hendur til að birta skjöl, er féllu í hendur sovéthersins i Þýzkalandi og sann:i stuðn- ing vesturveldanna við stríðs undirbúning Hitlers. BANDARÍSKA leynilögreglan B.B.I., sem hinn illræmdi afturhaldsseggur J. Edgar Hoover veitir forstöðu, til- kynnti 10. þ. m„ að John Williamson, verkalýðsmála- - ritari Kommúnistaflokks Bandaríkjanna hefði verið handtekinn. Williamson er ekki salcaður um neitt afbrot en handtekinn aðeins vegna stjórnmálaskoðana sinna. Hann er fæddur í Skotlandi, og hefur F. B. I. tilkynnt, að hann verði gerður útlægur úr Bandaríkjimum. VERÐFALL heldur áfram á kauphöllum í Bandaríkjun- um og hefur nú breiðst til annarra auðvaldslanda. Er nú mjög um það rætt, hvort ný kreppa sé að slceila yfir auðváldslöndin. Á kornkaup- hoiiinni í Chieago féll verð á fléstum komtegundum eins mikið og lög leyfa frekast sjötta daginn 1 röð. Baðmull féll stórlega i verði í New York og sömuleiðis hlutabréf á kauphölliimi. Almennt verðfall varð á hlutabréfum á kauphöllinni í Sidney í Ástralíu 11. þ. m. Á kaup- höllinni i Kaupmannahöfn lækkuðu hlutabréf í iðn- og útgerðarfyrirtækjum í verði. SENDH-IERRAR Sovétrikjanna í París, London og Washing- ton afhentu 14. þ. m. líkis- stjórnum Frakklands, Bret- lands og Bandaríkjanna ein- dregin mótmæli gegn hinum fyrirhugaða fundi, er vestur- veldin þrjú ætia að halda á næstunni og gert er ráð fyrir að gerbreyti stjórnskipun Vestur-Þýzkalands. Segir í mótmælum sovétstjórnarmn- ar, að fyrirætlanir hinna þriggja, vestrænu hernáms- rikja brjóti í bág við Pots- damsáttmálann, þvi þar hafi . verið lögð á bað áherzla að allar ákvarðanir varðandi breytingar á stjórnarfyrir- komulagi í hinu hernúmda Þýzkalandi skuli gerðar af öllum fjóium hernámsríkj- unum í sameiningu. Lýsir sovétstjórnni júir þvi að hím telji sig aigerlega ó- bimdna af samþykktúm þeim er fundurinn kunni að gera. í SKÝRSLU, sem Tító mar- skálkur gaf nýlega um fyrsta ár júgóslavnesku fimrn ára áætlunarinnar skýrði hann frá að fram- leiðslan hefði verið 106,6 % af áætlunarmagni á fyrstu ellefu mánuðum siðastliðins árs. Bráðabirgðatölur fjTir desember sýna, að fram- leiðslan fór þá einnig fram úr áætluii. Tító skýrði frá því, að meðalíaun hefðu hækkað um 21% á árinu. Stcfnaðir vo.ru 1500 alþýðu- ckólar sl. ár. Yfir em milijón karla og kvenna dvaldi á heilsuhælum og baðstöðum í sumarleyfi sínu og yfir hálf önnur milljón félck orlof með fullu kaupi. MEIR en þrír fjórðu af öllum kolanámum Belgiu eru nú stöðvaðar af verkfalli, þrátt fvrir það þó rikisstjórn-sósí- aldemókratans Spaak beiti verkfallsmenn hinum mestu fantabrögðum. Herlið hefur verið látið taica á vald sitt rafmagnsstöðvar, sem verk- fall var við. Innanríkisráð- herrann hefur lýst vfir að verkföllin séu póiitísk og gerð að undirlagi kommún- ista! MARKOS, foringi gríska lýð- ræðishersins og forsætisráð- herra stjórnar Frjálsra Grikkja hefur sagt í útvarps- ræou, að skæruliðasveitir Lýðræðishersins ráði nú .yfir 70% af flatarmáli Grikk- - lands. Yfirráð Aþenustjóm- armnar séu aðeins örugg í stærstu borgunum. SOVÉTSTJÓRNIN hefur til- kynnt ítalska sendiherranum i Moskva að hún 3é því fylgj- andi, að ítalir fái umboðs- stjórn yfir fymverandi ný- lendum sinuin í Afríltu, imz þær teljast fullfærar tiL sjálfstjómar. j

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.