Nýi tíminn


Nýi tíminn - 23.09.1948, Page 2

Nýi tíminn - 23.09.1948, Page 2
2 N Ý I T 1 > 'i C N N Pimmtudagur 23. sept. 1948v Trúlega hefur fleirum farið svipað og mér, að erindi Áskels Löve, Stökkbreytingar við. Hekluelda, hafi verið þeim í þyngra lagi til fullkomins skiln- ings, og á það einkum við um síðari hlutann. En um merka hluti fjallaði það allt, og fyrri hlutinn var mikið líkur höfundi sínum og opnaði stórar og skáldlegár sýnir útyfir víðátt- ur geimsins og innyfir smæstu deili hans. Gunnar Benediktsson talaði um daginn og veginn. Og ég sem óttaðist hann hefði fallið i við- ur'eign sinni við „liermdarverka menn kommúnista“ á Malakka skaga. Gott var, að svo skyldi ekki reynast. Fáir menn, sein koma í útvarpið, eru eins gegn- greindir (það er raunar ekki mjög sterkt orð) og þessi mað- ur og það er útilokað, að hljóð misheppnaðra og ógáfulegra brandara komi úr horni ham. Svo var og í þetta sinn. Erindi Hannesar Jónssonar um verkalýðsfélög í Bandaríkj- unum var laglega flutt og ekki óþokkalega samið. Hins vegar virtist ljóst, að fyrirlesarina bæri tiltölulega takmarkað skyti á eðli verkalýðs og stéttabar- áttunnar, og er óvíst það borgi sig að tala mjög hátt um verka- lýðsmál, þegar svo stendur á fyr ir manni. Eg hef t. d. varla öðru sinni heyrt jafnalþýðu flokkslegan hreim í máli manns og þegar félagsfræðingurinn vai að ’ft'sa velþóknun sinni á gætni og hófsemi bandariskra verkalýðsleiðtoga, bæði um stundarkröfur og stefnumið fé laga sinna. • Eins og ævinlega i útlanda- þáttum sínum endurflutti Axel Thorsteinsson lestra úr brezka útvarpinu, að þessu sinni brot úr tveimur. Var sá fyrri venju legt markleysuslúður fyrir auð- valdskerlingar, hinn síðari ferða þáttur frá Júgóslavíu — og var það fögur lýsing. Var auðheyrt, að Axel er andvígur Kominform í deilu þess við Tító, og því var þetta lof um stjórnarfram- kvæmdir hans lesið, og skal það þakkað af hlutlausum undirrit- uðum.^Hins vegar væri fróðlegt, ef hr. Thorsteinsson vildi lesa okkur svípaðar frásögur frá öðrum Austurevrópulöndum, þar sem ekki minni framfarir hafa orðið. En kannski flytur B. B. C. ekki hrós um þessi lönd að sinni — eða er það ? Erindi Þórodds Guðmundsson ar í dagskrá Kvenréttindafélags fslands var að ýmsu leyti greind arlegt, að öðru leyti ekki. Og það var nokkur raun að hlusta á það sökum yfirgengilegrar mælgi og misskilins málskrúðs af sama tagi og rómantískir unglingar tiðka í gagnfræða- Framiiald á 7. síðu. Bandaríkjaliðið hefur gert Kef lavíkurf tugyöllinn a gróðrarstiu smvgls og hverskonar spillingar me ollgæzlan á veliinum kreíst þess að stöðvaðui sé straumur „dollarakaupmanna og annarra smygiara til KeflavíkurHugvallarms Hneykslismálin í sambandi við framkvæmd Keflavíkursamn ingsins eru mörg og ljót. Hvað eftir annað hefur verið sýnt fram á í blöðum sósíalista og á Alþingi að Bandaríkjamenn nota samninginn sem yfirvarp til hinna freklegustu lögbr )ta. Ösvífni þeirra og yfirgangur við íslenzka verkamenn þar suð- ur frá er alkunnur. En með allar umkvartanir á hendur þessara útlendinga sem vaða uppi á íslenzkri grund eins og nokkurs konar yfirþjóð, fer alltaf eins. Þær stranda á ís- lenzka dómsmálaráðherranum, Bjarna Benediktssyni, og kem- ur þar i Ijós að ekki var að ó- fyrirsynju hróflað upp þeirri bandarísku leppstjórn er'Stefán Jóh. Stefánsson var látinn mynda, þó til þess þyrfti að ganga beint gegn lýðræðisregl- um um stjórnarmyndun. Þegar þingmenn sósíalista skýrðu frá lögbrotum Banria- rikjaliðsins á Alþingi í fyrra- haust, tók Bjarni Ben. því fyrst með rembingi og lýsti yfir að honum væri sönn ánægja að fá sem nákvæmasta skoðun á pyí sem þar færi fram. En í u.n- ræðunum kom svo margt óþægi- legt fram um yfirgang og lög- brot Bandaríkjaliðsins að is- lenzku lepparnir áttu orðið enga vöm, leppmennska ríkisstjórnar innar var öllum augljós. Þegar Einar Olgeirsson lýsti því yfir að hann mundi i nefnd kveðja til þá islenzka embættismenn sem málin heyrðu undir, jvo sem tollstjóra o. fl. varð Bjarna svo felmt við að hann lét þrjá þjóna sína bera fram í skyndf tillögu um áð vísa málinu frá, án þess að það fengi athugun í nefnd, og lét handjárnað þinglið losa ríkisstjórnina þannig við óþægilega rannsókn á lepp- mennsku hennar í sambandi v-ið framkvæmd Keflavíkursamn- ingsins. Eitt aðaldeilumálið í þessum umræðum og oftar þegar um þessi mál er rætt, er þetta: Samkvæmt Keflavíkursamn- ingnum nýtur einungis það bandarískt starfslið, sem er á vellinum vegna samgangna við hernámslið Bandaríkjanna í Þýzkalandi, nokkurra fríðinda um tolla o. fl. Engir aðrir Bandaríkjamenn á Keflavíkurflugvelli njóta uokk- urra slíkra fríðinda. samkvæmt saniningnum, eiga því enga sér stöðu að hafa umíram íslenzka þegna og hlýta öllum ísl. lögum. En enda þótt þessar samgöng ur hafi ekki verið nema brot af starfrækslu Bandaríkjam. á Keflavíkurflugvelli, þsir haíi þar t. d. mörg hundruð verka- manna við byggingar, virðast Bandaríkjamenn bafa tekið sir heimild til að láta þessi m|ög takmörkuðu fríðindi Keflayíkur samningsins gilda fyrir alla Bandaríkjamenn á vellinum, og % hafa með því gerzt sekir um stórkostleg smygl og brot á ís- lenzkum tollalögum og mörgum fleiri lögum. ★_______________ --- -.„-mraiMt... —... t rwwHK I grein sem Ragnar Halldórs- son ritar í Tímann 20. f.m. f. h. Tollgæzlu Keflavíkurflugvauar er staðíest að íslenzka ríkis- stjórnin láti þennan taumlausa yfirgang Bandaríkjamanna vió- gangast, og virðist greinarhöf- undur halda að heimild til hans felist í Keflavíkursamningnir.n. Hann deilir harðlega á smyglið og dollarakaupin sem fram fari á Keflavíkurflugvelli vegna þeirrar aðstöðu er Bandaríkja- liðið fær með frekju sinni og undanlátsemi íslenzku ríkis- stjórnarinnar og segir: „Það er ekki hægt að ^era allt í senn, svo að ekkert rekizt á, að veita fjölmennu starfsliði með stórkostlegan atvinnurekst ur, tollfrelsi á áfengi, tóbaki. bjór og öðrum „nauðsynjavör- um vegna eigin nota“ og aug- lýsa svo hið tollfrjálsa svæði op ið og auðsótt heim til hvers kon ar gistivináttu livort heldur er að nóttu eða degi.“ (leturbr. Þjóðv.) Tollvörðurinn upplýsir enn- fremur að tollgæzlan hafi ekk- ert með aó gera eftirlit við „hið syonefnda flugvallarhlið“ á •Keflavíkurflugvellinum. „Dóms- málaráðuneytið hefur tekið þau mál í sínar hendur, og skipar þar meir eii tvöföldu liði lög- reglumanna til móts við það, sem tollgæzlan hefur yfir að ráða á sínum stöðum,“ — en greinin er einmitt skrifuð til andsvara annarri grein er birt- ist í Tímanum 7. þ. m. þar séin harðlega er deilt á eftirlitsleys- ið einmitt á þessum stað. Og Ragnar Halldórsson bsgtir við: „Annars vildi ég með þessari athugasemd leyfa mér að vekjáY athygli á því sem aðalatriði að löngu er kominn tími að gera nauðsynlegar ráðstafanir gegn þeim stöðuga straumi dolla.a- kaupmanna og annarra smygl- ara sem leita liingað suður á Keflavíkurflugvöll.“ ★ Það er athyglisvert að stjórn arblaðið Tíminn skuli nú veröif- til að birta slíkar greinar, er staðfesta að hin þunga ádeila sem sósíalistar hafa lialdið uppi um óstjórnina og lepp- mennsku dómsmálaráðuneytis- ins í sambandi við Bandaríkja- mennina á Keflavíkurflugvelli. er rétt. ^ Það er staðfest að þau ták- mörkuðu réttindi sem Keflavík- ursamnmgurinn veitir því starí's liði Bandarikjamanna er þarf- vegna samgangnanna við Þýzka land eru látin ná til alls Banda ríkjaliðsins, og tollgæzlan á Keflavíkurflugvelli virðizt ekki vita annað en það sé bundið í samningnum, og talar um völl- i inh sem „tollfrjálst svæði.“ Framhald á 7. síðu DOLLARAD DUR Viðtal rið Peter Freuehen um Grœnland* kMfnþtíttahatur og lýðrœði í Banda- ríkþsmmm Danski landkönnuðurinn og rithöfundurinn Peter Freuchen er nýkominn til Danmerkur eftir margra ára dvöl í Bandar. Skömmmu eftir að hann kom heim átti danska blaðið Land og Folk viðtal við hann og fer það liér á eftir, örlXið stytt. Innan skamms fer Peter Freuchen aftur til Grænlands. Þangað hefur hann ekki komið síðan 1937, og hann hefur að sjálfsögðu mikinn áhuga á að fullvissa sig af eigin raun um þær miklu breytingar sem þar hafa orðið síðan þá. Þegar hann stæður, ætlar hann að skrifa greinaflokk fyrir bandaríska stórblaðið „New York Herald Tribune“ og manni skjátlast varla mikið þó maður geri ráð fyrir því að Freuchen vonist til að geta með því róað Bandaríkja mennina ofurlítið. Þegar 11 fyrirlestrum var aflýst Þ\ í ber ekki að neita að Banda ríkjamenn hafa full nærgöngul- an áhuga á Grænlandi, segir har.n. Það er næstum því sama hvcrt ég kem að halda fyrir- er búinn að kynna sér allar að- lestra, allstaðar heyri ég sama sönginn: Þið getið ekki séð um Grænland sjálfir — við verðum að hjálpa til! Eg segi alltaf að við gerum þó að minnstakosti það sem við getum. Það er auð- vitað margt sem er öðru vísi en vera ætti á Grænlandi, en við erum litil þjóð, og það er ekki hægt að gera allt í einu. Og ég bæti við, að við förum að minnsta kosti betur með Græn- lendinga o-n Bandaríkjamenn með eskimóana í A’aska. Sumstaðar er eskimóum neit- að um acgang að \’eitingahús- um, annarstaðar er kínverjum. og indíánuir neitað um aðgang. Það er eins og Bandaríkjainenn verði allstaðar að hafa einhvern hóp manna til þess að líta niður á! * Eg giftist í Bandaríkjunum — eins og þið hafið eflaust frétt — og vinur minn Paul Robeson var svaramaður. Það leiddi til þess að 11 fyrirlestrum, sem ég hafði átt að halda í Suður- ríkjunum, var aflýst. Þeir kærðu sig ekki um að heyra mann tala sem hefði gift sig með hjálp negra. ^ Negrarnir eiga auðvitað í harðri baráttu fyrir réttindum sínum, og sé tekið tillit til þess að þeir voru þrælar áður hafa auðvitað orðið miklar framfarir,. og þess er að vænta að sú þró- un fái að halda áfram. Eg hef oft talað við Paui Robeson um þessi vandamál. Hann og þoir sem eru sammála honum telja að sjálfsögðu ekkY að negrarnir hafi nokkra sér- staka ástæðu til þess að vera hreyknir vegna þess að þeir eru negi'ar, en á hinn bóginn telja þeir sig ekki heldur hafa neina ástæðu til að skammast sín fyrir það!

x

Nýi tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.