Nýi tíminn


Nýi tíminn - 19.05.1949, Qupperneq 7

Nýi tíminn - 19.05.1949, Qupperneq 7
7 Fimœtudagur 19. maí -1949.- ' ■ fii--..i.t.i 'Otíii NÝI TlM-INN Gamli shrifar: RÖDD HEILDSALANS Fyrir aðgerðir þeirrar ríkis- stjórnar er nú fer með völd á íslandi er nú svo komið högnm alls vinnandi fólks í landinu, að lausn hins eilífa vandamáls: að hafa I sig og á, hefur sjaldan verið erfiðari. Og með hverjum mánuðinum sem líður aukast þessir erfiðleikar, og þessa dag- ana sitja þingfulltrúar hins þrí- eina afturhalds yfir fjárlögum með 30 milljón króna tekju- halla, leggjandi sín treggáfuðu höfuð í þleyti yfir því vanda- máli, hvemig þessum halla verði jafnað niður á alþýðuna í landinu á sem lævíslegastan hátt, og hvernig komizt verði hjá því ^ð skerða framfærslu- eyri hins pörótta óskabarns þessa,, , afturhalds: heildsala- stéttarinnar. Þyí hversu fast sem Sikórinn kreppir að íslenzk- um alþýðuheimilum renna gljá- andi lúxusbílar heildsalanna um hina fátæklegu vegi með sama hraða og fyrr; veizlur þeirra eru sízt færri né íburðarminni en áður; ekkert hefur dregið úr ærslum þessa óskabarns ríkis- stjórnariimar á leikvangi hins daglega lífs. Þannig hefur tryggð ríkisstjprnarinnar við þennan skjólstæðing sinn aldrei beðið neinn hnekki, á hverju sem aimars hefur gengið. ís- lenzka heildsalastéttin getur því núna hugsað líkt og Sig- urður gamli frá Balaskarði, er hann lýsti í ævisögu sinni mesta harðindaveðri er hann lifði, með þessum orðum: „Þann vetur sultu allir á Siglufirði, nema ég. Svona var Guð góður þá.“ .Enda þótt margt bendi til þess að heildsalastéttinni al- mennt sé lítið gefið af hinu auðmjúka og vel þenkjandi hjartalagi þessa ágæta alþýðu- manns, er ekki ólíklegt að hún minnist, síðgr meir núveraridi ástands I ekki ólíkum anda, eða eitthvað á þessa leið: „Þá liðu flestir skort á íslandi nema við. Svona var fyrsta ríkisstjórn Al- þýðuflokksins góð.“ Á veltitímum stríðsáranna safnaði þessi fátæka þjóð mikl- um eignum í gjaldeyri og at- vinnutækjum fyrir atorku hins vinnandi fólks. Yfir þessum feng þjóðarinnar sveimuðu heild salarnir eins og ránfuglar yfir æti og hefur nú tekizjt að hremma hann að mestu, og bera í hreiður sín. Þótt allir þessir fuglar hafi verið bæði atorkusamir og veiðiheppnir, er þó óhætt að fullyrða að fáa hafi vængir einstaklingsfram- taksins borið hraðar til mét- orð og aúðs, en Hallgrim nokk- urn Benediktsson. Fáir munu hafa búið sér öruggára né skjólbetra- hreiður á hiHum gustsaMa" víðavangi •borg'ara- legrar lífsbaráttu en einmitt •haim; Atik bins stóra' heilðsÖiu fyrirtækis, sem heitir í höfuð hans, og er ein umsvifamesta innflutningsverzlun landsins, mun hann vera einn aðaleigandi Hreins-, Síriusar- og Nóa-verk- smiðjanna, bílaverksmiðjunnar Ræsis, auk þess að vera hluta- bréfaeigandi í ýmsum fyrirtækj um, sem sá er ekki leggur því meiri alúð við lestur Lögbirtinga blaðsins, veit lítil deili á. Þá má ekki gleyma því að þessi voldugi maður er einn af aðal- eigendum og ráðamönnum þess tryggingafyrirtækis íslenzkra svindlara, er nefnt er Sjálf- stæðisflokkur. En sem kunnugt er hefur þetta fyrirtæki nú lagt undir sig mestan hluta Alþýðu flokksins og Framsóknarflokks- ins, og liggur nú fyrir tillaga á Alþingi frá Jónasi Jónssyni um formlega sameiningu þess- ara þriggja flokka, er væntan- lega hljóta þá firmaheitið: — Hið sameinaða afturhald á Islandi Ltd. — Fyrirtæki til verndar hagsmunum heildsala og gjaldeyrisþjófa, og til að vinna gegn hinum ósanngjörnu kröfum íslenzkrar alþýðu um mannsæmandi lífskjör. — Hallgrímur Benediktsson var glimukappi mikill fyrr á árum. Þó mun hann hafa náð enn glæsilegri árangri S þeirri fjöl- bragðaglímu hinnar frjálsu samkeppni, er dæmir engan úr leik vegna bolabragða, né ger- ir strangar kröfur tii keppenda um drengskap. Það þarf því engan að undra þó slíkur kappi og sigurvegari af leikvangi fjárplógsstarfseminnar, teldi sig eiga brýnt erindi á þá staði þar sem vandamál þjóðfélags- ins eru ráðin til lykta. Og auð- manninum íslenzka er leiðin greiðfær inn í bæjarstjórn og Alþingi; honum standa f est hlið opin nema hið fjan ega hlið Guðsríkis, ef trúa má höf- undi Kristindómsins. — Hall- grímur Benediktsson hefur nú um nokkurt skeið átt sæti í bæjarstjórn Reykjavíkur og á Alþingi, sem fulltrúi fyrirtækja sinna og eigin hagsmuna. Þar sem áhugamál hans eru mjög á öðru sviði en áhugamál ís- lenzkrar alþýðu, hafa störf hans á Alþingi enga athygli vakið, og ekki er kunnugt um að hann hafi lagt þar neitt til mála, er þjóðinni mætti að gagni koma. En honum ber þó sú afsökun að það er erílssamt starf að halda utan að miklum auði, og sjá una daglegt vafst- ur margra fyrirtækja, og ekki mikill tími aflögu til að hugsa ráð þessarar ráðdeildarlausu þjóðar. Þó er nú svo kómið f járreiðum hennár að jafnvei þessi störfum- hiaðHi heiidsali hefur 'ekki getað ðetið iengur hjá1;-- hann hefur' lagt höfuð sitt-'í bleyti ta a* hugsa ráð er að gagni auettl-'ítoáia. Og hon- um hafa dottið góð ráð í hug, og fyrir skömmu lagt þau fyr- ir Alþingi í frumvarpsformi. (Það tekur því kannski ekki að geta þess að Hallgrímur notar Sigurð Kristjánsson, sem með flutningsmann að þessu frum- varpi. Auðstéttin íslenzka hef- ur um langt skeið notað þenn- an þjón sinn öðrum fremur þegar hún hefur talið sér til- tækt að hefja árásir á lífskjör alþýðunnar úr vígi löggjafar- valdsins. Hefur auðsveipni hans og þjónustulipurð við þessa húsbændur sína verið meiri en mannlegri sjálfsvirðingu getur talizt heilbiágt, og verður því Hallgrímur að teljast ábyrgur að hlutdeild hans í þessu frum- varpi af jafn skiljanlegum á- stæðum og bændur eru taldir ábyrgir fyrir óskunda af völd- um búpenings síns). Meðal þeirra leiða út úr ó- göngunum, sem gert er ráð fyrir í þessu frumvarpi, er að lögð verði niður þau fyrirtæki ríkisins, sem sannanlega hafa skilað hagnaði og þau fengin í heldur einstakra heildsala, (H. Benediktsson & Co. ?) en í greinargerð er talið að í þeirra höndum væru möguleikar til að iáta þau gefa af sér enn meiri gróða. Afsökunarvert má það teljast þó einhvern kunni að gruna að Hallgrímur Bene- diktsson hefði ekkert á móti því að ná einhverju þessara ríkisfyrirtækja undir einka- brask sitt. Máltækið: ágirnd vex með eyri hverjum, styður þann grun. En þótt mikið blygð unarleysi þurfi til að nota þing- mennskuumboð sitt til slíkra bragða, eru þó aðrir liðir þessa heildsalafrumvarps líklegir til að vekja enn meiri furðu. Skal þar fyrst nefna tillöguna um stórfellda hækkun á framlagi ríkisins til Tryggingastofnunar- innar. Með því á að rýra lífeyri gamalmenna og öryrkja frá þvi sem nú er, en flestum siðuð- um mönnum mun ekki finnast hann geta verið naumar við neglur skorinn. Auðmaðurinn Hallgrímur Benediktsson er hér sem oftar á annarri skoðun. Það fólk sem hér á í hlut, hefur að hans dómi ekki eipungis nógu- úr að spila heldur of miklu. Þá kemur heildsalinn auga á það bjargráð að nema úr gildi lögin um orlofsfé verkamanna, en auk kostnaðar sem fylgir þessu hafa þau einnig þann ó- sóma í för með sér, að þau gera verkamönnum það auðið að- taka sér sumarfrí • nokkra* dagá á ári! Það kann. að rif jast upp fyrir einhverjum, að stutt ér síðan Hailgrímur Benedikts- sön ,fór í orlofsferð • til Ame- ríku með fjölskyidu , aína í og aokkra raánuðt -Hinhverjir sögðu að hann hefði haldið sig ríkiÆuiníega þgf ö.-ngið gjalde\Ti- til. íhráriiínar. En Hallgrímur 'þurfti ekki að bera kinnroða fyrir einhverju auddi út 'úr gjaldeyri, og svar- aði því til að hiiiin ætti lög- lega fengná Öollara á bönkum westra, það væri hans orlofsfé. Og heildsálárnir eiga allir sitt orlofsfé í erlendum gjaldeyri og það gerir þeim kleift að eyða sumarleyfum sínum er- lendis sjálfum sér til skemmt- unar og landi og þjóð til sóma! Ekki freistast Hallgrímur til að bæta því inn í frumvarp sitt, að hinn uppurði ríkissjóður seildist eitthvað lítilsháttar 1 þennan orlofssjóð heildsalanna, og það þótt dollarar séu ann- anrsvegar. En þetta fé er vel fengið og stéttin sem hefur afl- að þess, allra góðra fríðinda makleg. Þar skilur milli henn- ar og verkamanna. Enn er einn útgjaldaliður ríkisins sem héildsalanum er mikill þyrnir í augúm. Það er kostnaðurinn við barnafræðslu. Hann bendir á að þennan út- gjaldalið þurfi að lækka all- verulega óg stytta skólaskyld- una um a. m. k. tvö ár. Það ber þó ljósán vott um áhuga Hall- gríms fyrir mennttín æskulýðs- ins, að hann skuli ekki léggja til að barnafræðsla verði lögð niður með öllu, þó slíkt hefði orðið hinn mesti búhnykkur fyrir ríkissjóð. Sú ráðstöfun hefði þar að auki létt þungbær- um áhyggjum af ívari Víkverja, en hans lífemisfróma sál hefur orðið að þola miklar píslir vegna vanrækslu barnaskól- anna í kristindómsfræðslu, og Eldsins varð vart um fimm- leytið í gærmorgun. Var hann í vinnusal hraðfrystihússins, sem var nálega í miðju húsinu, og breiddist ört út til beggja hliða. Hraðfrystihúsið og mat- arbúðin voru einlyft timburhús og brunnu þau til ösku og varð þar engu bjargað nema ein- hverju úr matarbúðinni. Varð engu bjargað úr vinnusal, geymsium né þakhæð íshússins. Ekki er vonlaust að vélar frysti hússins séu lítið skemmdar. Slökkviliðsbíllinn kom fljótt á vettvang, en dælan stíflaðíst oft vitnað í Morgunblaðinu um þjáningar sínar. Hér er ekki rúm til að rekja fleiri liði úr frumvarpi heild- salans. En þeir sem hér eru birtir ættu að nægja til að kynna hinn upprunalega tón í rödd hans, Vel má það vera að mörgum fávísum alþýðumanni láti það óhugnanlega í eyrum þegar auð kýfingur sem býr við óhóf og allsnægtir, birtir almenningi þau áhugamál sín, sem felast i ofan greindum tillögum. ávo ein- kennilegt er mannfólkið, að það fer gjaman að meta það hugar- far sem leynir sér bak við af- stöðu hinna ríku til þeirra sem fátækir eru. Hvort það hugar- far sem liggur að baki þessara tillagna er almennt meðal ís- lenzkra auðmanna, skal látið ósagt. Þeir sem gera víðtæka fjárplógsstarfsemi og auðsöfn- im að innihaidi lífs síns hafa lítinn tíma til heilabrota um þjóðfélagsmál. Hallgrímur Bene diktsson heildsali, verksmiðju- eigandi og alþingismaður m. m. hefur hinsvegar séð að hann mátti ekki láta sinn hlut eftir liggja, þegar afkoma þjóðar- innar var í húfi. Hann mun hafa góða reynslu af hugkvæmni sinni við faktúruútreikninga og skattaframtöl, og hefur nú beitt henni til að leita þeirra út- gjaldaliða ríkissjóðs, sem að hans dómi eru óþarfastir, svo hægt væri að ráða bót á f jár- málaöngþveiti landsins með því að leggja þá niður. Og vissu- lega bregða niðurstöður hans upp mynd af sérkennilegum vitsmunum og næsta óvenju- legu innræti, sem var óneitan- lega fróðlegt að kynnast. heppni því skammt er þarna á milli húsa. Ekki var enn vitað um upp- tök eldsins þegar Þjóðviljinn átti tal við fréttaritara sinn á Akranesi í gærkvöld. Enginn umgangur hafði verið um hús- in síðan á laugardag og eru uppi tilgátur um að kviknað hafi frá rafmagni. Auk gífurlegs elgnartjóns af völdum eldsins stöðvast alger- lega móttaka fisks og síldar. Þama Jhafði einnig verið þyrjað að frysta hvalkjöt og mun ætl- unin hafa verið að. halda því áfram,, ennfremur átti að frysta öváddi Jar ser .tii hressiagar ;í og tofði það slökkvistaffið. Loga var og var það - mikil ."U úi ;iá:-..'-' - sild í; siunar, Stórbruni á Akranesi Hraðfrystihús, geymslur og matarbúð Haraldar Böðvarssonar brunnu til ösku — Móttahafl$bs og síldar alger- lega stöðvuð 17~ maí. I gærmorgun varð stórbruni á Akranesi. Hrað- frystihús, ásamt tilheyrandi geymslnm og matarbúð Haraldar Böðvarssonar brunnu til kaldra kola, Auk hins stórkostlega efnatjóns af völdum brnn- ans orsakar hann það að alger stöðvnn verðnr á mót- tökn fisks og síldar í hraðfrystihúsinu.

x

Nýi tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.