Nýi tíminn - 20.09.1951, Page 4
4) — NÝI TÍMINN — Firr.rntudagur 20. scptember 1951
NÝI TÍMiNN
Útgefandl. Samelnlngarfiokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurlnn.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Ásmundnr Sigurðsson
Áskriftargjald er 25 krói/ur á ári.
Grelnar i blaðiS sendist til ritstjórans. Adr.: Afgreiðsla
Nýja timans, Skólavörðustíg 19, Reykjavík
Afgreiðsla og auglýsinga:3krifstofa Skólav.st. 19. Sími 7500.
Prentsmiíja Þjóðviljans h.f.
Framsókn er samsek
Framsóknarflokkurinn hefur lifað á því alllanga og
oftast grugguga ævi að leika tveim skjöldum. Með meira
og minna róttækum vígorðum hefur hann biðlað til fylgis
lieiðarlegra vinstri manna í landinu og oft fengið já, en
jafnframt haldið samstarfi við afturhaldsöflin, og hét
Hriflu-Jónas snemma íhaldinu liðsinnis ef verkalýðshreyf-
ingin á íslandi yrði svo sterk að burgeisarnir teldu veru-
lega ástæðu að óttast hana. Oft hefur forusta flokksins
gert þennan tvískinnung að aðalatriði baráttuaðferðar
sinnar, nokkur hluti hennar látinn leika einskonar , rót-
tækni“ og jafnvel halda uppi hvassri gagnrýni á ríkis-
stjórn sem Framsókn bar fulla ábyrgð á; í ýmsum úrslita-
málum hefur þingflokkur Framsóknar skipt sér í því
skyni að einhver hluti flokksins gæti sagt sig hrsinan af
óþrifaverkum afturhaldsins sem verið var að fremja.
En margt bendir til að Framsókn veitist ekki auðvelt
að leika þann loddaraleik öllu lengur. Flokkurinn hefur
1 sívaxandi mæli orðið háður Sjálfstæðisflokknum, með
hverju ári tengzt sterkari blóðböndum (blóðsuguböndum
væri sjálfsagt réttara" orð) við einokunarklíku afturhalds-
ins íslenzka. Með vaxandi valdi íhaldsins yfir Framsókn-
arflokknum hefur Thórsurunum og Bjarna Ben. þótt rétt
að gsra hann samsekan* helzt allan, um óþrifaverkin, og
Framsókn hefur verið nuddað dyggilega í óþrifin af
samningunum um uppgjöf landsréttinda, bandarísku
hetlistefnunni og þeim árásum á lífskjör fólksins isem
stjórn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar og Alþýðuflokks-
ins sömdu um jafnframt marsjallölmusunum. Og foringi
þess hluta Framsóknarforustunnar sem falið hafði verið
að halda í heiðarlegt vinistri fólk með uppgerðarróttækni,
var dreginn inn í ríkisstjórn með Ólafi Tryggvasyni Thórs
og Bjarna Ben. og bannaö að flotta sig með neinni sér-
stöðu, einnig hann skyldi gerður samsekur um allan
óþverrann, öll landráðin, allar árásirnar á lífskjör alþýð-
nnnar, einnig hann skyldi verða hluttakandi í heimsmeti
dýrtíðaraukningarinnar. Og allt varð þetta auöveldara
vegna samleiks þeirra valdamanna beggja flokkanna sem
nánast sambandið hafa við hina bandarísku húsbændur
og mynda einokunarklíku þá sem undanfarið hefur bann-.
aö íslendingum flestar bjargir. Einnig hinni erlendu
ríkisstjórn, sem segir stjórn Steingríms Steinþórssonar
íyrir verkum. þótti vissara að hafa alla forustu Fram-
sóknar samseka um hernámið og bandarísku betlistefn-
una svo þar væri síður nokkurrar forustu von fyrir þá
miklu óánægju er ríkir meðal flokksmanna með undir-
lægjuháttinn við íhaldið og erlent vald.
Það sézt nú daglega á Tímanúm að stjórn Fram-
sóknarflokksins finnur hve langt hún er komin, finnur
að úr þessu muni það veitast illmögulegt að leika tveim
skjöldum og látast vinstrisinnuð og andstæð íhaldi og
afturhaldi viö hátíðleg tækifæri. Frammi fyrir allri þjóð-
mni hefur Eysteinn Jónsson, Hermann Jónasson og öll
íorusta Framsóknarflokksins gerzt samsek um verstu og
vesælustu afturhaldsstjórn sem nokkru sinni hefur setið
við völd á íslandi og látið þurrka flokki sínum upp úr
öllum óþrifum hennar. Heiðarlegir Framsóknarmenn, sem
hvað eítir annað hafa sýnt að þeir vilja að Framsókn
fylgi vinstri stefnu, standi við stóru orðin um baráttu
við fjárplógsvald afturhaldsins á íslandi, hafa liorft eins
og ringlaðir á þessa niðurlægingu flokks síns. En sú ringl-
un er óðum að breytast í réttláta reiði gegn þeim foringj-
um sem leitt hafa flokkinn í svaðið. Hræðsla flokksfor-
ustunnar við flokksmennina skín út úr greinum Tímans,
sem undirbýr nú gömlu brelluna, aö finna einhver rhinni
háttar ágreiningsmál við hitt íhaldiö, rjúfa stjórriarsam-
starfiö með brauki og bramli, ganga til kosninga sem
róttækur flokkur, og skríða svo í ríkisstjórn með íhaldinu
strax að kosningum loknum. Þaö er ekki einu sinni víst
að Framsókn verði leyft svo mikið" „sjálfstæði", og hitt
er þó í enn meiri óvissu hvort íslenzkir alþýðukjósendur
láti enn bjóða sér þá brellu.
Frumleg fri ðarráðstefna
eru ■*°fn’en sum
eru jafnari enn önnur"
var itjörorðið í dýraríki Or-
w'ells, en ómögulegt er að verj-
ast þeirri hugsun, að við und-
irbúning friðarsamníngs síns
við Japan hafi Bandaríkja-
stjórn vikið þessu dálítið við
og farið eftir reglunni: „Öll
ríki eru jöfn, en sum eru jafn-
ari en önnur“. Ekki þarf að
taka það fram, að spekingarn-
ir í Washington hafa áltið það
augljós sannindi, að allra ríkja
jafnast væri guðs eigið land,
enda hegðuðu þeir sér sam-
kvæmt því. Bandaríkjamenn
hafa löngun stært sig af þvi,
að þeir séu allra þjóða fúsastir
til að taka upp nýjar starfsað-
ferðir, á ýmsum sviðum, og
hver veit nema Acheson og
Truman dreymi um það, að
þeirra verði minnzt sem braut-
ryðjenda nýrra vinnubragða
við gerð a’þjóðasamninga eins
og Fords sáluga fyrir vinnu-
skipulagninguna í iðnaðinum.
Aðferðin var sú, að Truman
forseti sendi John Foster
Dulles, ráðunaut Achesons ut-
anríkisráðherra, á það sem
jafnvel „New York Times"
kemst ekki hjá að nefna „ó-
venjulega sendiferð". Dulles
heimsótti nokkrar höfuðborgir
í Evrópu og Asíu og tilkynnti
ríkisstjórnunum þar, að Banda-
ríkjastjórn væri að hugsa um
að taka sig til og semja frið
við Japan. Ekki knúði Dulles
dyra hjá öðrum . ríkisstjórnum
en þeim, sem hann taldi sæmi-
iega hlýðnar við Bandaríkin.
Eftir heimkomuna til Waghing1-
ton úr þessu ferðalagi samdi
Dulles uppkast að friðarsamn-
ingi við Japan, sem síðan var
sent rúmlega fimmtíu ríkis-
stjórnum til yfirlesturs. Ýmsar
þeirra sendu athugasemdir og
breytingartillögur, en Dulles
einn réð því, hverjar teknar
voru til greina í nýju uppkasti,
sem var í fáu frábrugðið því
fyrra. Þetta uppkast tilkynnti
Bandaríkjastjórn svo að önnur
ríki sem átt höfðu í
styrjöld við Japan mættu
náðarsam'egast undirrita á
ráðstefnu í San Francisco.
Hinsvegar mættu þau helzt
ekki ræða það og harðbannað
væri að fremja þau helgispjöll
t
Andrei Gromiko
að bera fram breytingartillög-
ur við allra hæstan vilja John
Foster Dulles og yfirboðai-a
hans.
JgFTIR þessar aðfarir, eftir
að búið var að útiloka
önnur ríki, en þau sem eru í
náðinni í Washington, frá að
hafa áhrif á ákvæði samnings-
uppkastsins og eftir að Banda-
ríkjastjórn hafði '5tekið sér
einræðisvald til að ákveða,
hverjar af tillÖgum þeirra, sem
fengu að segja álit ,sitt, .skyldu
teknar til greina og hverjum
hafnað, risu þeir Acheson og
Dulles upp í San Francisco og
sögðu án þess að þeim stykki
bros, að öll ríki hefðu fengið
sömu aðstöðu til að móta frið-
arsamninginn við Japan og því
væri óþarfi að ræða hann og
goðgá að gera við hann breyt-
ingartillögur. Við samnings-
gerðina höfðu sem sagt ö'.l ríki
verið jöfn, Bandaríkin voru
bara jafnari en önnur. Ekki
þarf að taka fram, að þessar
aðfarir eru algert einsdæmi í
alli’i sögu milliríkjaviðskipta.
Er þess skemmst að minnast,
hvernig farið var að, er friður
var saminn 1946 við bandalags-
ríki Þýzkalands í Evrópu. Þá
komu fulltrúar stórveldanna
fjögurra fyrst saman á langa
fuxjdi og gengu frá samnings-
uppkasti. Að því búnu var köll-
uð saman a'menn friðarráð-
stefna i París og þar var ekki
verið að hespa hlutina af á
fjórum dögum einsog friðar-
samninginn við Japan í San
Francisco. Umræður voru ó-
takmarkaðar og fjöldi breyt-
inga gerður á samningunum
enda þótt uppköstin, sem lögð
voru fyrir ráðstefnuna, væru
árangur af samstarfi fjögurra
rikja en ekki valdboð eins rikis
einsog uppkastið, sem lagt var
fram i San Francisco.
■ff viðbót við þessar frumlegu
starfsaðferðir lét Banda-
ríkjastjórn sig ekki muna um
það, að beita sér fyrir því að
Vesturveldin frömdu hvert
samningsrofið á annað ofan
með samningsgerðinni við Jap-
an. Þau sömdu sérfrið við
landið enda þótt þau hefðu
hátíðlega lýst því yfir 1. janú-
ar 1942, áð bandamannaríkin
skyldu standa saman og ekki
semja sérfrið við neitt af ó-
vinarikjum sínum. 1 Potsdam-
yfiriýsingunni, sem Vesturve’d-
in og Sovétríkin undirrituðu,
var skýrt tekið fram, að allt
hernámsliö ætti að \ærða burt
úr Japan þegar friður hefði
verið saminn við landið, en
engu að síður ákvað Banda-
ríkjastjórn að halda . hernámi
Japans áfram og var beinlinis
gcrt ráð fyrir því í friðarsamn-
ingnum. Svona mætti lengi
telja. Hitt j,er þó enn ósvífn-
ara, að Eandaríkin og fylgi-
ríki þcirra ákváðu að meina
Ivína algerlega aðild að undir-
búningi friðarsamningsins og
friðarráðstefnunni. S’ik fram-
koma er svo fáránleg, að engu
tali tekur. Kína er næsta ná-
grannaland Japans og sterkasta
veldið í Asiu. Kina átti í styrj-
öld við Japan þrisvar sinnum
lengur en nokkurt annað ríki
og varð fyrir þyngstum bú-
sifjum af hendi Japana. Friðar
samningur\við Japan sem gerð-
ur er ekki aðeins án þátttöku
Kína heldur þvert á móti vilja
Kínverja, gefur afdrei verið
annað en skrípaleikur, eða „að
leika Hamlet en sleppa Dana-
prinsi" einsog fréttaritari
„New York Times" í Tokyo
kemst að orði.
rpiILGANGUR Bandarí kja-
JLiL
stjornar með skrípafriðar-
samningnum við Ja.pan og öil-
um tilburðunum í kringum
hann er augljós. Jafnframt
samningnum er gérður hern-
John Foster Dulles
aðarbandalagssamningur milli
Bandarikjanna og Japans, sem
heimilar Bandaríkjamönnum
hernám landsins eins lengi og
þeim þóknast. Japan á að vera
„jarðfast flugvélaskip" undau
strönd Asíu einsog Bretland
og Island í Atlanzhafi. Búið
er í haginn fyrir japanska her-
væðingu og ákveðið að jap-
anskur iðnaður sku’i á ný
verða þungamiðjan í atvinnu-
lífi þeirra landa í Kyrrahafi
og Suðaustui'-Asiu, sem eru
undir áhrifum Bandaríkjanna.
Markmiðið er að gera Japan
að þungamiðju hernaðarkerfis,
sem beint er gegn sósíalistisk-
um meginlandsrikjum Asiu.
Hervætt Japan á að gegna
sama hlutverki - og. það gerði
í andkommúnistabandalagi
Hitlers, sáluga. Þetta er játað
opinskátt . í bandarískum blöð-
um. „(Japan) fylgdi þeirri
stefnu, að halda valdi Sovét-
ríkjanna í skefjum löngu áður
en Bandaríkjunum datt það
orðati'tæki í hug“, segir James
Reston í „New York Times" 4.
september. En aðrar Asíuþjóð-
ir og Japanar sjálfir eru ekki
ginkeyptir fyrir hernaðaráætl-
unum bandaríska herráðsins.
Indland og Burma þverneituðu
að eiga aðild að hinum banda-
ríska friðarsamningi. Indónes-
ía, Ástraiia, Filippseyjar og
Nýja Sjáland. gengu sárnauðug
til leiksins í San Francisco.
Verkalýðshreyfing Japans öll
og sterk öfl innan borgarastétt-
arinnar kröfðust þess, að eng-
inn friðarsamningur væri gorð-
ur nema Sovétríkin og ICína
væru aði’ar að lionum engu
siður en Vesturveldin og mót-
mæltu eindregið áfi'amhaldandi
hernámi Bandarikjamanna. Það
var ekki bara Gromiko í San
Francisco, sem sagði að friðar-
sa.mningur Bandaríkjastjórnar
stofnaði .friðnum í Asiu í voða.
Hið sama sögðu Evatt, hinn
mikilsvirti sósíaldemókratafor-
ingi og fyrrverandi utanrikis-
ráðherra Ástralíu og Nehru
forsætisráöherra Indlands."
M. T. Ó.