Prentarinn - 01.06.1950, Page 8
<>ee<><><><><><><><><><><^><><><><<><><><><<><><><^^
Eina bókin, sem til þessa hefir ,erið gefin út »•»«'> «« eM OÍ fÓír."
faér á landi af prentlistarástæðum einum og með frágangi í samræmi við lögmál eðlilegrar
myndunar, er
„Lýðveldishugvekja um íslenzl{t mál,
forlátaútgáfa
til minningar um hundrað ára afmæli prentlistarinnar í Reykjavík árið 1944“, er prentuð
var á fyrsta ári lýðveldisins, sem var stofnað á þessu afmælisári íslenzkrar prentlistar. Með-
fram var til þess hugsað við útgáfuna, að iðkendum prendistarinnar gæfist fyrir bragðið
kostur á hentugri tækifærisgjöf með vaxandi verðmæti þeim til handa, er hafa áhuga á bók-
aramennt, máli og menningu, en þeir eru enn of fáir, sem ihafa neytt þessa kostar, því að
eitthvað af þessum sérstæða prentgrip, sem er fágæti frá upphafi og áreiðanlega verður því
innan skamms mjög eftirsóttur, mun enn þá fást hjá einhverjum bóksala.
Aiþjóðabandalag bókiðnaðarmanna.
Það er nú búið að koma sér niður í samræmi við
ályktanir stofnþingsins í Stokkhólmi í fyrra vor, en
frá því var sagt í 5.—6. tölublaði af síðasta árgangi
Prentarans, sem og stjórnarfyrirkomulagi banda-
lagsins. Hóf það starfsemi sína með októberbyrjun
s.l. ár, en hafði tekið við af sérstöku alþjóðasam-
böndunum þremur 1. júlí.
Síðan í nóvember fyrra ár, en þá voru enn ekki
gengin í bandalagið fleiri sambönd bókiðnaðar-
manna en þátt höfðu tekið í stofnþinginu, hafa
bætzt við þrjú sambönd, og er nú félagsmannatalan
komin upp í tæp 508 þúsund í 34 samböndum í 17
löndum. I þessari félagsmannatölu eru þó hvorki
nemar né öryrkjar, sem í félögunum eru.
Stjórn bandalagsins vinnur af kappi að því að fá
til þátttöku sambönd bókiðnaðarmannafélaga, er
enn standa utan bandalagsins, en því miður er ár-
angur ekki auðfenginn.
Bandalagið hefir auk bréfa sent Hinu íslenzka
prentarafélagi tvenn rit, er það hefir gefið út: Stofn-
þingstíðindin (á ensku) með sögu, skýrslum og
samþykktum bandalagsins í nokkrum eintökum og
„Orðsendingar" (á þýzku), sem eru tímarit, er
bandalagið gefur líka út á ensku, frakknesku og
sænsku (handa Norðurlandabúum). Af því hafa
félaginu verið send um tuttugu eintök.
Ef einhverjir félagar hafa áhuga á að kynna sér
efni þessara rita, geta þeir sjálfsagt fengið þau hjá
stjórninni, meðan eintakafjöldinn endist.
íslenzkir prentarar í Danmörku.
Johann Sigmundsson prentari. Hann lærði í Rík-
isprentsmiðjunni Gutenberg og kom hingað til
Danmerkur vorið 1949 og hefir unnið í prent-
smiðju S. L. Möllers síðan. Hann er vel að sér í
iðn sinni og vel látinn af félögum sínum. Jóhann
verður í prentskólanum hér í ágústmánuði, en
vinnur þó í prentsmiðjunni samtímis (frá kl. 158a
-23).
Helgi Þorðarson. Þeim mun vera farið að fækka,
eldri prenturunum, sem enn þá muna Helga. Hann
vann í prentsmiðjunni Gutenberg seinustu árin á
íslandi, en fluttist hingað árið 1908. Hér vann
hann nokkur ár við prentiðn, meðal annars hjá
S. L. Möller og í prentsmiðju hjálpræðishersins.
Seinna varð Helgi að hætta vinnu við prentiðn sök-
um heilsubilunar og gerðist þá næturvörður og
líkberi og hafði þann starfa á hendi í rúm þrjátíu
ár. Haustið 1947 hætti Helgi störfum sökum aldurs
og var þá farinn að sjá mjög illa, og 1948 var hann
orðinn blindur. Var hann þá skorinn upp við því
og hefir nú fulla sjón aftur. Prentarar í Reykjavík
hafa skotið saman fé handa honum til heimsóknar
á Islandi, en sökum veikinda konu hans hefir hann
ekki komizt að heiman, en vonar að geta komið
næsta ár. Þorf. Kr.
ALÞVÐUPRENTSMIÐJAN H.F. ■ VITASTÍG
16 PRENTARINN