Nýi tíminn


Nýi tíminn - 02.04.1953, Side 8

Nýi tíminn - 02.04.1953, Side 8
8) — NÝI TlMINN — Fimnatudagur 2. apríl 1953 areinmg gegn Rís þú ungs tslnnds merkt ÞjóSarráSstefna 5.-7. moí / vor. vilja samkvæmt íraman- gréindu markmiði. LANDIÐ GLEYMDA Þegar ég hóí að rita grein- arnar um þjóðareining gegn her í landi, gerði ég það af brýnni þörf og eftír langa í- hugun um þessi mál. Það hefur atvikazt svo, að ég hef mörgum fremur fengið vit- neskju um margt er gerist á þessum sviðum, sökum sam- tíðarsögunnar, er ég hef rit- að um hernám Islands. Eg vænli þess, þegar ég sendi greinarnar til birtingar, að margir yrðu mér sammála í einkunnarorðunum gegn hernaðarandanum á IsLandi, en ég lét mér ekki til hugar koma að greinarnar féllu í svo frjóan jarðveg sem raun ber vitni. Nú veit ég með sannindum að menn skipast ekki eftir hinum gömlu stjórn málaflokkum í þessum mál- um. í landinu hefur myndazt þörf fyrir samslarf þjóðhollra manna, þeirra, sem bera ugg í brjósti sökum yfirgangs hersins og l>ess athæfis, sem íslenzkir formaelendur hans hafa í frammi haft. í höíuð- stað ríkisins, — í umhverfi hersins, — og út um breiðar byggðir landsins bíða menn þeirrar stundar að þeir fái að leggja hönd til starfs í þjóðar- einingunni gegn hernum og gegn stofnun innlends hers, — ekki í því augnamiði að 6toína nýja flolcka, þeir eru þegar orðnir nógu margir, — heldur til þess að sameinast um fyrrgreint mál, hvar sem menn annárs hafa staðið í flokkum. Svo sem kunnugt er hefur islenzka þjóðin í nálega 13 ár búið í landi sínu í tvíbýli við erlendar þjóðir, fyrst Breta og síðar Bandarikjamenn, þar af 7—-8 ár í nábýli við er- lendan her. Þegar Bretar stigu hér á land 10. maí 1940 mótmæltí ríkisstjórnin í nafni þjóðarinnar þeim aðförum. Þau mótmæli veittu þjóðinni viðnámsþrótt á hernámsárun- um, og þrátt fyrir samninga um að Bandaríkiaher stigi hér ú land, var aldrei sljóvg- aður viðnámsþróttur þjóðar- innar I heild, þótt hæglega megi benda á ýmsar veilur. Þjóðinni var ijós sú alvar- lega hætta sem steðjaði að þjóðerninu, tungunni og hinni uppvaxandi kynslóð Margs- konar andmæli hófust gegn hemum og einkum var reynt að bægja áhrifum hans frá samftvæmisl'ífi unga fólksins og skemmtunum, samanber hin-a þjóðhollu og margendur- tcknu auglýsingu: Aðgangur aðeins fyrir íslendinga. Síðan Bandaríkjaherinn kom til landsins fyrir tæpum tveimur órum, hefur vaxandi uggur um þjóðemislega hættu gfipið hugi fjölda íslendinga og sennilega yíirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar, og sízt að ástæðu lausu. Fjölda- mörg félög, félagasamtök og landssambönd stétta hafa í ýmsum myndum mótmælt hernum, hernaðarandanum og stoínun innlends hers. Má þar til nefna Ungmennafélag ís- lands, Prestastefnuna s. 1. ár, kennaraþing og kennarafélög, Stúdentaráð og stúdentafélög innanlands og utan, kvenfé- lög víðsvegar um landið, Menningar- og friðarsamtök kvenna, fjöldamörg verkalýðs- félög og Alþýðusamband ís- lands, iðnnemasamtök og fé- lög iðnaðarmanna, pólitísk fé- lög og flokkar, Sósíalista- flokkurinn, Þjóðvarnarflokk- ur íslands, Félag ungra sjálf- stæðismanna Heimdallúr, Fé- lag ungra Framsóknanrranna, Æskulýðsfylkingin, félag ungr.a sósíálista, Félag ungra jafnaðarmanna, skólafélög mörg, bændafundir og ein- stakir fjöldafundir, og er þó hvergi nærri upptalið. Bak við allár samþykktimar standa þúsundir, jafnvel tug- þúsundir íslendinga. En eins hefur verið vant til þess að sá andi og kraftur, sem býr að baki andmælanna, nyti sín í fyllingu. Það hefur vantað eðlilegan farveg, þar sem all- ar uppspretturnar félli saman og mynduðu straumþunga og orku fljótsins. Sá farvegur er nú myndaður. Það hefur fallið í minn hlut í samráði við fjölmarga menn úr öllum flokkum og utan- flokkamenn að boða til þjóð- arráðsteínu, sem haldin verði 5.—7. maí í vor, og hafi ráð- stefnan til umræðu hvernig skuli á heilbi-igðan og laga- legan hátt vinna bug á hern- aðarandanum, skapa þjóðar- einingu gegn her í landi og gegn stofnun innlends hers, en beita sér fyrir uppsögn her- verndarsamningsins undir kjörorðunum um friðlýsingu fslandsj — friður við allar þjóðir, — Island fyrir ís- lendinga. Fyrrgreindum íélögum og samtökum verður gefinn kost- ur á að tilnefna fulltrúa til þess að undirbúa þjóðarráð- stefnuna. Ekkert skilyrði er sett um val eða skoðanir full- trúa að öðru leyti en því, að þeir hafi einlægan samstarfs- Mér er Ijóst, að mikil þörf er fyrir sérstakt málgagn, er þessi hreyfing ætti til um- ráða og hefði það markmið eitt að hvetja til þjóðareining ar og samtaka, blaði, sem ekki væri kennt við neinn stjórnmálaflokk; en á þessu stigi er ofviða fjárhagslega að ráðast í slíka útgáfu. Ég hef því tekið þann kost að semja við dagblaðið Þjóðviljann um að fá til minna umráða á- kveðið rúm í blaðinu, fyrst ; um sinn. Allt, sem þar verður • birt, er algerlega á minni á- byrgð. Það rúm verður opið fslendingum, hvar í flokki sem þeir standa, ef þeir að- eins vilja veita framangreind- um málum lið. Það verður einnig kallað á sjálfboðaliða til starfa, unga fólkið hvarvetna um landið, skólaæskuna, verkafólkið, konur og karla í öllum stétt- um. Það þarf að mynda á- hugaliópa lun þessi mál, þar sem 3 menn eða 5 menn eða þaðan af fleiri eru saman- komnir, áhugahópa á vinnu- stöðvum, roeðal skipshafna, í Skóiunum, í fjölskyldunum^ Við köllum á ungu skáldin og ungu rithöfundana. Ðirtið ykkar fyrstu ljóð og sögur eða ritgerðir í dálkum and- spyrnuhre/fingarinnar. Gefið okkur söngva ykkar og ljóð, þá biðjum við tóiiskáldin að gefa okkur lögin, og kveðjum fram söngvarana og tónlistar- mennina. Um fram allt: eign- umst okkar söngva. Sendið tillögur um nafn á hreyfing- unni, leggið orð I belg, hver á sínu sviði. Sé þess þörf að einhverjir vilji á þessu stigi dylja nöfn sín, skal þeim heitið fullkominni þagmælsku að drengskap viðlögðum. Við hefjumst þá handa og. undirbúum þjóðarráðstefnuna. Upp af þeirri ráðstefnu þarf og skal rísa hið unga ísland, bjart á svip og óhnuggið, sem setja skal göfugan blæ ú 10 ára lýðveldishátíðina 1954. Við erum að vísu fædd í veikleika, en í sameiningu um mesta velferðarmál íslands munum við vaxa að þrótti og heillum. Þar til markinu er náð á að vera fyrsta orð okk- ar að morgni og. síðasta að kvöldi: Þjóðareining gegn her á íslandi. Uppsögn her- V vérndarsamningsins. G. M. M. Pósthólf 1063. Framhald af 5. síðu. um landsstjóra þennan, hann er maður sanngjarn í annarri andránni, en óbilgjarn grimmd- arseggur í hinni. Baldvin Hall- dórsson er kaupmaður í Græn- landi, norskur og góður, og Rúrik Haraldsson annar, dansk- ur og vondur, báðir gera skyldu sína. Gestur Pálsson leikur einn biskupinn enn, en er minnisverðari í hlutverki Grænlendingsins gamla. Vel í þágu menningaifiimaE Framhald af 4- síðu. lenzka ríkisútvarpinu hófst föstumessa. Séra Garðar Svavarsson minntist ungs manns seni sviptur var lífi í hernurndu landi fyrir rúm- um 19 öldum. Einnig í mer.n- ingarútvarpinu á Keflavík- urflugvelli var atburðarins minnzt. Þar var fluttur leik- þátturinn Super-murder og fjallaði hann um ,það að sá morðingi sem felur lík sín sé óhultur. Ekkert lík ekk- ert morð, og síðan voru rekn ir upp miklir hlátrar. Er ekki að efa að þessi ágæta vísbending hefur fallið í góð- an jarðveg einmitt þetta kvöld og á eftir að auðga enn það menningarlíf sem nú er vernd- * að af mestri Z(. prýði. r'TPjMó Framsóknarolíð Frafhald af 2. síðu , leiðréfttingar. Hún var ófáan- leg. Leið nú og beið. Þá hugsr aðist manni þessum að ganga á fund ráðherrá flokks sins og lagði fyrir hann ískyggilega langan lista af nöfnum, ásamt meðfylgjandi yfirlýsingu: Eng- inn þessara manna kýs Fr«m- sóknarflokkinn i sumar, verði ekki brottrekstur bílstjórans aft- urkallaður. Þgtta hreif. Þetta var mál sem ráðherrann skildi. Bílstjórinn var tekinn iaftur — og gefin út fyr- irmæli um að skila bílstjórunum njósnaskýrslunum bandarísku er læir liöfðu útfyllt. Þaimig er saga þessa máls sögð sem opinbert leyndarmál á Suðurnesjum. Vilhjálmur Þór sagði: verði ljós. Og „íslenzkt“ félag á Kefla- vikurflugvelli hóf njósnir fyrir bandaríska herinn. Það er mjög ldklegt að runnið hafi upp Ijós fyrir mörgum — víðar en á Suðumesjum. ,T. B. fer Róbert Arnfinnssyni kon- ungstignin og skýr og hnitti- leg eru þau Anna Guðmunds- dóttir og Karl Jóh. Guðmunds- son. Mjög geðfelldur er Jóhann Pálsson sem Páll Egede, en karlmannlegri mætti hann vera. Fleiri leikendur mætti teljia, en sú þula tæki aldrei enda. Leifcnum va,r ágætlega tek- ið, og virtist þó áhugi leikhús- gesta dofna nokkuð er á ieið, enda er síðari hlutinn dapurleg- ur í meira lagi. Menn höfðu vænzt þess að hitta höfundinn á frumsýningu, en úr því gat ekki orðið vegna veikinda. hans; allir hefðu kosið að fagnu hinu ástsæla skáldi. Á. Hj. Framhald af 12. síðu. þar barið í gegn þrátt fyrir ákveðin amiinæli. Framboðið var svo aldrei borið undir flokksfélögin í lireppum sýslunnar. Þykjast nú flestir Fram- sóknarmenn í Ámessýslu grátt leiknir og finnst lítið fara fyrir virðingu flokksfor- ingja sinna fyrir lýðræðinu þegar til á að taka. Haida þeir því fram, að þott Jftr- undur geti verið óhvikull stuðningsmaður ríkisstjómar- innar og þægur flokksforingj- imum í livívetna gagni það lítið hagsmunamáhnn Árnes- inga, sem eru vanrækt á svo áberandi hátt sem raun ber vitni. Hugur mai-gra Framsóknar- manna í Árnessýslu stóð nú til þess að fá til framboðs yngri mann og rödcari en Jftrund Brynjólfsson. Ilftfðn þeir einkum augastað á Hjalta Gestssyni, ráðunaut. Þetta hcfur nú foringjiun Framsóknar tekizt að hindra mc2 þeim vinnubrögðum sein hér hefur verið greint frá og jafnframt troðið í annað sæti listans reykvísknm embættis- manni. Er nú mikill uggur i Fram- sóknarforustiumi um að illa gangi að heimta fylgi-flokks- ins á framboð sem þannig er til stofnað, því flokksmenn hennar í sýslmmi fara ekki dult með hvert álit þeir hafa á Framsóknar„lýðræðinu“ sem viðhaft var við xmdir- húning og ákvörðun fram- boðsins. Spegill, spegill herrn þu hver ...

x

Nýi tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.