Nýi tíminn


Nýi tíminn - 17.09.1953, Blaðsíða 9

Nýi tíminn - 17.09.1953, Blaðsíða 9
isitii (Niðurlag) Þegar alþýðutoyltingin stej’pti rússnesku borgarastéttinni af stóli, þá var þar grískkatólsku kirkjunni að mæta. Rússneska kirkjan var önnur sterkasta og voldugasta kirkjustofnun i kristnum heimi og svo ihalds- söm og steinrunnin sem írek- ast gat hæft í Rússlandi Zars- ins. Við getum vel ieyft okkur að taka ihæfilegt mark á öllum tröllasögunurn um viðureign kirkjunnar og bolsévikka í Rússlandi. Ekki voru þær allar sérlega smekklegar, og það hafa bæði fyrr og. síðar gerzt ýmsir furðulegir hlutir austur þar. Hver einasta kirkja var brennd að .minnsta kosti þrisvar sinn- um og hver einasti presur drepinn ekki sjaldnar en fjór- um sinnum, auk þess sem þeir dóu svo sex sinnum úr liungri með öllu hinu fólkinu. En þótt við tregðumst við það að taks þessar sögur alveg bókstaf'.ega, þá væri það blindur maður á söguleg lögmál, sem þyrfti að ]áta segja sér það, að baráttan milli þessarar byltingarhreyf- ingar og þessarar auðugu og kreddubundnu kirkjustofnunar hafi verið allhörð. En þeirri viðureign lauk með sigri bolsé- vikkanna, eins og kunnugt er. Nú eru rússnesku Ráðstjóra- arlýðveldin einu ríki heims, þar sem reynsla sögunnar gæti igefið bendingar um, hvers vænta mætti um starfsskilyrði trúarsafnaða og trúarstofnana, þar sem ríkjandi er sósíalskt stjórnskipulag. Nú hefur mér aldrei auðnazt að stíga mínum fæti á þetta margumtalaða iandsvæði, og hef ég því ekki getað kynnzt þessum hiuturn öðruvisi en í gegnum rit og viðtöl við þá menn, sem ég tel trúverðuga. Og í öðru lagi skal ég hreinlega játa það, að svo mikinn áhuga sem ég. hef á því að afla mér heimilda um þróun mála í Ráðstjórnarlýðveldunum, þá hefur áhugi minn ekki fyrst og fremst beinzt að þróun kirkjumá’-anna. En i tilefni af umræðuefni fundarins, þá get ég þó í fyrsta lagi fullyrt það, að þegar rússnesku kommarnir gerðu byltinguna 1917, þá gerðu þeir Það ekki í nafni kristin- dómsins. Ég leyfj mér þvert á móti að igera ráð fyrir því, að þeir hafi sagt og gert sitt af hverju, sem einhverjir. munu hafa kallað beina árás á krist- indóminn, og þeir þá ekkert haft fyrir þvi að bera það af sér. En guð lítur á hjartalagið, og ekki munu allir þeir, sem til mín segja: herra, herra, koma í himnaríki, heldur þeir, igera vilja föðurins, sem um það, sem hann heyrði og sá, var farin að dofna, þá eru þessi orð hans skýr vitnisburð- ur þess, hve öreigaupprun-i kristindómsirrs á sterkar rætur í kristni nútímans, þar sem hún er annað og meira en hræsnin einber, stríðsgróðabrall eða- morðsýki. „Hluttekningin með lítilmögnunum, traustið á mönnunum og sameignin á jarðargæðunum“ -höfðu minnt hann á hans fegurstu drauma: „nálægð anda Krists“. — Þann- Jg getur íarið fyrir sannkristn- um mönnum. Síðan hafa verið stigin stór þróunarskref í Rússlandi, og imargt er þar á annan veg en áður. Enn munu þó forustu- ■þvi er ' ekki menn þar vera- lítt kirkjulegir. Gunnar Benediktsson: Krístiodómur er- í himnunum' Og að neita, að í hinum nýju ráð- stjómarlýðveldum taka' brátt að gerast.ýmsir þeir hlutir, sem snerta til fagnaðar hjörtu manna, sem t aUur kristinn heimur telur í flokki sann- kristnustu manna samtíðarinn- ar. Maður er nefndur Stanley Jones og var til skamms tima einn af frægustu heiðingjatrú- boðum heimsins og er þáð má- skeenn. Hann fór til'Ráðstjórn- arríkjanna rétt eftir J930, og í tilefni af því skrifaði hann rit- gerð, sem birtist þýdd i Kirkju- blaðinu um 1935. Honum lýst ljómandi vel á efnahagsþróun-. ina í Rússlandi: „Rússneska þjóðin ætlar að nota vélina til almannaheilja, ekki einstak!- ingsgróða, og hættan á offram- leiðslu á að hverfa við það, að afurðunum verður skipt jafnt á milli allra‘og til umbóta á lifs- kjörum heildarinnar. Almanna- hagur batnar að sama skapi og fr-amleiðslan eykst. Þannig er haldið opnum dyrum. Svo er ekki hjá oss — og verður ekki fyrr. en vér leggjum samst.arf að undirstöðu í stað sam- keppni“. Þetta geðjast þessum sannkristna manni vitanlega mjög vel, bvi að kristnir menn gleðjast í hjarta sinu, þegar gerðar eru ráðstaf-anir til að tryggja almannaheil!, einnig á tímanlegu sviði. En svo kemur hann að andlegu hliðinni. Hann kom til Rússlands á páskadagsmorgun. „Þetta voru einkennilegustu páskamir. sem ég hef lifað", segir hánn. „Við vorum seinni hluta dagsins i St. ísaks-dómkirkjunni, -sem nú er orðið safn andstætt trúar- brögðunum. Um kvöldið reynd- um við að komast í éinhvérja kirkju, en fundum enga opna, nema eina þýzka kirkju. Trúin virtist hrunin eins og spilaborg. Kristur var krossíestur á ný — dáinn og grafinn og letrað á gröf hans: Engin -upprisa. Þann- ig voru fyrstu áhrifin, stem ég varð fyrir. En þegar ég var kominn ausíur .vfir Rússland, þá fannst mér samt, að hlut- tekningin með lítilmögnunum, traustið á mönnunum og sam- eignin á jarðargæðunum minna mig á nálægð anda Krists og páskaboðskapinn: „Hann er upprisinn", og yrði oss krist-n- um mönnum áskorun um það að láta guðs ríki á jörðu verða að veruleika". Þetta þykir mér ákaflega meríllegur vitnisburður aí munni manns, sem vigt hefur lif sitt þeirri bugsjón að út- breiða kristindóminn, Þótt hann reyndar æti þetta allt ofan í sig síðar, þegap ' endurminningin En nú munu trúaðir ménn þó eiga greiðari leið að njót-a guðs- þjónustu en var fyxir fullum 20 árum. Nú enu korpnar á fullar sættír með ríkisstjórninni og kirkjunni. NÚ hefur kirkjan sætt sig v-ið að halla sér að guði sínum og sv.ala trúarþrá safnaða sinna, en gefa frá sér •allt leynimakk við. óvini ríkis- ins um .að vinna því tjón. Það fer vist ekki milli mál-a, að í Rússlandi einu allra ríkja í Evrópu er fullkomið trúfrelsi. Þar -get-a menn dýrkað guð sinn á hvern þann hátt, er þeir girn- ast, svo lengi sem þe.ir gera ekki öðrum mönnum mein, og stofnað með sér félög um sitt guðsþjónustuhald. Þar liggja refsingar við, ef verið er með glannaskap að trufla guðsþjón- ustuhald manna, hversu spreng- hlægilegt s-em. það kann að vera, því að þar er litið svo á, að það eigi ekki að svívirða -helgidóma annarra manna. En þar sem fullkomið trúfrelsi er í Ráðstjórnarríkjunum, þá geta menn líka óhindrað stofn-að fé- lög til að vinna gegn trúar- : brögðum, og ég hef grun um, að þess háttar félagsskapur sé stjómarvöldunum þar . sízt á móti skapi. En út af því ættum við kristninnar menn ekkj að bera neinar áhyggjur, því að svo þekkjum við mátt drottins, að það væri hið hróplegasta guðlast að efast úm sigur hans, þar sem barizt er á jafnréttis- grundvelli. En það er eins og mörgum kristnum manni hins vestræna heims finnist sem guði séú allar bjargir bannaðar, nema honum sé fenginn stuðn- ingur rikisstjórnanna, svo fé- .legar sem þær eru margar hverjar. Og þar sem nú er svo komið, að það sem Stanley Jones sá aðeins sem framtíðar- draum og áætlanir um almenn- ingsheill, það getum við nú séð augliti til auglit-is, þá ætti hverjum kristnum manni ekki að vera þungt um hjaría, þegar við lítum til þeirr-ar framtíðar, sem guðsríkið á í vændum i skauti sósíalisma og síðar kommúnisma. Þróun kirkjumála í Ráð- st jómarríkjunum er aleina bendingin, sem sagan hefur enn gefið okkur um það, hvernig takast megi sambúð trúar- bragðastofnana og ríkisvalds í sósíölsku ríki. Alþýðuríkin í Mið-Evrópu eru enn á stigi stéttabaráttunnar og innrásai- slyrjaldanna frá auðvaldsheim- inum, þótt nú sé sú -innrásar- styrjöld háð með öðrum vopn- um en á tímum rússnesku bylt- ingarinnar,- Kirkjuleg öfl innan Fimmtudagur 17. september 1953 — NÝI TÍMINN -ú (9 þessara rikja voru miklu meir-a á bandi alþýðunnar en átt hafði sér stað í Rússl-andi á s-inni tíð, en einstakir kirkjunnar menn haf-a þó staðið þar í andskota- flokkinum miðjum, og er það sízt að undra, þar sem mar-gir þeirra standa beint undir -and- legri og embættislegri forustu páfans í Róm, sem er erkifj-andi alls kristindóms og allra menn- ingarmála um allan heim. Við kristninn-ar menn -hér úti á Is- landi biðium þess af öllu okkar hjarta, að alþýðu þessara landa takist sem fyrst að vinna bug á þess konar skemmdaröflum, svo að þar geti sem fyrst dafn- -að trúarlíf með eðlilegum hætti í samræmi við andlegar þarfir fólksins í landinu. Þar sem séra Jóhann Hannes- son, sem flutt hefur s-itt fram- söguerindi, þegar ég flyt þessar iínur, hefur helgað meginhluta lífsstarfs síns kristniboði í Kína og hefur nú orðið að hverfa frá því starfi, eðlileg-a -með miklum sá.rsauka, fyrir aðgerð- ,ir kommúnista þar, þá þykir mér það sennilegt, þegar ég er að semja þessi orð mín austan fjalls, að ástandið í Kina hafi eitthvað -borið á góma í fr-am- söguerindi -hans. Og hvort svo er eða ekki, þá er á allan hátt rétt að minn-ast á þetta 500 imilljóna alþýðuiýðveldi í sam- bandi við umræðuefni fundar- ins. Kína stendur enn á bylt- ingarstiginu á sama hátt og áður nefnd alþýðulýðveldi í Austur- og Mið-iEvrópu. En þess verður að gæta, að Kína er ekki og hefur ekki verið kristið þjóðfélag. Árekstrar -al- þýðubyltingarinnar við kristnar félagsstofnanir hljóta því að verða annars eðlis þar og með öðrum hætti en í löndum, þar sem kristin kirkja hefur verið rikiskirkj-a eða kristindómurinn að minnsta kosti rikjand; trú- arbrögð. í Kína er kristindóm- urinn enn erlend stefna og þar boðuð af mönnum, sem hafa sín sterkustu tengsl, menningar- lega og fjárhagslega, við þá hluta heims, þaðan sem fæst hefur komið -af góðu til þéssar- ar langkúguðu Þjóðar og kín- versk alþýða á sízt góðs frá að vænta í yfirstandandi frelsis- styrjöld hennar. V-ið séra Jó- hann munum vera fullkomlega sammála um það, að sérstak- lega eðlileg afstaða liggur að baki því, hve kínverskum kommúnistum er lítt -gefið um andlega leiðtoga lýðsins vestan yfir járntjald, og það segir ekkert til né frá um afstöðu þeirra til kristinnar trúar. Fréttir Ríkisútvarpsins höfðu það um da-ginn eftir séra Jó- hanni, að erfiðleik-ar þeir, sem kristniboðamir eiga við að stríða í Kína, stafi ekki af andúð gegn kristindómi, heldur -af andúð gegn hinum vestræna heimi, sem annast útgerð þess- ara trúboða, og eðlilegum ótta við, að þeim sé sköpuð aðstaða til skemmdarverka fyrir hönd hinna grimmu og sterku and- stæðinga í vestrinu. Það er líka staðreynd, að um skeið voru kristniboðarnir sízt óvelkomnir frá hendi kommúnistanna. Bar þar tvennt til. Annað var það, að kristin trú leysti -af hólmi miklu steinrunnari trúarbrögð og kom losi á rótgróin hug- myndatengsl, sem voru þræl- siungnir hemlar á þeirri and- legu þróun, sem nauðsyn var á. til þess að kínversk alþýða yrði sem bezt byltingarhlutverki sínu vaxin. Hit-t var það mann- úðar- og menningarstarf, serú trúboðarnir hafa haft með höndum. Þeir leituðust við að, kenna fólkinu að lesa og skrifa, útveguðu lækna og komu upp sjúkrahúsum, og margt fleira gerðu þeir til að lin.a þjáningar langþjáði'a manna. Mér hefur veitzt sú ánægja -að fá að kynn- ast persónulega Islendingi, sem um alllangt skeið stundaði kristniboð í Kína, Ólafi Ólafs- syni kristniboða. Ég vona, að honum sé það ekki á móti skapi, þótt ég geti þess, að þegar fundum okkar fyrst bar saman sumarið 1928, þá sagði hann eitthvað á þá leið, að það væri erfitt -að vera trúboði í Kína án þess að hafa samúð með kommúnistunum þar sök- um þess áhuga, sem þeir hefðu á því að bæta afkomu hinnar þjáðu og fátæku og fáfróðu al- þýðu. Mér verða ógleymaníegar frásagnir Ól-afs af starfi bans austur þar og lýsingaraar á lífskjörum fólksins. Mér var það fullkomlega ljóst, að megin- þátturinn í starfi hans var -mannúðarstarf í þágu blá- sna-uðr-ar alþýðu, sem stóð á svo lágu mennin-garstigi, að manni hrýs hugur við. Mér mun seint líða úr minni sá fögnuður hjartagróins mann- kærleik-a, sem leiftr-aði af svip hans og orðum, þegar hann var að segja frá áran-gri þeim,.sem hann náði með -að bæta kjör þessa fólks og auk,a þekkingu þess og kunnáttu í þeim efnum sem talið er sjálfsagt hér í vestrænum heimi að hver mað- ur fáj ;að njóta. Mér duidist ekki, að við þetta starf hafði hjarta hans fyrst og frem.-t verið bundið, þótt jafnvel hann sjálfur kunni að álíta, að atfn- að haf-i verið þar enn ríkara. Ég leyfi mér ekki að óreyndu að efa, að þannig sé einnig við- horf -annarra þeirra, sem helg- að hafa líf sitt þessu starfi. Ég skil það vel, að þessum mönn- um sé það viðkvæmt mál, þeg- ar þeir eru knúðir til að hverfa frá þvL En þrátt fyrir Það leyfi é-g mér nú í lok máls míns að varpa fram þessum spurningum: Hvort munu elcki hjörtu þess-ara manna titra af fögnuði, ef öllum þessum hundruðum milljóna verður kennt að lesa og skrifa á ör- fáum árum, ef hundr-uðum milljóna þessarar örsnauðu og kúguðu þjóðar er gefin ný trú á mennina og lífið, dregið úr örbirgðarstakknum og leidd til mennin-garríkrar lífstilveru? Munu þeir ekki lof-a -guð sinn hástöfum fyrir að frelsa þessa þjóð undan oki Þess arðrán-, sem leitt hefur yfir hana hung- urmorð milljóna á einum gróð- ursælast-a bletti jarðartnnar, losa þessa þjóð úr viðjum þeirra misþyrminga, sem menn- ingarleysið bakar alþýðanni? Geta þessir menn átt nokkia . ósk heitari en þá, að þessi f.iö!- mennasta þjóð heimsins, stm aldrei hef-ur leyft sér að íara með stríð á hendur annarri þjóð, fá; að vera í friði með að byggja upp þjóðfélag sitt og ibæta sér upp ósegjanlegan ar- móð margra -alda? Og mun ekki hjarta þeirra svella -af glóandi , Framhald á. 5. síðu j

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.