Nýi tíminn


Nýi tíminn - 22.07.1954, Blaðsíða 7

Nýi tíminn - 22.07.1954, Blaðsíða 7
I. Rætur vefjast vítt í mold Ég rakst um daginn á rit- dóm, sem mér þótti svo merki- lega ómerkilegur, að mér datt í hug, að rétt væri að rita um hann nokkur orð, ef verða msetti einhverjum til skilnings- auka á óhugnan andlegrar lífs- tilveru á íslandi nú til dags. Þá datt mér líka í hug annar rit- dómur um sömu bók, en hann hafði ég lesið, áður en þetta blessaða ár hóf göngu sína. Þá vakti sá ritdómur ekki at- hygli mína frekar en fjöldi annarra ómerkilegra ritsmíða, en þegar þessir tveir ritdóm- ar eru komnir hlið við hlið, þá verða þeir hvor um sig enn eftirtektarverðari, þeir fyUa hvor annan upp, þeir eru tveir stofnar af sömu rót. Og þegar maður fer að gramsa um rætur, þá kemur margt í leitir, sem mann grunaði ekki í upp- hafi. Víða liggja rætur um neðanjarðarmyrkur hins and- lega lífs. Á yfirborði rekst mað- ur á tvær plöntur, hvora sín megin þykkra múra, aðra föla og veiklulega undan sól, hina bústna og gróskumikla sólar- megin, og við rannsókn kemur í ljós, að þær eru báðar af sömu rót. í djúnum moldar iiggja í flækjum upptök gróðurs, er breiðir sig á hinn fjölbreytt- asta hátt um víðáttur gróður- lendisins augliti til auglitis við skin sólar. Við sjáum plöntur af einum stofni hjara í kyrk- ingi, þar sem öll skilyrði vúrð- ast til döfnunar og grósku, og þetta fáum við ekki skilið, fyrr en við rífum til í myrkri jarðvegsins- og sjáum rætur þeirra kyrktar og helétnar af fínnarlegum rótum, sem teygja sig og hringast niðri í myrkr- inu. — Þannig verða rakin saman hin fjarskyldustu fyrir- bæri. Hreinhjörtuðustu vinir minir og veikleiki þeirra birtast óðar en varir í margslungnu sambandi við óhjúpaða glæpa- mennsku samtíðar og fortiðar, og maður rekst allt í einu á rætur vanþroska þeirra og van- skapnaðar. — í sambandi við einn ómerkilegan ritdóm, og ekkert síður þótt hann sé ó- merkilegri en allir aðrir rit- dómar sem maður hefur lesið, getur manni allt í einu gefizt útsýn vítt of veröld alia, hann kemur anda manns í snertingu við hin stór- brotnustu viðfangsefni mann- kynsins um nýtt líf eða alls- herjardauða á næstu grösum, hann leiðir mann til skýrari sjónarmiða á öflum þeim, sem við er að berjast á vegum þeirrar hógværu viðleitni að forða lífi þessarar jarðar frá algerri tortímingu. Óvinur mannkynsins skýrist betur en áður, eðiislæg viðbrögð hans að baki huglægs vopnaburðar. Viðhorf vinar míns verða líka skýrari, stj’rkur hans og veik- ieiki. Þegar maður eitt sinn tekur að elta hnoðað, sem rennur viðstöðulaust og mark- visst að dyrum helheima, í ótal krókum, eftir hvers konar leynigöngum, þá þarf ekki að efa, að margt beri fyrir auga, sem mann í upnhafi ferðar órar ekki fyrir. — Þegar maður lítur öðru sinni yfir þann rit- dóm, sem allra ritdóma er GUNNAE BENEDIKTSSON: DIIGCR EÐA DREP Hugleiömgac um menn og málefni. líf og danða. hugsjónir og siðleysi. Kornstrandiz og París. Fyrsta grein stórbrotnastur að hvers konar bókmenntalýtum, þá er eins og maður standi yfir neðansjávar hyldýpisgjótum, þar sem maður veit byltast hvers konar ó- freskjur, sem eðli sínu sam- kvæmt leita aldrei upp til yf- irborðs til að birtast þar mann- legu auga, en eru þó þáttur í allsherjar lifi, og frá ginnunga- gapi hyldýpanna kvíslast straumar viðsvegar um heims- höfin. Kafi maður hér niður, þá veit maður, að það velta yfir mann sýnir, hver annarri ömurlegri og ógeðslegri, hver annarri lærdómsríkari. Þetta ó- geðslega gap er þrungið fyrir- heitum mikilla sanninda um rök sjálfra lífsörlaganna. Þess vegna vísar maður öllum við- bjóði á bug og sekkur sér í djúpið til mikilvægra rann- sókna. II. Andanefjulýsi og stórmannleg leikfimi Ritdómar þessir eru um síð- ustu Ijóðabók Kristjáns frá Djúpalæk, „Þreyja má þorr- ann“, sem út kom á ofanverðu síðasta ári. Sá miður umtals- verði birtist í Alþýðublaðinu 11. desember, og var yfirlæti ekkert í tímavali honum til birtingar. Hinn ritdómurinn kemur aftur á móti sex mán- uðum síðar, þegar obbinn af haustbókunum er af dagskrá. Þar er því ekki um að ræða rit- dóm, sem skrifaður er fyrir siðasakir um nýútkomna bók. Hann er skrifaður af köllun um bók, sem hefur þrýst sér inn á vitundina og ekki gleymzt. Hann birtist í Tíman- um 5. júní. Ritdómar þessir eru skrifað- ir af mönnum, sem eru lýsandi stjömur i islenzkum bók- menritaheimi nútímans. Rit- dómari Tímans, Indriði G. Þor- steinsson, hefur verið sæmdur vérðlaunum af bókmenntafull- trúum Sambands íslenzkra sam- vinnufélaga fyrir smásagna- gerð. Þó er nafn Helga Sæ- mundssonar, ritdómara Alþýðu- blaðsins, enn stærra og skin stjörnu hans enn skærara á bókmenntahimninum. Sjálfur löggjafi þjóðarinnar hefur út- nefnt hann til 'þeirrar lista- akademíu, sem hefur æðsta vald í mati á listgildi verka hér á landi, og er þá einkum met- in dómhæfni hans á sviðum rit- listar. Að þessu athuguðu skyldi maður því ætla, að báðir þess- ir menn ritdæmdu bókmennt- ir af mikilli virðingu fyrir því göfuga starfi. En reyndin er þveröfug við það, sem við mætti búast. Á bak við hvorugan ritdóminn finnur maður snefil af heilli eða heiðarlegri hugsun, engin viðleitni að skýra svo mikið sem eina einustu ljóðlínu, dóm- ar settir fram í innantómum og tilgerðarlegum slagorðum, mál hins meira ritdóms mjög óvand- að, þar er krökkt af hverskon- ar mállýtum og málvillum svo stórbrotnum, að sökin getur vart verið önnur en mjög full- komið skeytingarleysi. Skal nú vitnað í nokkur dæmi staðhæf- ingum þessum til sönnunar. Báðir hefja þeir ritdóma sína með yfirlætismiklum há- tíðleika. Indriði þenur sig á endur-minningum um gistivin- áttu og ástúðlega konu og hreinan galskap og lax í Ölfus- á. Inngangur Helga er nær við- fangsefninu Hann gefur lýs ingu af skáldinu á breiðum grundvelli og bregður þá fyrir sig líkingum, 'vo sem háttur er mikilla andans manna. Hann segir, að Kristján sé „laus í rásinni og einkennilegur í and- legu vaxtarlagi. Þó vantar ekki fvrirferðina. Kristján er til dæmis í senn dulspekingur og kommúnisti. Hann hefur höfuðið uppi í skýjunum en fæturna Fimmtudagur 22. júlí 1954 — NÝI TÍMINN — (7 niðri i forinni og tekur svo stundum upp á þ.ví. að hafa endaskipti á sjálfum seríj‘ Mað- ur kemst ekki hjá þvi áð veita eftirtekt svona háfleygri lík- ingu og leita merkingar henn- ar. Og merkingin getur engin önnur verið en sú, að höfuðið hefur hann að jafnaði uppi í dulspekinni en fæturna niðri í kommúnismanum, og svo þegar hann hefur endaskipti á sjálf- um sér, þá skellir hann höfð- inu niður í kommúnismann en sveiflar löppunum upp í dul- spekina. „Slíkt er stórmannleg leikfimi“, bætir hann við. Annars er ritdómur Helga að mestu leyti upptalning á kvæðum bókarinnar og hverju þeirra gefin einkunn með einu eða fleiri orðum, dómurinn á auðsjáanlega að vera mjög hnitmiðaður. Þrjú eru „léleg“, „hvorki fugl né fiskur“, önnur þrjú „eru naumast annað en rím“, og enn tvö „eru harla innantóint rím“. Eitt er „dágóð hugmynd, en skáldið nær eng- um tökum á verkefninu“, og önnur tvö „missa bæði marks, og er þó færið stutt“. Þá eru nefnd tvö kvæði, sem „eru nán- ast danslagate'xtar*1. Annað þeirra kvæða er „Söngur verka- manna“, hefur verið gert lag yið það, og virðist það vera á góðum vegi með að verða bar- áttusöngur íslenzkrar verka- lýðshreyfingar. Ef til vill þekk- ir Helgi ekki mun 4 dansi og verkalýðsbaráttu. Enp eru nefnd tvö kvæði, sem eru „leir- burður“. En hér hafa aðeins verið nefnd lélegustu kvæðin, og vík- ur nú sögunni að „þeim kvæð- um bókarinnar, sem geta talizt sæmileg". Eitt „þolir illa gaum- gæfilega skoðun“, annað „er , Þjóðvlljanum hefur horizt ný ritgerð eftir Gunnar Benediktsson, og hirtist upp- 1 liaf hennar hér á siðunni í dag. Gunnar leggur þar út , af tveimur ritdómum um ný.justu ljóðabók Iiristjáns frá Djúpalvk, en notar þar tilefni til að koma víða við í bókmenntum og menningu , von-a tíma af þeirri rit- snilld sem honum er gefin. Er ekki að efa að þessi rit- 1 gerð muni vekja mikla at- hvgli og umraeður. ( Ritgerðin mun birtast hér í biaðinu í fimm köflum með siuttu millibili. 1 J viðunanlegur danslagatexti." („Sviðinn verður saga. Sorg- in verður ljóð“). Enn eitt „væri dágott kvæði, ef Heine, Jónas og Þórbergur hefðu aldrei’ verið til“. Hið f jórða „er smellin hugmynd, en grefst undir helvítis ríminu og ó- vandvirkninni“, hið fimmja „enn smellnari hugmynd, en hún deyr í fæðingunni". Þá ér eitt; „Kristjáni hefur gleymzt að gæða það skáldskap, og slikt er vitanlega tílfinnanleg vönt- un,“ annað er „laglegur texti við danslagið harts Gunnars M. Magnúss". Þá er enn eitt I í hópi þessara kvæða, „sem geta talizt sæmileg“, „eins konár brandari, en undirstöðulítill eins og andanefjulýsi". Helgi þyrfti að gæta varúðar gagn- vart likingum. Andanefjulýsi er ekki undirstöðulítið í þess orðs venjulegu merkingu, það skortir ekki næringargildi, en kvað hafa þann ósið að ganga ómelt niður af manni. Helgi skyldi þó ekki vera að tjá persónulega reynslu sína áf neyzlu nefnds kvæðis. Að þessu loknu „fer að vænkast hagur Kristjáns“. Eitt „skortir herzlu- mun listrænnar fullkomnunar", annað „væri ágætt kvæði, ef skáldið hefðl ekki vænrækt að slá í það botninn", enn eitt „helzt til laust i reipunum“. Að lokum nefnir ritdómarinn átta kvæði, sem hann telur „ágæt- iskvæði“, og birtir þrjú þeirra sem sýnishorn. — Það vekur enga furðu að fengnum lýsing- um á öllum þessum kvæðum, þótt ritdómarinn segi, að bókin valdi vonbrigðum. Hitt er dá- lítið einkennilegra, að allt í einu kemur sú yfirlýsing, að þessi bók bendi til þess, „að Kristjáni sé að vaxa andlegur ásmeginn, því að þetta er s^iu betri bók en „Lifið kallar“, og beztu kvæðin bera af þvi, sem skáldið hefur áður ort“. Það er mjög athygli vert atriði, að menn skuli verða fyrir von- brigðum af skáldi, sem er í greinilegri framför. En nánar um það síðar. III. F ramdráttaratriði fyrir sína persónu Ritdómur Indriða er hinum miklu athyglisverðari á allan hátt. Maður er ekki vanur að taka hart á ruglingslegri kommusetningu og stafsetning- arvillum í blaðagreinum, þótt fjallað sé um fagurfræðileg efni. Menn gerast nú allhirðu- lausir um setningu lestrar- merkja, og fylgir hver höfund- ur mjög sinni reglu, og í blaða- greinum er alltaf skylt að gera ráð fyrir, að um prentvillur geti verið að ræða, þegar út af ber. En varla hygg ég það tilviljun, að í hvert sinn sem samanburðarliður kemur í miðri setningu, þá er komma á undan þeim lið, en engin á eftir. Þá verður það að telj- ast mjög ámælisverð rétlrit- unarvilla að rita karlkynsgreini með einu n-i í þolfalli, en sú villa endurtekur sig, svo að vart getur verið um slys að ræða. — En þetta eru miklir smámunir móts við aðra hluti málfars eðlis. Hinar hroðaleg- ustu og fáheyrðustu málvillur reka hver aðra. Hann gefur sömu yfirlýsingu og Helgi, að bókin valdi honum vonbrigðum, „kann þó að vera góð bó.k fyrir þvi“. (Leturbr. mín). „Þó fyrir því“ segir enginn maður með Framhald á 10. síðu.

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.