Nýi tíminn


Nýi tíminn - 16.01.1958, Page 6

Nýi tíminn - 16.01.1958, Page 6
6) — NÝI TÍMINN — Fimmtudagur 16. janúar 1958 Ntl TlMINN ÓUefindl: S6sla1iataflokkurinn. Rltstjon 0> aDyreBaimaBur: Asmundur SigurSsson. — Áskrlftargjald kr. 60 & árl. PienUmlSJa ÞJóSvUJans h.I. Hræðslubandalag og Alþýðubandalag Isíðustu Alþingiskosningum var eining vinstri aflanna íTijög ofarlega í hugum manna, Tilraunir þser sem gerðar voru til algerrar samstöðu mistókust að visu, en tvær fylkingar komu fram og börðust um fylgi íhaldsandstæðinga, ann- arsvegar Alþýðubandalagið sem stofnað var að frumkvæði verklýðshreyfingarinnar á grundvelli sameiginlegra stefnumála verklýðsflokkanna, hins vegar Hræðslubandalagið sem fyrst og fremst miðaði til- veru sína við misnotkun á gild- andi kosningalögum. f kosning- unum kvað almenningur svo upp dóm sinn, og hann varð ótvíræður; Alþýðubandalagið varð næststærsti flokkur þjóð- arinnar, en tilraunir Hræðslu- bandalagsins til þess að hremma meirihluta á þingi út á þriðjung kjósenda mistókust með öllu. Það var augljóst að alþýða landsins batt vonir sín- ar um einingu vinstri aflanna við sigur Alþýðubandalagsins og vaxandi gengi. eynslan hefur þá einnig sannað hvor fylkingin var Iífvænleg og heilbrigð. Alþýðu- bandalagið hefur haldið áfram að eflast og þröast og stendur enn að framboðum um allt land í bæjarstjórnarkosningun- um 26. janúar. Hræðslubanda- lagið er hins vegar steindautt; aðeins í elnum kaupstað á Iandinu, Seyðisfirði, er sam- eiginlegt fi'amboð Aiþýðuflokks og Framsóknar en hvergi ann- arstaðar. Hræðslubandalagið hefur þannig verið vegið og léttvægt fundið, bæði af al- menningi og forustumönnum Framsóknar og Alþýðuflokks; undirstaða þess var ekki sam- eiginlegar hugsiónir heldur að- eins sameiginleg hagnýting á veilum í íslenzkum I6gum. n þótt til Hræðslubaudalags- ins væri stofnað á annar- Jegum forsendum af forustu- mönnunum taldi allur þorri af fylgismönnum Hræðslubanda- lagsins að hann væri ,að búa í haginn fyrir vinstri samvinnu með stuðningi sínum við það. Reynslan hefur nú sýnt á ó- véfengjanlegan hátt að svo var ekki, og allir vinstri sinnaðir menn þurf.a því að endurskoða afstöðu sína og eru að gera það. Mjög víða hefur nú tek- izt allsherjar samvinna vinstri flokkaijna. og það á stöðum þar sem fvrir hálfu öðru ári var ekki tekið i mál að vinna með „kommúnístum“. Einkar glöggt kemur þróunin í ljós á Norð- firði. Þar var Alþýðuflokkur- inn stærsti flokkur bæjarins fyrir nokkrum árum, nú býður hann ekki fram sjálfstætt held- ur er genginn í Alþýðubanda- lagið. í>að sem úrslitum réði þar var samvinna hægri klík- unnar i Reykiavík við íhaldið í verkalýðshreyfingunni, og sú stáðreynd mun hafa sín stór- felldu áhrif alstaðar á land- inu. 17'ylgismenn Framsóknar og * Alþýðuflokks þurfa að gera sér ljóst að hrun Hræðslu- bandalagsins stóreykur hætt- una á því að atkvæði eyðilegg- ist svo hundruðum og þúsund- um skiptir víða um land, t. d. hér í Reykjavík. Hér fengu AI- þýðuflokkurmn og Framsókn- arflokkurinn sameiginlega rúm 6000 atkvæði, en sú tala nægði fyrir þremur bæjarfulltrúum. Kunnugir telja að sú atkvæða- tala skiptist sem næst til helm- inga, ca. 3000 atkvæði á hvorn. Það rnerkir að þegar þeir bjóða fram hvor í sínu lagi fá þeir aðeins einn fulltrúa hvor, og að óbreyttum aðstæð- um myndu þannig fara í súg- inn allt að tvö þúsund atkvæði hjá flokkunum báðum. Það gef- ur auga leið að vinstri sinnaðir menn innan þessara flokka geta ekki brugðizt við þessari staðreynd á annan hátt en þann iað kjósa Alþýðubanda- lagið, efla langsterkasta and- stöðuflokk ihaldsins í Reykja-' vík og það eina bandalag sem reynzt hefur lífvænlegt. Að öðrum kosti verða atkvæði þeirra aðeins stuðningur við í- haldið. Friðsamleg stjórnarskipti Sjálfsfæðisflokknum í Reykja- vík er hálfórótt vegna þess hve aðdragandi bæjarstjórnar- kosninganna nú er hávaðalítill. Sagt er að foringjunum þyki allþungt fyrir fæti, og smalarn- ir rekist á ótrúlega marga fylg- ismenn Sjálfstæðisflokksins, sem muni útsvarshneykslið í sumar, hafi allt á hornum sér og láti orð liggja að því að réttast væri að lofa Sjálfstæð- isflokknum að hvila sig frá því að stjórna bænum. Leið- togar Sjálfstæðisflokksins gera sér ljóst að það þarf enga hávaðasemi til að setja kross á réttan stað á Kjörseðil, og óttast mest af öllu að róleg yf- irvegun ráði gerðum kjósenda. að mun þó óvanalegt að í- haldsblöð í Rej'kjavik láti sjást að hjartað sé komið eins neðarlega hálfum mánuði fyr- ir kosningar og hjá ritstjóra Vísis í g'ær. Auðfundið er á Ieiðara blaðsins að einnig hon- um er órótt ef róleg yfirvegun og köld einbeittni eiga að vera eihkenni þessara bæjarstjórn- arkosninga. Særir hann flokk- inn að berjast fyrir völdum Kókakólabjöms og Bjarna Ben., Thórsaranna og Gunnars Thor- oddsen. „Kæruleysi örfárra kjósenda — kannski aðeins eins eða t\reggja — getur haft meiri og afdrifaríkari afleiðingar en menn gera sér grein fyrir i fljótu bragði", segir Vísisrit- stjórinn, og er mun meiri skjálfti í röddinni en vant er. Hlntlanst belti og hermál rædd á Norðurlöndum Atök um hernaðamtgjöld og kjarnorkuvopn milli herforingja og ríkisstjóma Noregs og Danmerkur Staða Noregs og Danmerkur innan A-bandalagsíns hefur mjög verið á dagskrá undan- farnar vikur. Á fundi æðstu manna bandalagsríkjanna í París fyrir jólin sýndi sig að forsætisráðherrar þeirra, þeir Gerhardsen og Hansen, voru fremstir í flokki þeirra, sem höfnuðu fomstu Banda- ríkjanna; utanríkisstefnu Dull- esar og hernaðarfyrirætlunum Eisenhowers. Þeir lýstu yfir, að Bandaríkjamönnum þýddi Finn Moe ekki neitt að leita til þeirra um stöðvar fyrir kjarnorkueld- flaugar sínar, Danir og Norð- menn væru fastráðnir í að leyfa engar erlendar herstöðv- ar í löndum sínum á friðar- tímum. Jafnframt hvöttu þeir til viðræðna við Sovétríkin um ráðstafanir til að draga úr við- sjám í Evrópu og binda endi á vígbúnaðarkapphlaupið. Ger- hardsen framdi meira að segja þá höfuðsynd gegn stefnu Dull- esar og yfirherstjórnar A- bandalagsins, að hvetja til ná- kvæmrar athugunar á til'ögu Pólverja um að enginn kjarn- orkuvígbúnaður eígi sér stað á belti um miðja Evrópu. i~terhardsen og Hansen hafa ^ fengið margt óblítt orð í ejrra hjá bandarískum blöðum og bandariskum stjómmála- mönnum fyrir afstöðuna á Par- ísarfundinum. Sumir tala um sósíaldemókratíska herferð gegn A-bandalaginu og benda á að Verkamannaflokkurinn brezki og þýzkir sósialdemó- kratar eru andvígir mörgum höfuðatriðum þeirrar stefnu, sem Bandaríkjamenn rejma að þröngva upp á bandalagsríkin. Aðrir fjargviðrast yfir að hlut- leysisstefna vaði uppi í A- bandalaginu. Einn >af þeim blaðamönnum Bandaríkjanna, sem margfróðastur er um evr- ópsk stjómmál, hefur nýlega látið í ljós álit sitt á afstöðu Gerhardsens og Hansens á Parísarfundinum. Hann er C. L. Sulzberger, sonur útgefanda New Yoric Times og yfirmaður fréttaritara blaðsins utan Bandaríkjanna. Reynir hann að hughreysta landa sina með því að ekki þurfi að óttast að Nor- f--------------------- Erlend t f ð i ti <3 i >--------------------✓ egur og Danmörk rjúki úr A- bandalaginu einhvern næstu daga, enda þótt forsætisráð- herrar þeirra hafi hafnað bandarískum eldflaugastöðvum, en segir einnig; „Ein kynleg- asta hhð hins nýja viðhorfs (í samskiptum Bandarikjanna og bandamanna þeirra í Evrópu) er að ríki á meginlandinu virð- iast í fyrsta skipti geta lejdt sér einangrunarstefnu, þar sem hinsvegar jafnvel hinir æstustu einangrunarsinnar í Banda- ríkjunum verða nú að viður- kenna að þéssháttar draumar hafa ekki við rök að stj’ðjast. Svo er mál með vexti að með tilkomu langdrægra eldflauga verða Bandaríkin og Sovétríkin tæknilega fær um að skjóta hvort annað í rúst án þess að árásimar bitni á svæðunum sem í milli þeirra liggja. Þess- ari hugmjmd velta menn nú mjög fyrir sér á Nortiurlöndum. Þar hefur hlutleysishefðin ver- ið sterk kynslóð eftir kynslóð. Svíar hafa alltaf haldið því fram að hlutlej’si þeirra væri rökrétt einmitt af þessari á- stæðu. Meira að segja áður en hin fjarstæðukennda öld eldflauganna rann upp, var staðhæft í Stokkhólmi að land- Thorkil Kristensen ið gæti komizt hjá stríðsógnum, jafnvel þótt sprenguflugvéla- flotar stríðsaðila færu grenj- andi um háloftin j-fir því. Þetta viðhorf speglast nú í Noregj og Danmörku" (New York Times 30. des. 1957). K Á Norðurlöndum verður mönnum einkum tiðrætt um tillögurnar sem fram hafa komið um 'nlautlaust belti í Mið-Evrópu. Einn af forustu- mönnum Vinstri ílokksins, ann- ars stærsta flokks Danmerkur, Thorkii Kristensen fyrrverandi fjármálaráðherra, ræddi þetta mál ýtarlega í greln í Kaup- mannahafnarblaðinu Da.gens Nyheder á mánudaginn. Hann segir m. a.: „Líti maður á hug- myndina um hlautlaust belti sem samnirigsatriði, verður þvi ekki neitað, að hún er athug- unar verð. Við getum ekki — og alls ekki eins og nú háttar til — búizt við því að Sovét- ríkin hörfi úr stöðvum sinum í Austur-Evrópu án þess að fá eitthvað í staðinn". Kristensen er þeirrar skoðunar, að hemað- iarlega væri hlutlaust svæði þýðingarmeira en margir vilja vera láta. Jafnvægið í gereyð- ingarvopnum hafi aukið þýð- ingu hefðbundins vopnabúnað- ar, og ef 1000 kílómetra breitt hlutlaust belti kæmi til E. J. C. Quistgárd sögunnar, væri hættunni á skyndiárás með slikum vopnum bægt frá Síðan bend- ir hann á að mikil breyting yrði á stöðu Danmerkur, ef Þýzkaland og Pólland yrðu hlutlaus. Þá væri úr sögunni hætta sem Danmörku stafaði a£ sovézkum stöðvum á suður strönd Eystrasalts. Loks bendir Kristensen á að Danmörk yrði mjög einangrað A-bandalags- land, ef Þj’zkaland færi úr A- bandalaginu. í Noregi hefur Finn Moe, formaður utanríkis- málanefndar Stórþingsins, ítrek- að tillögu Gerhardsens forsæt- isráðherra um að Vesturveldin fallist á að ganga til samninga um uppástunguna um svæði án kjarnorkuvopna í Mið- Evrópu. Einu aðilarnir í Noregi og Danmörku, sem látið hafa í Ijós verulega óáqægju með stefnu rikisstjómanna í her- málum, eru hershöfðtngjarnir. E. J. C. Quistgárd aðmíráll, yfirforingi herafla Danmerkur, heíur látið þá skoðun í ljós að Danir eigi að þiggja boð Banda_ rikjamanna um kjamorkuvopn. Sama sinnis er Bjarne Öen hershöfðingi, forseti norska her- ráðsins. í viðtali við hermanna- blaðið Mannskapsa visa segir hann: „Við höfum brýna þörf á þeim aukna mætti sem kjam- Framhald á 11. síðu.

x

Nýi tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.