Nýi tíminn


Nýi tíminn - 12.02.1959, Page 3

Nýi tíminn - 12.02.1959, Page 3
Fimmtudagur 12. febrúar 1959 Nýl TÍMINN (3 Lúðvík Jósepsson hefur iagt fram á þingi frumvarp það sem hér fer á eftir 1. gr. Stofna skal, olíuverzlun rikisins. Hún er eign ríkisins, sem ber ábyrgð á skuidbinding- um hennar. Ríkissjóður ieggur hennj til nauðsynlegt stofn- og rekstrarfé, o'g er heimilt að taka það að láni. 2. gr. Hlutverk olíuverzlunar- innar er að annast öli innkaup og ílutninga til landsins á brennsluolíum (gasolíu, ’ diesel- olíu, fuelolíu, Ijósaolíu, benzíni og flugvélabenzíni). smurnings- oliuru og olíufeiti. Hún skal sjá um flutning olíuvaranna í birgðastöðvar í innflutningshöfn- um. Enn fremur skal hún leitast við að íjölga innflutnjngshöfn- urn olíuvara frá þvi, sem nú er, í því skyni að auðvelda dreif- Jngu þeirra. 3. gr. Olíuverzlunin skal semja við eigendur olíubirgðastöðva um leigu þeirra ti) þess að tryggja nægilegar birgðageymsl- Ur Náist ekki samkomulag um leigusamninga, er heimilt að taka birgðastöðvar leigunámi. Enn fremur er olíuvei-zluninni heimilt að byggja nýjar birgða- stöðvar, ef nauðsjm krefur. 4. gi'. Olíuverzlunjn selur oliu- vörur í heildsölu til olíusamlaga, oíufélaga og annarra aðila, sem annast dreifingu varanna. Hún skal ekki hafa með höndum smá- söludreifingu, en þó er henni heimilt að selja opinberum aðil- um svo og þeim aðilum öðrum, er kaupa mikið magn í einu til eigin nota. Henni skal einnig skylt að sjá um, að jafnan séu til í innflutningshöfnum nægar birgðir oliuvara. 5. gr. Oliuverzlunin skal selja olíuna á kostnaðarverði að við- bættri álagningu, sem svarar kostnaði við rekstur verzlunar- innar. 6 gr. Stjórn oliuverzlunarinn- ar skipa 5 menn, sem kosnir eru af sameinuðu Alþingi til fjög- urra ára í senn. Ráðherra skipar formann úr hópi stjórnarmanna. Einnig skulu á sama hátt kosnir jafnmargir varamenn, Stjórnin ræður framkvæmdastjóra og hef- Lúðvík Jcsepsson leggur til að stofnuð verði Olíustöðin á Klöpp. Olíuverzlun ríkisins Annist öll innkaup og flutningo tii londsins * * ' • _ ••*;» , ; . - , , I á olíum og benzíni ur umsjón með i-ekstri verzlun- arinnar. Endurskoðunardeild fjármála- ráðuneytisjns annast endurskoð- un reikninga olíuverzlunarinnar. 7 gr. Olíusamlög eða aðrir að- ilar, sem bundnir eru viðskipta- samningum við olíufélögin, þeg- 'ar olíuverzlunin tekur til starfa, skulu lausir undan þeim samn- ingum án skaðabóta. 8. gr. Birgðir þær af olíuvör- um, sem verða í birgðasöðvum þeini. er olíuverzlunin fær til umráða, samkvæmt ákvæðum 3. gr. skal hún kaupa á kostnaðar- verði. Náist ekki samkomulag við eigendur, er heimilt að taka vörurnar eignarnámi. 9. gr. Önnur atriði, er snerta framkvæmd þessara laga, þ.á.m. meðferð og sala þeirra birgða sem íyrir verða á birgðastöðvum sem olíuverzlunin tekur ekki á lejgu, þegar hún tekur til starfa, Auglýsing Fargjöld með vögnum Strætisvagna Reykja- vikur verða írá og með 6. febrúar sem hér segir: 1. Farmiðagjöld fullorðinna 2. Farmiðaspjöld fullorðinna með 42 miðum 3. Farmiðaspjöld fullorðinna með 6 farmiðum 4. Fargjöld bama 5. Farmiðaspjöld barna með 10 farmiðum skulu ákveðin í reglugerð. 10 gr. Brot á lögum þessum og reglugerðum eða öðrum á- kvæðum, er sett kunna að verða samkvæmt þeim, varða sektum, allt að 200 þúsund krónum, og skal farið með mál út af slíkum brotum að hætti opinberra mála. 11 gr. Lög þessi öðlast gildi 1. september 1959. í greinargerð segir flutnings- maður: Frumvarp samhljóða því, sem hér er flutt, lagði ég fram í fyrrverandi ríkisstjórn þann 16. okt. 1956 og óskaði eftir, að rík- isstjómin flytti málið. Um það tókst ekki samkomulag, þar sem Framsóknarflokkurinn vildi ekki á það íallast. Siðar var þrásinnis leitað eft- ir því í ríkisstjórninni, hvort samkomulag gæti ekki tekizt um flutning málsins, en svo varð ekki. Frumvarpið er flut. hér ná- kværnlega eins og ég lagði það fram í ríkisstjóminni, að öðru leyti en því, að nú er gert ráð fyrir, að gildistökudagur verði 1. sept. 1959 í stað 1 jan. 1957 áður Tillögu minni í rikisstjórn- inni fylgdi svohljóðandi grein- argerð: Hin síðari ár hafa verið flutt á Alþingi allmörg frumvörp um ríkhverzlun með olíu og olíuvör- ur Hefur flutningur þeirra verið bein aflsiðing þess. að allmikill- ar og vaxandi óánægju hefur gætt með ríkjandi fyrirkomulag á innflutningi og verzlun með þessar vörur, enda er það kunn- ugra en frá þurfi að segja, að skapazt hefur veruleg tortryggni í garð þeirra aðila, sem þessa verzlun hafa annazt, og grunur um, að með henni væri tekinn ó- eðlilegur gróði, sem notendur olíuvaranna og þá fyrst og fremst framleiðslufyrirtækin yrðu að greiða, »i>eim tillögum, sem fram hafa komið undanfarin ár um ríkis- verzlun með olíuvörur, hefur yf- irleitt verið það sameiginlegt, að þær hafa gert ráð fyrir, að verzlunin annaðist bæði inn- flutning, sölu og dreifingu. Með þessu frumvarpi er ekki svo langt gengíð heldur e: hér farin sú millileið, að ríkið annist að- eir.s innflutning og héildsöluna. Innkaup oiíuvaranna eru nú þegar komin í hendur ríkisins, sem eðlileg afleiðing þess, að um vöruskiptasamninga er að ræða. Hinsvegar hefur sú skoðun geri allmjög vart við sig, að ein- mitf í sambandi við flutning- ana til landsins væri tekinn ó- eðlilega hár skattur af 'fram- leiðslúnr.i og öðrum notendum olíuvaranna, og hefur sú skoðun beinlinis verið studd með ýms- um 'upplýsingum, sem beint hafa komið frá innflytjendum sjálf- um. Til þess að tryggja eðlþegt og' rétt heildsöluverð þessara vara og losna við allar deilur og tortryggni um óhóflegan milli- liðakostnað í sambandi við inn- kaup og flutning til landsins hlýtu. því að teljast eðlilegt og réttmætt, að.ríkið taki að sér bæði futning og heildsöiu, eins og það nú þegar annast innkaup- in. Hins vegar mundi smásala og dreifing verða í höndum annarra aðila. Má þar auðvitað fyrst til nefna hin starfandi olíufélög. En auk þeirra mundu aðrir sð- ilar, s. s. o’íusamlög, kaupfélög, félö.g bjfreiðaeigenda o. fl. fá ful'kominn rétt til að kauna olíu- vörur beinl frá birgðastöðyum og taka að sér dreifingu til með- jima sinna og annarra er við þau skip.ta. Olíufélpgin hafa. nú þegar til umráða mjög mjkið og 'VÍðtækt dreifingarkerfi, .geyma, leíðslur, bíla '0. fl.,.:og. mundu því annast dreifjnguna að verulegu leyti. Það mun því mega fullyrða, að með þessu fyrirkomulagi sé einmitt fundin heppileg leið til að skapa heilbrigða samkeppni um sem minnstan dreifingar- kostr.að og iægst útsöluverð milli þeirra aðila, sem fyrr er á minnzt og annast mundu dreif- inguna. Er það og auðsætt, hve nauðsynlegt það er fyrir framleiðsluna og alla aðra sem olíuvörur nota, að takast megi að fá þann kostnað sem lægstan, svo mikill þáttur sem verð þessara vara er í öllum framleiðslukostnaði og jafnframt mikjll þáttur hjns almenna verð- lags í landinu. En sé dreifingin á annað borð í höndum annarra aðila en hins opinbera, mun tsep- lega verða fundin önnur betri leið til lækkunar þeim kostnaði en eðli'eg samkeppni milli þeirra aðiia, sem fyrr eru nefndir til að annast dreifinguna. Nú um nokkurt skeið hefur þróazt sá viðskiptaháttur milli olíufélaganna og olíusamlaganna, að til þess að ná samningum hafa hin síðarnefndu orðið að binda viðskiptin til nokkurra ára í einu. Þessi viðskiptabönd er óhjákvæmilegt að losa og tryggja um leið, að samlögin verði ekki skaðabótaskyld að neinu leyti. kr. 0,50 kr. 5.00 Birgðastöð Skeljnngs í Skerjafirði. Frá og með sama tíma er peningaskiptum í vögnunum hætt. Stiætisvagnar Reykjavíkur, 4. febrúar 1959. Birgðastöð OL ufélagsins í Hafnarfirði.

x

Nýi tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.