Nýi tíminn


Nýi tíminn - 19.11.1959, Qupperneq 4

Nýi tíminn - 19.11.1959, Qupperneq 4
4) — NÝI TÍMINN — Fimmtudagur -19; nóvember 1959 Skýring Bandaríkjanna á rýmingu herstöðva í Marokkó: Flussstöðvar úreltar vejma breyttrar hernaðartækni Ástæðan til að Bandaríkjastjórn hefur fallizt á að láta af hendi herstöðvarnar sem hún hefur komið upp í Marokkó, er að þróun hernaðartækninnar er að gera flugstöðvar af því tagi úreltar, hefur fréttaritari Reut- ers í Washington eftir „beztu heimildum“ þar í borg. Ákvörðunin um að flytja [ hernaðarþýðing stöðvanna ört þverrandi. Eldflaugarnar hafa gert langfleygu kjarnorkusprengju- flugvélarnar úreltar, og þörfin á flugstöðvum verður minni og minni, hefur fréttaritarinn eft- ir bandarískum embættismönn- um. um 12.000 bandaríska hermenn a brott úr þrem kjarnorkuárás- arflugstöðvum í Marokkó og einni flotastöð, er ekki tekin vegna krafna Andercons fjár- málaráðherra um sparnað, segja embættismenn í banda- ríska landvarnaráðuneytinu fréttaritara Reuters. Eldflaugarnar Bandaríska herstjórnin og Bandaríkjastjórn komust að þeirri niðurstöðu, að ekki væri vert að streitast gegn kröfu Marokkóstjórnar um brottför bandarísks hers úr landinu. Bæði myndu Bandaríkin hljóta fyrir þáð ámæli víða um heim, og þar að auki færi Spánn í staðinn Auk þessa ber það til að Banriaríkjamenn telja sig geta fengið alla þá hernaðaraðstöðu sem þeir kunna að æskja við mynni Miðjarðarhafs á Spáni, á næstu grösum við Marokkó. Þar hafa þegar verið reistar bandáríákar flugstöðvar. Tilkynningin um að Banda- ríkjastjórn hefði ákveðið að rýma herstöðvarnar í Marokkó var birt eftir að Abdullah Ibrahim, forsætisráðherra Mar- okkó, hafði heimsótt Wash- ington og rætt við Eisenhower forseta og Herther utanríkis- ráðherra. Samningar um brott- förina verða teknar upp hið fyrsta í Rabat. Bandarískir herforingjar láta í ljós von um að þeir muni fá fjögurra til sex ára frest til að yfirgefa flugstöðvarnar. íslendingar meðal þjóða, er for- dæma kynþáttamisréttið Fulltrúar 36 þjóöa hjá Sameinuðu þjóöunum hafa á allsherjarþinginu lagt fram tillögu um aö víta misréttis- stefnu stjórnar Suöur-Afríku í kynþáttamálum. Meðal flutningsaðila tillög- unnar eru ísland, Noregur, Svíþjóð, Indland og allmargar þjóðir í Afríku og Asíu og nokkrar Suðurameríkuþjóðir. Samkvæmt tillögunni er lagt til að allsherjarþingið mótmæli kynþáttamisrétti hvar sem það viðgengst í heiminum, og skor- að er á allar meðlimaþjóðirnar að haga stefnu einni og að- gerðum í samræmi við stofn- skráratriði Sameinuðu þjóð- anna i þessum málum. Þá er í tillögunni skorað á allar þjóðir samtaka Samein- uðu þjóðanna að láta í ljós andúð sína á framferði stjórn- ar Suður-Afríku í kynþátta- málum, og því að hún skuli engu hafa sinnt fyrri áskorun- unum Sameinuðu þjóðanna um að hætta kynþáttamisréttinu. Að lokum eru allar þjóðir hvattar til að vinna að fram- gangi tillögunnar og sjá til þess að ákvæði hennar nái fram að ganga. Bókin sem flestir hafa beðið eftir í ofvæni: Virkisvetur Björns Th, er kominn if Islenzkur leíkari vinnur sigra erleedis tJngur rsfirðingur, Jón Laxdal, hefur getið sér orðstír fyrir leiklist í Austurríki og Þýzkalandi. í fjögur ár hefur hann stundað nám við ríkis- leikskólann í Vínarborg, og á prófinu í sumar vann hann fyrstur út- lendinga eftirsóttustu verðlaun sem leiklistar- nema . I oAusturriki. geta- hlotnazt. Nú er Jón ráð- inn til Alþýðuleikhúss- ins í Rostock, en í sumar var liann í leikftokki skóla sins, scm sýndi Skáldsagan Virkisvetur, eftir Björn Th. Björnsson lisb fræöíng, er komin út, en þessarar bókar hafa flestir beöið með mikilli eftirvæntingu síöustu vikurnar. ~ Á 30 ára afmæli Menntamála- ráðs var ákveðið að efna til samkeppni um skáldsögu. Tíu söguhandrit bárust, og það ó- vænta gerðist að dómnefndin var á einu máli um að eitt þeirra bæri svo langt af hinum að önn- ur kæmu ekki til greina. Skáld- saga þessi bar heitið Virkisvet- ur, og þegar að var gáð reyndist höfundurinn vera Björn Th. Björnsson listfræðingur. Björn Th. Björnsson er löngu lands- kunnur fyrir allt annað en skáld- skap, — jafnvel vinum hans kom þetta mjög á óvart, og hafa menn því beðið bókar þessarar með óvenjumikilli eftirvæntingu. Og nú er hún komin út. Gunnlaugur Scheving hefur gert kápumynd bókarinnar, og mun það vera eina bókarkápan sem Scheving hefur gert. Bókin er 261 bls. og er útgáfan vönd- uð. # Þetta er söguleg skáldsaga og er efni hennar mjög vel lýst á kápusíðum og segir þar: „Sögusvið Virkisvetrar er byggðin umhverfis Breiðafjarð- arbotn um miðbik 15. aldar. Guð- mundur Arason á Reykhólum, auðugasti maður þessa tíma og allra tíma á fslandi, hefur boðið dönsku umboðsvaldi birginn og tekið upp beina verzlun við Eng- lendinga, sem seilast mjög eftir aðstöðu til útgerðar og öðrum fríðindum hér á landi. Guð- mundur er mágur þeirra bræðr- anna Einars og Bjöms Þorleifs- sonar á Skarði, og framan af rík- ir með þeim vinátta og einhug- ur í landsmálum. Guðmundur á tvö börn, Andrés, sem er laun- getinn, og Solveigu. Þegar á ung- lingsárum fella þau Andrés og einkadóttir Björns, sem einnig heitir Solveig, hugi saman og eiga leynilega fundi. Nú gerist það að konungur fær Einari Þor- leifssyni hirðstjóratign norðan lands og vestan, og vex þegar upp hatrammt valdastríð með þeim Guðmundi og Skarðsmönn- um, sem eiga hirðstjóratignina í veði, komi þeir ekki verzlunar- banni konungs fram. Sumarið eftir, meðan Guðmundur er í Englandi en flestir heimamenn á „Grosse Welttlseater“ Ilofmannsthals víða um Þýzkaland. Myndin er úr þeirri sýningu. Betlarinn (Jón Laxdal) lýtur yfir auðmanninn (Harald -Harth) «en d&nðinn (And- reas Adams) horfir á. Á sjöundu síðu Þjóðvilj- ans birtist í dag grein um Jón Laxdal og fleiri myndir. Reykhólum að gleði á Jöfra, dæmir Einar , Þorleifsson Guðr, mund Arason útlægan og allt ríki hans undir konung. Þeir bræður ríða með lið á Reykhóla og taka garðinn. Andrés flæmist nú með fólk sitt austun í Kollafjörð, þar sem honum hefur tekizt að halda eft- ir nokkrum jörðum, og reynir til að fá hlut sinn réttan á alþingi. En hann er hórgetinn og því ekki löglegur eftirmálsmaður föður síns; ósigur hans virðist alger. Meðan þannig vindur fram, gerast ástir þeirra Andrésar og Solveigar á Skarði enn ástríðu- heitari, þótt logandi hatrið standi milli ætta þeirra. Á þessum grundvelli byggist sagan. Englendingarnir leita á Andrés og bjóða honum liðstyrk sinn til þess að ná aftur veldi föður síns, en hann uggir að ensk yfirráð á fslandi verði af- leiðing slíkrar hefndar. Eftir að Björn hirðstjóri Þorleifsson er veginn undir Jökli, svífast synir hans einskis til þess að koma Andrési endanlega á kné. Þeir gifta Solveigu systur sína frænda sínum, Skarðverjanum Páli Jóns- syni, og leggja henni til hofgarð- inn Reykhóla, ættaróðal Andrés- ar, í brúðarfé. Andrés er hrak- inn af föðurleifð sinni, réttlaus og klofinn milli ástar sinnar og hefndarhuss, milli þess að leita sér fulltingis í atfylgi Englend- inga og þeirrar vissu, að með bví sé veikri frelsisvon landsins fórnað. Og Solveig situr hús- freyja á æskuheimili hans. . . Um stund hefur Andrés kevpt sér frið með því að selja öll eftirmál í hendur systurmanns síns. Bjarna Þórarinssonar. En begar Skarðsfrændur fara vestur í Haga og taka Bjarna af lífi fyrir sugum konu hans, er járn- ið fullbnmrað. Andrés safnar liði um Kollafiörð og brýzt yfir Steinadalsheiði í aftakahríð. — Síðari hluti sögunnar gerist á Reykhólum, eftir að Andrés hef- ur tekið staðinn. Ástir þeirra Solveigar verða nú holdi klædd- ar. en yfir þeim vofa dimm ský óflýjanlegra örlaga. Lesandinn lifir með þeim hina sætbitru 1 , lognstund, unz óveðrið brestur á: Virkisveturinn á Reykhólum, ! 1483“.

x

Nýi tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.