Nýi tíminn - 19.11.1959, Page 9
S)1 — ÓSKASTUNDIN
PETUR SUM ARLIÐASON
les útvarpssögu f yrir börnin
Það munu margir litl-
ir menn hafa sézt við við-
tækið til að hlusta á sög-
una af Siskó á laugar-
daginn var. Sögurnar sem
Pétur Sumarliðason las
í fyrravetur voru svo
skemmtilegar, og nú vona
þeir, að þessi verði ekki
síðri. Og þeir munu á-
reiðanlega ekki verða fyr-
ir vonbrigðum.
Sagan er eftir danska
konu Estrid Ott og
kannast vafalaust mörg
ykkar við hana, því hún
skrifaði. líka söguna um
Kötu Bjarnarbana, en sú
bók hlaut verðlaun 1945,
sem bezta barnabók árs-
ins á Norðurlöndum.
Sagan af Siskó er
ferðasaga 10 ára drengs,
sem leggur af stað gang-
andi frá Lissabon í
Portúgal norður til Portó,
en það er álíka langt og
ifrá Reykjavík til Húsa-
víkur — en hann kemst
þetta ekki krókalaust,
því einu sinni fer hann
úrleiðis, eins og hann
hefði lent austur í Horna-
fjörð.
Nú, en auðvitað má ég
ekki segja ykkur söguna.
Hún heldur áfram í út-
varpinu miðvikudaga og
laugardaga kl. 6,30.
Þetta eru hamingju-
samir feðgar. Hvað
skyldu þeir vera að
lesa? Kannski er það
Stolizt í róður, sagan
sem kom í Óskastund-
inni í fyrra. Þá sögu
skrifaði Pétur Sumar-
liðason fyrir strákana
sína, en svo leyfði
• hann ykkur að lesa
• hana. Nú eru synir
• Péturs orðnir svo
• stórir, að hann þarf
• ekki lengur að segja
• þeim sögur; nema
• Pétri Erni, sem þið
• sjáið á myndinni.
• Hann er yngstur.
•B*0*L*T’A -
•LE'TK'U'R
Athugaðu vel myndinar,
við ætlum að kenna þér
nýján boltareik. Það er
bezt að kalla hann hring-
blak, því hann minnir
bæði á hringbolta og
blak.
Þátttakendur raða sér
í eins stóran hring og
mögulegt er og velja einn
til að vera hlaupara inni
í hringnum. Boltinn sem
notaður er má vera hvort
sem er stór eða lítill og
gengur hann fram og
aftur í hringnum, en það
má ekki kasta honum
heldur á að slá hann
eins og í blaki.
Það sem keppt er að
er að hitta þann sem
hleypur innan í hringnum
Ef hlauparinn verður fyr-
ir skoti fer hann á stað
þess, sem sló boltann, en
hann aftur á móti verð-
ur hlaupari. Það er um
að gera að vera sem
lengst inni í hringnum.
RitstjóH Vilborg Dagbjartsdóttir — Útgofandi ÞjóSviljinn
I’ næst síðasta blaði sögð-
um við þér hvernig
hægt er að sá kjörnum
úr aldinum og rækta
blaðríkar suðrænar jurt-
ir í glugganum jafnvel
um hávetur.
Nú ætlum við að segja
þér hvernig þú átt að
fara að því að hlúa að
jurtinni þinni, þegar hún
fer að vaxa. Þegar hún
hefur fengið tvö blöðð
þarf að umpotta þ.e. færa
jurtina í stærri pott með
nýrri mold.
Þú skalt fá þér jurta-
pott úr leir og einnig dá-
lítið leirbrot. Þú velur
lítinn pott fyrir eina
plöntu en stóran pott,
eí þú ætlar að hafa marg-
ai saman í einum potti.
Leirbrotið setur þú yf-
ir gatið, sem er á pottin-
um og stráir dálitlum
sandi yfir. Þetta er ágætt
sigti og kemur í veg fyr-
ir að moldin verði blaut.
Fáðu þér mold og
blandaðu hana með ör-
litlu af sandi og þurrum
mosa, ef þú getur fengið
hann. Fylltu pottinn næst-
um því af þessari blöndu.
Settu skál undir hann og
vökvaðu vel.
Sand getur þú fengið
hvar sem verið er að
byggja, eða í fjörunni ef
hún er nálægt.
Nú getur þú sett plönt-
una þína í pottinn. Áður
en þú tekur hana úr hin-
um pottinum áttu að
vökva hana. Styddu hend-
inni méð útglénntúm
fingrum á moldina með-
fram plöntunni og snúðu
pottinum við. Losaðu
hana úr potinum með því
að slá honum snöggt við.
Moldin kemur úr pott-
inum í heilu lagi því ræt-
urnar lialda henni saman.
• Ef margar plöhtur hafa
verið í pottinum losar þú
þær varlega í sundur og 1
lætur moldina sem loðir
við ræturnar fylgja.
Settu eina plöntu í
pott og greiddu vel úr
rótunum áður en þú set-
ur hana niður.
Fylltu síðan pottinn
Framhald á 2. síðu.
BLÓM í
GLUGGUM
4) — ÓSKASTUNDIN ---------
Klippmyndasamkeppninni
lýkur bráðum
Um mánaðamótin lýkur
klippmyndasamkeppn-
Ínni og verðlaunin verða
veitt. Þátttaka hefur ver-
íð mjög góð og margar
skemmtilegar myndir og
mynztur hafa borist. Við
vonum að flestar þeirra
éigi eftir að skreyta blað-
Íð okkar, þótt þær hafi
Þá er nú blessaður
snjórinn kominn, og eng-
inn óhultur, ekki einu
sinni virðulegir borgarar
með pípuhatta, hrekkja-
lómar eru í leyni við
hvert húshorn og stund-
um fylgja óprúttin orð
kúlunum.
Líttu á þessa prúðu,
gömlu herra sem eru á
ekki hlotið verðlaun.
Myndin í dag er ein af
fjórum myndum, sem
Þóra Jónsdóttir, Steina-
borg á Berufjarðarströnd
sendi okkur. Okkur þætti
gaman, að hún skrifaði
okkur og segði hvar hún
lærði að gera svo fallegar
klippmyndir.
leiðinni í Ljónaklúbbinn
— en freistingin var líka
stór — drengirnir þrír
voru bara ekki allir jafn
heppnir, aðeins einn
hæfði. Þeir vildu allir
eigna sér kúluna, sem
hitti. Vilt þú, kæri sjón-
arvottur, ekki vera svo
vænn að dæma í málinu.
Fjórða Skottu-
bókin komin
Það er komin ný
Skottu-bók, sem heitir
Skotta fer á stúfana. Áð-
ur eru komnar út Skotta
í heimavist, Skotta
skvettir sér upp og
Skotta hættir lífinu. Bæk-
urnar um Skottu eru fjör-
ugar og skemmtilegar,
prýðilegar fyrir stelpur á
aldrinum 10 til 15 ára.
Skotta og stúlkurnar í
Fjögralaufasmóranum
hafa stofnað leynifélag,
en það gengur á ýmsu.
Karinu og Önnulísu kem-
ur ekki sem bezt saman.
Þær keppa um hylli
Skottu, sem enn er vin-
sælasta stelpan í heima-
vistarskólanum.
Leynifélagið lendir I
stríði við þá kumpána
Órabelg og Stritara, en
við viljum ekki segja
nánar frá því, það skul-
uð þið lesa um.
Málfríður Einarsdóttir
hefur þýtt þessa Skottu-
bók eins og hinar.
Pípuhattar og hrekkjalómar
Fimmtudagur 19, nóvember 1959 — NÝI TÍMINN — (9
Ritstjóri Vilboro Dagbjartsdóttir — Útgcfandi Þjóðviljinn
Fimmtud. 19. nóv. 1959 — 5. ár.g. — 37. tbl.
Þetta er ekki róluvöllur hér í Reykjavík, myndin er alla leið aust-
an frá Kína. Litlu Kínverjarnir leika sér í rennibraut og vega-
salt rétt eins og börnin hér. Myndin er eftir tréskurðarmynd
kínverska listamannsins Ku Yuan, og .heitir Ungir sprotar.
Fyrsta október 1959 var 10 ára afmæli kínverska lýðveldisins og
þessir „ungu sprotar" hafa dafnað og vaxið með hinu unga
lýðveldi.
Ný samkeppni
JÖLAMYND
Þar sem klippmynda- ] þeim sem eingin verð-
samkeppninni er að laun hlutu annað tæki-
Jjúka viljum við gefa færi. Við efnum til sam-
keppni um beztu myndina
með orðunum „Gleðileg
:jól“. Sá sem teiknar
myndina er verður á íor-
síðu jólablaðsins mun fá
Framh. á 2. síðu.