Litli Bergþór - 05.03.1980, Page 3
I GAMNI OG ALVÖRU
Einu sinni var ritnefnd og afrek hannar eru elstu
Tungnamönríum kunn, þvi hún gaf ut blað er hefnt var
Bergþór, eftir karli miklum er bjó i Bláfelli,
Nú er öldin önnur, Ritnefnd er aö visu til, en
hver hún er og hv'ar hún er', vi’ta's jálfságt fáir,
Það dettur engum i hug að vekja Bergþór i Bláfelli
til lifsins, en ég er sannfœröur um að til eru þeir
sem hafa hug á aö hef ja á ný útgáfu Bergjbórs. En hinir
frómustu menn segja þaö jafnerfitt verk að vekja rit-
nefnd til dáöa og að særa fram draug. Fleiri nefndir
eru brenndar sama brennimerki og ritnefnd, Nálega
eitt ár er frá því aö útgáfunefnd var komið á fót
og má segja ^ið þetta sé hennar fyrsta skref, það er
þvi hægara um aö ræða en i aö komast, en vonandi
er tími kraftaverkanna eklci liðinn.
Hér með hefur göngu sina Fréttablaðiö Litli -
Bergjþór, Nafniö er komiö frá áður nefndu'blaði og er
n^fngift útgáfustjóra, Markmiö pessa blaðs er að
koma alls konar uppiýsingum, fréttnæmu efhi hóðan
úr byggða,plaginu á framfæri við ykkur lesendur góðir.
öllum er heimilt' aö senda inn efni til birtingar
og mun útgáfunefndin sjá til pess aö sem flest komi
i blaðiö.
Foripenn starfandi nefnda eru hvattir til pess
að koma öllum starfsárangri aL • blaðið, en það fylgir
böggull skammrifi pvi þeir verða að koma efninu á
stensla. Vonandi veröur þetta blaö til fróðleiks og
skemmtunar.
Grímur Bjarndal