Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.07.1988, Blaðsíða 14
- 14 -
kvenna, sbr. nöfn eins og Þór, Örn, Már, Björk, Dögg, Ósk. Með þessurn
riýju nöfnum eöa þessari nýju nafnatízku virðist hafa komið upp sá siður
aö fyrra nafn af tveimur er gjarnan tvíkvætt en hið síöara einkvætt, t.d.
Einar Örn, Ari Fregr, Linda Björk, Heiður Ósk
Deiia má um hvort tvínefni séu æskileg, en lögum samkvæmt má
hver maöur heita einu nafni eöa tveimur, og tvínefnasiöurinn er orðinn
svo gróinn að erfitt yrði að berjast gegn honum. Rétt er þó aö benda á
þrennt. Þeirri nýju tízku, sem ég gat um áöan, fylgir aö foreldrar reyna aö
sýna frumleik og sjálfstæði í nafnavali. Þeir vel ja síður hefðbundin nöfn
sem gengið hafa í ættum mann fram af manni. Þetta hefur oft í för með
sér að valin eru óæskileg nöfn sem geta orðið nafriberunum til ama á
lífsleiðinni. Oft er erfitt að beygja þessi nýju nöfn. Oftar en einu sinni
hef ég verið spurð um beygingu nafns. Þá var búið að skíra barn og
ættingjar næstum komnir í hár saman út af beygingunni. Sem dæmi
mætti nefna Reginn. deilt varum hvort segja ætti í þágufalli Regin eða
Regni.
Mörg þessara nýju nafna eru ung í málinu sem skírnarnöfn og lítið
ber á þeim. Meðal 100 algengustu nafna karla og kvenna 1982 er t.d.
ekkert sem ekki telst gott og gilt íslenzkt nafn. En nýju nöfriin skjóta
rótum og breiðast út og því er nauðsyn að fylgzt sé grannt með því hvaða
nöfn eru gefin.
Annað atriði sem rétt er að nefna er að talsvert ber á því að
einsatkvæðisnöfn eru ekki beygð. Það er mun algengara um
kvenmannsnöín en karla. “Ég ætla til Ósk, ég ætla til Björg" segja ekki
aðeins börn heldur einnig fullorðnir í vaxandi mæli. Ekki er gott ab segja
hvernig á þessu stendur. Ef til vill eiga tvínefnin eirihverja sök því að
algengt er að fyrra nafnið sé beygt en hið síðara látið óbeygt, ef um
kvenmannsnöfn er að ræða t.d.: ég ætla til Elvu Björk. í karlmannsnöínum
er fyrra nafnið oft óbeygt en hið síðara beygt t.d.: ég ætla til Einar
Gunnars. Víst er þarna vandamál sem glíma þarf við. Ef fer sem horfir
endar með því að beyging mannanafna riðlast öil og verður þá erfiðlega
aftur snúið. Því tel ég nauðsynlegt ab drepa á þetta atriði í bók ætlaðri
almenningi.
Ég hef nú komið víða vib og af mörgu er enn að taka. Ég læt þó hér
staðar nurnið og þakka áheyrnina.
Guðrún Kvaran
orðabókarritstjóri