Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.07.1988, Page 16

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.07.1988, Page 16
16 UM ÆTTFRÆÐIFERÐINA. Lagt verður af stað frá Hótel Lind Rauðarárstíg 18 kl. 08.00 laugardaginn 23. júli og ekið uin Hvalfjörð til Borgarness. Frá hótelinu i Borgarnesi verður farið kl. 10.30 vestur á Mýrar um Álftaneshrepp og Hraunhrepp. Stansað verður á Alftanesi, Ökrum og vióar. Frá Ökrum veróur haldið upp í Hítardal á slóöir Jóns Halldórssonar og fleiri merkra ætt- fræðinga fyrri tíma. Þaðan verður svo haldið niður i Borgarnes. Þar gefst góóur timi til aó skoða sig um og líta inn til Bjarna Backmann safnvarðar í Safnahúsinu nýja, en i bóka- og skjala- safninu er sérstök aðstaða fyrir ættfræðirannsóknir. Frá hótelinu i Borgarnesi verður farið kl. 19.00 og ef veður og aðstæóur leyfa er ætlunin að fara um Lundarreykjadal, Uxahryggi og Þingvelli til Reykjavikur og koma þangað um kl. 22.00. Aðalleiðsögumaður ferðarinnar verður Ari Gislason ættfræðingur en fleiri fróðir menn rifja upp sögu og sagnir með ættfræðilegu ivafi og lýsa staðháttum. Tilkynna þarf þátttöku fyrir föstudag 22. júlí í síma 40763 þar verða einnig gefnar nánari upplýsingar um ferðina. K5H KSfl BBSB E153I BH39 ÆTTFRÆÐIFERÐ ÆTTFRÆÐIFÉLAGIÐ fer í ættfræðiferð vestur á Mýrar og upp í Hítardal laugardaginn 23. júlí næstkomandi. Farið verður frá Hótel Lind, Rauðarárstíg 18, kl. 8:00. Ráðgert er að koma til baka til Reykjavíkur um kl. 22:00. Aðalleiðsögumaður verður Ari Gíslason ættfræð- ingur. Fargjald verður 1200 krónur. Tilkynna þarf þátttöku í síma 40763 fyrir föstudag 22. júlí. Félagar eru hvattir til að taka með sér gesti. stiórm'n FRÉTTABRÉF ÆTTFRÆÐIFÉLAGSINS. Útgefandi: Ættfræðifélagið, Pósthólf 829, 121 REYKJAVÍK. Ritnefnd/ábyrgðarmenn: Arngrímur Sigurðsson, Keilufelli 2, 111 REYKJAVlK, s. 78144, og Einar Egilsson, Oigranesvegi 56, 200 KÖPAVOGUR, s. 40763.

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.