Landneminn - 01.12.1938, Page 9

Landneminn - 01.12.1938, Page 9
u LANDNEMINN B 9 vað er framnndaii? Effir Berg Vígfússon formann Æskulýðsfylkíngarínnar í Reykjavik, Stödd á merkilegustu tímamótum í félagslegri þróun, heldur alþýðuæska Reykjavíkur hátíðlegt 20 ára afmæli fullveldisins. Þessi alþýðuæska er synir iog dætur þess fólks viðj sjó iog í sveit, sem með lendalausu striti á löngum vinnudegi, ýmist úti á hættulegustu fiskimiðum heimsins, eða í afskektuin sveituin, allsstaðar í baráttu við blind náttúru- öfl, skóp verðmætin, sem allt líf og menning þjóðarinnar byggist á. Við þekkjum eldri kynslóðina hér í Reykjavík — kynslóð, sem með eigiin höndum byggði iupp þann bæ, sem við lifunr nú; í í dag, vonandi að hún væri að tryggja sér samastað, þar sem efnisleg og menningarleg velferð gæti skapazt sem endurgjald fyrir æfilangt strit log kæmi að notum eftirkiomend- unum. En þessi kynslóð var svikin hrapa- lega, hún sá það ekki fyr en um sein- an, að hún hafði verið látin byggja bæ með fjölmörgum nútíma þægind- lim, kaupa atvinnutæki, en að þessu lioknu var henni sjálfri iog börnum Og værj ekki ástæða til, að leitað yrði upplýsinga um, hverjar ráðstafanir stjórnjr annarra lítt numinna landa hafia gert log gera til þess að fá landnema, útvega þeim jarðnæði o. s. frv., — hagnýta síðan úr reynslu þeirra það, er hér hentar og hefja hér nýtt land- nám í stórum stíl? Og væri ekki á- stæða til að koma á hér í Reykjavík búnaðarfræðslu, er atvinnulausum mönnum iog öðrum bæjarbúum, er hugsa til landnáms hér, gæfist kostur á að sækja? Og því ekki að byrja á þessum undirbúningi nú þegar? Og svo þarf að stofna hér almennan vinnuskóla fyrir unga menn á aldrinum 18—22 ára. Þátttaka sé frjáls. En fyrst um sinn gangi þeir fyrir um skólavist, sem atvinnulausir eru. Og þeir, sem hlotið hafa loflegan dóm fyrir nám og vinnu, gangi síðar, að öðru jöfnu, fyr- ir vinnu, er hið ©pinbera veitir. Verk- efni þessara vinnuskóla eru mörg og glæsileg. Eitt þeirra er: nýtt landnám á* 1 íslandi! Látum svo vinnufylkingannar ryðja landið, ræsa fram blauta flóa, þurrka mýrar ©g búa landið undir rækt- un, — og afhendum það svo hinum nýju landnemum til umráða“. hennar hvergi ætlaður staður, og þau útlæg ger. Það eru synir og dætur þessarar kyn- slóðar, sem samtímis 20 ára ful’l- veldisafmælinu sameinast tjl átaka í lokaþætti sjálfstæðisbaráttu þjóðarinn- ar. Alþýðuæskunni er Ijós sinn þjóðfé- lagslegi réttur. Hún veit, að svikin við feður hennar og mæður voru fólgin í því að tekinn var af þeim umráða- rétturinn yfir þeim verðmætum, sem þau höfðu skapað, og þar með umráð þeirra yfir lífskjörum þeirra yfirleitt, yfir ágóðanum, sem þau bjuggu í ^t- vinnuvegunum, sem þau lifðu af, yfir aðganginum að menningarstofnunun- um o. s. frv. Það er því í fullri meðvitund um þann rétt, sem hún er borin til, að al- þýðuæskan leggur til baráttu fyrir hagsmunamáium sínum. Hún veit, að þessi barátta er hin innri frelsisbarátta þjóðarinnar, og að hún er að því leyti sama eðlis og hin fyrri frelsisbarátta alírar þjóðarinnar við erlenda valtíhafa, að það vald, sem um er að ræða, er ranglega til orðið úr hefðbundnum sérréttindum og ásælni einstakrar stétiar manna. Til þess að skapa þann skilning, sem nú þegar er fyrir hendi í þessum máf- um, hefir þurft stórt átak. Og alþýðu- æskunni er það fyllilega Ijóst, að til þess að vinna fullnaðarsigur, þarf hiargfalt stærra átak. En út í hjnn nýja þátt baráttunnar, sem hefst með þessum tímamótum, gengur hún ótrauð og vígreif. Hér í Reykjavík er starfið þegar haf- ið. Eftir megni mun verða haldið á- fram því félagsþroskandi starfi, sem hefir byggt upp þann stofn, sem sam- einaðist um stofnun Æskulýðsfylking- arinnar. Það mun verða lögð stund á að gefa félögunum kost á að starfa að hugðar- efnum sínum^ í þeim tómstundum, sem þeir hafa, bæði á sviði verks og náms. Þannig mun félagsskapurinn bæta meðlimum sínum upp, að svo miklu leyti, Sem unnt er, það sem skortir á í aðbúnaði þeirra frá hálfu þess bæj'- arfélags, sem þeir lifa í. Gildi þess mun inn á við verða fólg- ið í þrioskuin persómileika einstakling- anna, og út á við í því, að draga æ fleira æskufólk að félagssfcapuum, þar IANDNEMINN Ctgefandi: Æsktilý'ðsfj/lkingin. Ritstjóri: - Guðmundur Vigfiisson. Afgreiðsla Hafnarstræti 21. Áskriftargjald: Kr. 3,00 árg. I lausasölu 25 aura eintakið. Vikingsprent h.f. Hverfisg. 4. Sími 2864. Landneminn hefur nú göngu sín,a með það fyrir augum, að fullnægja kröfurn íslenzkrar æsku og að verða hennar blað. Takmark blaðsins er að flytja mál- efni æskunnar og túlka málstað hennar í hvívetna og afla honum fylgis. Blað- ið vill gefa ungu fólki um allt land kost á að skrifa í blaðið, senda ;því sögur og kvæði, fyrirspurnir og ann- að það, sem því liggur á hjarta. M:un blaðið reyna að leysa úr öllu slíku eins vel ög á þess færi er. Blaðið hefur í dyggj11 að efna til samkeppni meðal lesenda sinna um samningu smásagna, er fram líða stundir. Mun þar verða u|m einhver verðlaun að ræða fyrir þær, er beztar reynast, en frá því verð- ur nánari skýrt í inæsta blaði. sem það fær fullnægt starfsþrá sinni og fundið hugðarefni sín. Á þennan hátt mun okkur ekki ein- ungis takast að skapa sterkustu æsku- lýðshreyfingu, sem nokkru sinni hefir verið til á íslandi, heldur og grund- völl að þjóðskipulagi framtíðarinnar, þar sem hin vinnandi stétt skipar þann sess, sem henni ber. Þjóðskipulag, þar sem árangur æfilangs strits fer ekki til óhófslifnaðar fámennrar stéttar og áhangenda hennar heldur er fórnfærð I á altari eftirkomendanna í mynd fiull- kominna atvinnutækja, sem skila afköst- um, sem skapa verðmæti til að stofna holl heimili, þar sem velmegun og ham- ingja þróast, verðmæti til þess að koma upp menningarstiofnunum, þar sem æskan getur eytt tómstundum sínum — skapað heim, þar sem hinn vinnandi maður getur hvílzt eftir langan og erf- iðan dag.

x

Landneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Landneminn
https://timarit.is/publication/886

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.