Foreldrablaðið - 01.12.1970, Síða 8
6
VALBORG SIGURÐARDÓTTIR,
UPPELDISFRÆÐINGUR OG SKÓLASTJÓRI
FÓSTRUSKÓLANS
SVARAR SPURNINGUM
1. Hvert telur þú uppeldislegt markmið 6 ára deilda
ætti að vera?
Barnið sjálft og persónuþroski þess á að vera
höfuðviðfangsefni forskólans — ekki ákveðnar
námsgreinar.
Höfuðmarkmið 6 ára deildanna tel ég ætti að
vera, að efla heildarþroska barnsins, þ. e. að efla
tilfinninga- og félagsþroska þess, hreyfi-, verk- og
vitþroska þess, og búa það þannig undir þær kröf-
ur, sem fræðsluskyldan leggur því á herðar.
Með því að skapa börnunum fræðandi og vekj-
andi umhverfi, og veita þeim alhliða fóstrun í leik
og starfi, tel ég, að unnt verði að jafna að ein-
hverju leyti uppeldisaðstöðu þeirra. Börnin koma
frá margvíslegum og misgóðum heimilum og hafa
m. a. þess vegna haft ólík og misjafnlega góð ytri
skilyrði til þroska.
Kosturinn við að taka þörnin inn í barnaskól-
ann, áður en hin eiginlega fræðsluskylda hefst, er
m. a. sá, að unnt er að ná til hvers einstaks barns
og rannsaka það líkamlega og andlega. Ef öll 6
ára börn fengju að njóta góðs af sérfræðingum
þeim, sem barnaskólarnir hafa á að skipa eða
munu hafa í náinni framtíð, væri áreiðanlega unnt
að hlífa miklu fleiri börnum við afdrifaríkum mis-
tökum í námi, en hingað til hefur tekizt. Á ég hér
við þjónustu sérfræðinga eins og sálfræðinga, tal-
kennara, heyrnarsérfræðinga, augnlækna, auk hins
almenna heilbrigðiseftirlits skólalæknis.
Ótalin eru þau mistök, sem orðið hafa í lestrar-
námi vegna þess, að barnið sá eða heyrði illa, eða
vegna þess, að barnið hóf lestrarnám áður en það
hafði nægan þroska til þess.
2. Álitur þú að kenna eigi 6 ára börnum það, sem
7 ára börn læra?
Nei, alls ekki, nema þá að mjög takmörkuðu
leyti og með öðrum aðferðum en oftast eru not-
aðar hér í 7 ára bekk.
Trúlega vænta margir foreldra sér þess, að
börnin fái að læra að lesa sem fyrst og telji það
jafnvel prófstein á, hversu vel hefur tekizt um
forskólann.