Landneminn - 01.06.1948, Qupperneq 3
Útgefandi: ÆskulýSsfylkingin — samband ungra sósíalista. Ritstjóri: Jónas Árnason.
6. tölublað
íúní 1948
2. árangur
FÁEIN ORÐ TIL UNGRA SÓSlALDEMÓKRATA
ertír
Mig liefur lengi langað til að beina nokkr-
ura orðum til ykkar, kunningja minna í hópi
sósíaldemokrata. Þið eruð að vísu ekki margir,
flestir líka jafnaldrar mínir og þeir hafa yfir-
leitt ekki fylkt sér í ykkar flokk. Það mætti því
ætla, að ekki væri ómaksins vert að eyða dýr-
mætu rúmi Landnemans til slíkrar orðsending-
ar, en þó ætla ég, að svo sé. Þessi grein er nefni-
lega skrifuð í þeim tilgangi að fá svar við þeirri
ntiklu spurningu: Hvað skilur okkur að? Að
sumra áliti er ef til vill þarflaust að leita svars
við þeirri spurningu, henni hafi verið svarað
svo oft á opinberum vettvangi, að engum
gæti blandazt hugur um, að milli ykkar flokks
og okkar er óbrúanlegt hyldýpi. Ég get þó ekki
fallizt á, að spurningunni sé fullsvarað. Þetta
tornæmi mitt byggist á þeirri staðreynd, að eft-
tr því sem ég veit bezt, teljum við okkur alla
stefna að sama marki, afnámi auðvaldsþjóðfé-
lagsins, sósíalismanum. Þið álítið ykkur enn
vera marxista og farið alls ekki í felur með það,
eins og eldri flokksbræður vkkar, heldur hamp-
*ð gamla manninum á tyllidöffum ykkar. Grund-
vallarskoðanir okkar um þióðfélaersmál ættu því
að vera þær sömu. En hvað skilur?
Það gæti máski í fljótu bragði virzt fljótsvar-
uð, og þið hafið svarið sjálfsagt á reiðum hönd-
**m: leiðirnar að markinu, framkvæmd sósfalism-
ans. Að ykkar áliti erum við sósíalistar fúsir að
.-/Jsniund S)iyur/cmsson.
Á þingi ungra alþýSuflokksmanna á llvanneyri
sumariS 1947 voru stórar myndir af Karli Marx
og Jóni Baldvinssyni sitt hvoru megin viS rœSu-
stólinn.
fórna öllum þeim takmörkuðu mannréttindum,
sem við njótum í kapítalísku þjóðfélagi, „skoð-
anafrelsinu, fundafrelsinu, prentfrelsinu“ fyrir
sósíalismann. Okkar hugmynd um sósíalisinann
er, að ykkar áliti, jafngild kúgun, harðstjórn, ein-
ræði. Hvaðan okkur kemur þessi hvöt til að
hneppa þjóð ókkar í þrældómsfjötra er óskýrt
atriði, vissulega væri það rannsóknarefni sál-
fræðingum. Þið hafið heldur ekki gert neina til-
raun til að röksanna þessar staðhæfingar. Ef til
vill trúið þið sjálfir ekki á réttmæti þessara full-
yrðinga, þær eru aðeins hálmstrá að grípa í,
þegar rök þrýtur í opinberum umræðum. Það
er í rauninni þarflaust að segja ykkur það enn
einu sinni, að við sósíalistar ætlum okkur að
framkvæma sósíalismann á íslandi á grundvelli
hins borgaralega lýðræðis, þegar meirihluti
þjóðarinnar er að baki okkar, en það þarf oft
að endurtaka sömu setningarnar fvrir þá, sem
heyrnarsljóir eru. Ég vona, að þið ungir sósíal-
demokratar hafið sömu fyrirætlun, þið eruð enn
ekki dúsbræður við foringja bræðraflokksins í
Svíbióð, sem haft hefur meirihluta þings og
þjóðar að baki sér árum saman án þess að sænska
þjóðin hafi séð rofa fyrir sósfalismanum.
Ég sagði áðan, að þið hefðuð ekki gert tilraun
LANDNEMINN 3