Landneminn - 01.06.1948, Qupperneq 10
Ríkissfjórn islands gerír nýjan smánar-
samning við Bandaríkjastjárn
Ríkisstjórn Islands hefur gert
nýjan landráðasamning við Banda-
ríki Ameríku, samning, sem sviftir
íslenzku þjóðina efnahagslegu sjálf-
stæði og opnar voldugasta auðvalds-
ríki heims allar gáttir að athafna-
lífi Islendinga. Samningurinn
var undirritaður að kvöldi þess
3. júní 1948 af Bjarna Bene-
diktssyni og Richard P. Butrich,
sendiherra Bandaríkjanna. Hann
var undirritaður að þjóðinni for-
spurðri, að alþingi forspurðu og að
utanríkismálanefnd forspurðri, og
er samningsgerðin sjálf því algert
brot á 21. grein stjórnarskrárinnar
og 16. grein laga um þingsköp. ís-
lenzka þjóðin mun neita að taka
landráðasamning þennan gildan, en
nokkur helztu atriði hans eru á þessa
leið:
(
Réttindi íslendinga:
Islendingar fá þau — og þau ein
— réttindi me'8 þessum samningi,
oð þeim leyfist a8 biSja Bandaríkin
um aðsíoð, sem þó verður því að-
eins látin í té, að ríkisstjórn Banda-
ríkjanna samþykki það! (1. grein).
Réttindi Bandaríkj amanna:
1) Bandaríkin fá rétt til að koma
á ,,ströngu eftirlitskcrfi“ með auð-
lindum landsins, að hlutast til um
gengi krónunnar, íslenzk fjárlög,
„öryggi í innanlandsfjármálum“ og
tolla á bandarískum varningi. (2.
grein).
2) Bandaríkin já rétt til að liefja
liér framkvœmdir „sem ríkisborgar-
ar Bandaríkja Ameríku hafa gert
tillögu um“ og fá bandarísk auðfé-
lög arð af slíkum fyrirtœkjum
greiddan í dollurum en ríkisstjórn
Bandaríkjanna fœr til eignar sam-
svarandi upphœð í íslenzkum krón-
um. 3. grein).
3) Bandaríkin fá rétt til að af-
lienda íslendingum bandarískan
varning sem „aðstoð“. Skal andvirði
þess varnings í íslenzkum krónum
að mati bandaríkjastórnar lagt í
sérstakan sjóð. Skal verja sjóði
þessum til að greiða „reksturskostn-
að“ Bandaríkjanna á Islandi, en
að öðru leyti er óheimilt að nota
sjóðinn nema í samrœmi við vald-
boð bandaríkjastjórnar. (4. grein).
4) Bandaríkin fá rétt til for-
gangskaupa á öllum þeim íslenzk-
um afurðum, sem þau kœra sig um
„með sanngjörnum söluskilmálum.“
Á þessari skemmtilegu mynd, lengst til vinstri, stendur Bjarni
Benediktsson utanríkisráSherra í uufimýkt sinni og passar sig aS vera
einu þrepi ncðar hinum bandarísku fulltrúum á Islandi.
10 LANDNEMINN