Landneminn - 01.06.1948, Blaðsíða 13

Landneminn - 01.06.1948, Blaðsíða 13
tíðin á sjálfsagt eftir að gjalda mikið þakklæti. IJað liefði líka verið útilokað að fara hér geyst af stað, meðan engin vissa var ennþá fyrir því, hvort barrtrén gætu yfirleitt þrifizt í íslenzkum jarðvegi og við íslenzkt loftslag. En árin leiddu í ljós, að svo var. Hinir veiku sprotar teygðu 'tteira og meira úr sér — þótt hægt færu í fyrstu. Og ef þeir, sem gróðursettu blágreniplönturnar á Hallormsstað árið 1905, gætu nú lítið á ávöxt starfs síns, myndu blasa við þcim reisuleg tré, sem náð hafa 10,5 m. hæð. Eftir því sem árin hafa liðið og ljóst lrefur orðið, að barrtrén kunna ágætlega við sig í ís- lenzku umhverfi, hefur gróðursetningartilraun- um verið haldið áfram í stöðugt vaxandi mæli °g með stöðugt betri árangri, enda á síðari ár- um verið reynt að draga lærdóma af þeirri reynslu, sem hvert tímabil gefur, og forðazt ýmsar þær villur, sem tíminn liefur leitt í ljós, að gerðar voru í upphafi. Hingað til er þó aðeins hægt að ræða um gróðursetningu í tilraunaskyni. En hvað hafa þá þessar tilraunir sýnt? Þœr hafa sannað þad, barrtré geta vaxið á íslandi — og það vel. Árangurinn af síðustu gróðursetningum er vöxt- Ur, sem mun fullkomlega standast samanburð við vöxt skóga, er búa við svipað loftslag og um er að ræða hér á landi. Og á slíkum stöð- um, t. d. í Norðui-Noregi og í Alaska, vaxa víðáttumiklir barrskógar. Það er því sýnt, að frá náttúrufræðilegu sjón- anniði er ekkert því til fyrirstöðu að hefja gróðursetningu barrtrjáa í stórum stíl á landi voru. En til þess að svo megi verða, þarf að auka uppeldi trjáplantna margfaldlega. Áður en hægt er að gróðursetja plöturnar útá víða- vangi þarf að sá til þeirra og ala þær upp í 4—5 ár í gróðrarstöðvum. Og ennþá ráðum vér aðeins yfir fáum og litlum slíkum gróðrarstöðv- um. En hér er breyting að eiga sér stað. Það eru h'klega ekki margir, sem hafa fylgzt með því, að austur á Tumastöðum í Fljótshlíð liefur Skógrækt ríkisins keypt allmikið land og hefuv nú grundvallað þar gróðrarstöð, sem á að geta framieitt allt að tveimur milljónum trjáplantna árlega, þegar hún verður komin í fullan gang — en ætlunin er, að það verði innan fárra ára. Hér er um að ræða geysimikilvægan atburð, sem verðskuldar alþjóðarathygli. Þessi atburður táknar þáttaskil í sögu íslenzkrar skógræktar: að Frn Hailormssta'Saskógi. þessi starfsemi hefur tekið skrefið af tilrauna- stiginu uppá framleiðslustigið. Hvað er að gerast, þegar vér getum farið að framleiða 1—2 milljónir barrtrjáplantna á ári? Hvorki meira né minna en það, að lagður hefur verið grundvöllur að nýjum atvinnuvegi á Is- landi og að sköþuð hefur verið hér ný hráefna- lind. En til þess að stíga þetta skref þarf átak — eins og það kostar átök og baráttu að stíga öll mikilvæg skref. Og það kostar líka átak að fylgja því eftir — að gróðursetja 2 millj. trjáplantna á ári hverju. Og þó að sáð sé að vori, verður ekki uppskorið strax að hausti. Trén vaxa ekki uppí himininn á einu sumri — jafnvel þótt það séu barrtré. Skógræktarmennirnir hugsa ekki í ár- um, heldur í áratugum. Þó að hafizt verði handa um gróðursetningu í stórum stíl nú þegar, mun núlifandi kynslóð ekki uppskera arðinn af því starfi. Það er ekki hlutverk þessarar greinar að skýra frá því frá tæknilegu sjónarmiði, hvað til þess þarf að koma hér upp svo stórum barrskógum, að landið verði sjálfu sér nægt með trjávið, enda ekki á mínu valdi að gera það. I því efni vil ég benda mönnum á stórmerka grein, er Hákon Bjarnason skógræktarstjóri skrifaði í Lesbók Morgunblaðsins 30. nóv. í fyrra: „Barrskógar á íslandi“. Þar leggur liann fram drög að áætl- un, er gerð hefur verið um það, hvað mikið þetta muni kosta, hvaða trjátegundir virðist heppilegastar og hvað langan tíma það muni taka. Framhald á bls. 18. LANDNEMINN 13

x

Landneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Landneminn
https://timarit.is/publication/893

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.