Landneminn - 01.06.1948, Side 15

Landneminn - 01.06.1948, Side 15
FJÖLSKYLDAN Smásaga úr stríðinu eftir NIKOLAI TIKONOV. ..Mamnia, komdu hingað snöggvast, ég ætla að segja þér nokkuð," sagði Semyon Ivanovich. Dasha starði á mann sinn eins og hún sæi í fyrsta skipti þennan herðabreiða alvarlega mann nieð hinar jafnvægu hreyfingar og hvössu augu, sem um langt skeið höfðu ekki brosað til henn- ar eða blikkað hana. Hún þurrkaði sér um hendurnar á svuntuhorninu, tyllti sér á stól og !eit undan um leið og hún sagði: ..Ég veit hvað þú ætlar að segja, Semyon.*' ,,Svo þú veizt það, já? Hvernig veiztu það?“ „Ég finn það á mér. . . F.n hvað sem því líð- Ur, haltu áfram. ,,Hvað var það, sem þú ætlaðir að segja?“ „Lokaðu hurðinni, ég kæri mig ekki um, að Dlya heyri það.. .“ „Olya fór að sækja vatn. Ég skal annars sjálf seSÍa það, sem þú ætlar að segja; þú leiðréttir nrig bara, ef ég fer með rangt. Eins og þú get- Ur skilið, veit ég, hvað þú hefur orðið að gegn- timgangast síðan Kostya var drepin. En, hvað um það. Kostya féll sem hetja í vörninni við Leningrad. En við verðum að hefna hans á fas- tstunum; við verðum að hefnast á þeim á hverj- tim degi, hverri klukkustund. .. Ó, þessir villi- menn, þessir níðingar; verkin, sem þeir vinna! Lað er hræðilegt, það er ógurlegt. Ég hata þá, eg fyrirlft þá. . . . Þig langar til að hefna Kostya hróður þíns. Þig langar til að ganga í herinn, big langar á vígstöðvarnar. Þetta er sannleik- Urinn, er ekki svo? Hef ég ekki á réttu að standa? Semyon Ivanovich skellti flötum lófunum á hné sér, reis á fætur, gekk að konu sinni, faðm- aði hana að sér, kyssti hana, og sagði: „Þú ert sannkallaður hugsanalesari, Dasha. Letta er alveg laukrétt hjá þér, ég hefði ekki get- að valið því betri orð sjálfur. Og, satt að segja, lil Jjess að ganga að fullu og öllu frá þessu, er ég þegar búinn að fylla út innritunarskjalið. Þannig standa málin, mamma. Það verður ein- um hermanni meira í Rauða hernum. Ég get ekki unnið lengur við bekkinn; það er eitthvað annað, sem knýr fastar á. Og ég er gamall her- maður, ég lifði síðustu heimsstyrjöldina, og ég er ekki búinn að gleyma að skjóta úr byssu. . . En ég hef nauman tíma til stefnu, mamma. Hjálpaðu mér að ganga frá farangrinum. ..“ ,,Ég skal sjá um |rað,“ sagði Dasha hógvær. Hún gekk að glugganum og leit út á veginn til að sjá, hvort Olya væri að koma. Á veginum var margt fólk, eins og það væri helgidagur. Allir voru fótgangandi, því að strætisvagnarnir voru ekki í gangi. Margir drógu sleða hlaðna eldsneyti eða pokum. Á sumum sleðunum sátu gamlir rnenn eða konur, dúðuð í sjöl og trefla. Einnig drógu menn vatn á sleðum, í bölum, fötum, kyrnum og kvartelum. Fólkið datt á hálli götunni, vatnið skvettist upp úr ílátunum og varð að íslagi utan á þeim. Frostið tók engu tali. Kaldur vindgustur utan af firðinum þyrlaði hörðum snjókornum í andlit og augu fólksins. Menn höfðu svartan trefil bundinn fyrir vitin og sýndust bera Itálfgrímur líkt og trúðar. Dasha stóð í sömu sporum nokkra stund og virti fyrir sér mannfjöldann, er var á sífelldu iði fram og aftur. Niður undan treflinum varð andgufan að nokkurs konar perluvef í frostinu, og hvítan eiminn lagði út frá munni vegfarandans. Það reyndist erfitt að koma auga á Olyu með vatns- fötuna í jressari iðandi mannjaröng, en hún ætti að fara að koma á hverri stundu. ,,Ég hef líka nokkuð, sem ég þarf að segja ]3ér,“ mælti Dasha, um leið og hún sneri sér frá glugg- anum. „Ég er einnig búin að taka mína ákvörð- LANDNEMINN 15

x

Landneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landneminn
https://timarit.is/publication/893

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.