Landneminn - 01.06.1948, Page 17
Sendið ráðningamar til
LANDNEMANS, Þórsgötu 1,
Reykjavík, og merkið um-
slagið G E T T U N U.
NÚ ER SUMARIÐ KOMIÐ og allir eru að fara í sum-
arfrí og þar á meðal Landneminn og ég. Næsta tölublað
Landnemans kemur ekki út fyrr en í liaust, júní- og ágúst-
wánuðir falla úr, þvl að það eru 10 tölublöð í árganginum.
^egna þess langa hlés, sem nú verður, hefur verið ákveðið
sleppa að þessu sinni verðlaunaþrautinni, en birta hins
vegar gátur, gagnfræðingaþrautir og skákþraut ásamt lausn-
um á getraunum tveggja síðustu tölublaða.
VERÐLAUNAGETRAUN 3. tbl. Þátttakendur voru mjög
margir og réttar lausnir Ijárust frá 32 lesendum blaðsins
'iðs vegar að af landinu, og eru nöfn þeirra þessi: Jón Kristj-
ansson, Rvík, Jón S. Magnússon, Rvík, Haukur Sigurjónsson,
Rvík, Jón B. Norðdahl, Rvík, Kristján Jónasson, Akureyri,
Úaraldur N. Kristmars, Siglufirði, Eiríkur Þorláksson, Rvík,
Kristján Hákonarson, Rvík, Snær Jóhannesson, Rvik, Haraldur
Tómasson, Rvík, Einar E. Tj örvi, Rvík, Sigurður Jörgensson,
^vtk, Sigurður Elíasson, Rvik, Daði Hjörvar, Rvík, Ingimar
■láliusson, Bíldudal, Ari Bogason, Seyðisfirði, Jóhann Axels-
s°n> Akureyri, Magnús Andrésson, Síðumúla, Guðmundur
Árnason, Rvik, Þorsteinn Friðjónsson, Seyðisfirði, Þorvaldur
k innbogason, Rvík, Guðmundur Á. Lúðvígsson, Rvik, Ragnar
Pálsson, Akureyri, Páll Indriðason, Akureyri, Ásgrímur Páls-
Son, Siglufirði, Kristján Larsen, Glerárþorpi, Gunnar Þor-
Itargsson, Akureyri, Páll Jónsson, Rvik, Jón Dagsson, Siglu-
iifði, Baldur Geirsson, Siglufirði, Þorsteinn Jónatansson, Ak-
Ureyri, Jón Kr. Erlendsson, Fáskrúðsfirði, Björn Sigurðsson,
Rvik. — Þegar dregið var, kom upp hlutur Ragnars Pálssonar,
Helgamagrastrœti 12, Akureyri, og getur hann vitjað verð-
launanna hjá Þorsteini Jónatanssyni, Akureyri. Rétt lausn á
f,rautinni er svona:
4189
5290
6301
7412
8523
9634
41349
VERÐLAUNAGETRAUN 4.-5. tbl. Mun færri lesendur
sendu lausnir á hinni nýstárlegu krossgátu, enda var hún
'rfiðari viðureignar en samlagningardæmið. Af 16 lesendum
sendu aðeins 7 réttar lausnir, og eru nöfn þeirra þessi: Sig-
hrður Jörgensson, Rvík, Björn Sigurðsson, Rvik, Einar E.
Ijörvi, Rvik, Jón Kristjánsson, Rvík, Kristján Hákonarson,
Rvík, Snorri Jóhannesson, Rvík, Haraldur Tómasson, Rvík.
Þegar dregið var, kom upp hlutur Kristjáns Hákonarsonar,
Balditrsgötu 9, Rvík, og getur hann vitjað verðlaurianna i
skrifstofu Æ.F. að Þórsgötu 1. — Nokkuð margar lausnir
eru möguleggr á þessari krossgátu, og er þetta ein af þeim,
sem Kristján sendi:
K A F
Ý S A
R I S
ISLENZKA GÁTAN. 17 lesendur sendu réltar lausnir á
gátu 3. tbl. og sögðu, að það væru skærin, sem „klofið og
augun hefðu mest, en vantaði ennið og nefið.“ — Réttar lausn-
ir á íslenzku gátunni í 4. og 5. tbl. sendu 8 lesendur: byssan.
„Þegar hún er feit og full, þá felur hún í sér dauðann.“
Islenzka gátan í þessu tölublaði er svohljóðandi:
Kerling ein á kletti sat
kletta byggði stræti.
Veginn öllum vísað gat
var þó kyrr í sæti.
SKÁKÞRAUTIN. 11 les-
endur sendu rétta lausn á
skákþraut 3. tölublaðs: 1.
Rd6—e4 og svartur verður
mát í næsta leik, hvað svo
sem hann gerir. — Þeir,
sem hafa átt við skákþraut-
ir Landnemans, hafa hvað
eftir annað kvartað yfir því,
að þær væru allar of létt-
ar. Mér virðist svo sem
skákþraut 4. og 5. tölu-
blaðs hafi reynzt ærið strembin, þvi að enginn af þeim,
sem oftast senda réttar lausnir, hefur látið til sín
heyra. Aðeins einn lesandi hefur sent lausn og hana
rétta og er það Hrefna Jóhannesdóttir, Ásvallagötu 59, Rvík.
Rétt lausn er svona: Fyrsti leikur hvíts er Dc6—a8. Ef
svartur svarar með e5—e4, þá leikur hvítur Da8—a3 og óverj-
andi mát í næsta leik. Ef svartur svarar með g4—g3, þá
leikur hvítur Da8—g2 og óverjandi mát í næsta leik. Aðra
möguleika hefur svartur ekki eftir fyrsta leik hvíts. — Eftir
sumarfríið skal ég láta ykkur fá enn þyngri þrautir, en hér
er ein skemmtileg þraut, sem ekki lætur mikið yfir sér.
Hvítur á að geta mátað í hálfum leik.
LANDNEMINN 17