Landneminn - 01.06.1948, Side 18

Landneminn - 01.06.1948, Side 18
f FYLKINGARFRÉTTIR j FRÁ SAMBANDSSTJÓRN. Erindreki Æskulýðsfylkingarinnar hefur ný- lega heimsótt félagana á Austurlandi. Á Nes- kaupstað mætti hann á fundi með Æskulýðs- fylkingunni og einnig efndi Æ.F.N. til opinbers útbreiðslufundar, þar sem auk erindrekans tal- aði Lúðvík Jósefsson, alþingismaður. Æskulýðsfylkingin er eina pólitíska æsku- lýðsfélagið í Neskaupstað, og er hún hlutfalls- lega langfjölmennasta deildin innan sambands- ins. Starf Æ.F.N. hefur verið mjög öflugt að undanförnu. Fundir hafa verið fjölmennir, og málfundahópur verið starfræktur i vetur af miklum krafti. Þá er og hafinn undirbúningur að bvffgingu félagsheimilis og skíðaskála fyrir félagið, og munu framkvæmdir hafnar á næst- unni. Formaður Æ.F.N. er Aðalsteinn Halldórs- son. Á Seyðisfirði mætti erindrekinn á fundi Æsku- iýðsfylkingarinnar á staðnum. Deildin þar, sem er ung að árum, hefur yfir að ráða mjög áhuga- sömum starfskröftum og félagsstarfið hefur verið allgott. Að undanförnu liefur bætzt nokkuð við af nvjum meðlimum, og inun því starfsemi fé- lagsins eflast og aukast verulega á næstunni. Formaður Æskulýðsfvlkingarinnar á Seyðis- firði er Stella Eymundsdóttir. GAGNFRÆÐINGAÞRAUTIN. Þrautin um björninn virSist hafa valdið mörgum heilabrotum og jafnvel komiS af staS rifrildi. Einn lesandi sendi mér skammarbréf og sagSi, aS þessi bjamarþraut væri sú alheimskulegasta, sem hann hefSi nokkru sinni séS. Stúlka á Akureyri, sem sendi rétta lausn á skákþrautinni, sagSi, aS bjöminn hlyti aS vera upolitaSur. Margir lesendur sögSu í bréfum sínum, aS björninn væri hvítur og hafi veriS aS spásséra á ísjaka, sem hefSi hreyfzt á meSan. HiS rétta svar viS þrautinni liggur þó í augum uppi og þrautin sjálf er engin vitleysa. Björninn var hvítur, af því aS bæli hans var nákvæmlega á NorSurpóInum. — Enginn les- andi hefur lagt á sig aS reikna út, hve eitt liósár væri langur spotti. Nú fer ljósiS meS 300 þúsund kílómetra hraSa á sekúndu og lætur því nærri aS eitt ljósár sé 9460800000000 km. — GagnfræSingaþraut þessa blaSs er fyrir málfræSinga: HvaSa fjögurra stafa orS er þaS í kvenkyni eintölu nefnifalli, sem verSur aS öSru kvenkynsnafnorSi í eintölu nefnifalli, ef fyrsti stafurinn er felldur framan af og verSur aS karlkyns- nafnorSi í eintölu nefnifalli, ef tveir fremstu stafirnir eru felldir burtu — og endar á s? ÆSKULÝÐSFYLKINGIN Á SIGLUFIRÐI. Nýlega var haldinn aðalfundur Æskulýðsfylk- ingarinnar á Siglufirði. Starfsemi félagsins hefur aukizt mikið að undanförnu, og hafa aldrei ver- ið fleiri fundir en á s. 1. vetri. Meðlimum hefur fjölgað, og fjárhagur félagsins batnað verulega. Stjórn Æ.F.S skipa nú: Júlíus Júlíusson for- maður, Einar M. Albertsson varaformaður, Hannes Baldvinsson gjaldkeri, Guðrún Alberts- dóttir ritari, Baldur Geirsson, Betty Antonsdótt- ir og Eberg Elefsen meðstjórnendur. Varastjórn skipa: Steinunn Rögnvaldsdóttir, Karl Sæmunds- son og Kristján Rögnvaldsson. DRAUMURINN UM BARRSKÖGA. — Framhald aj bls. 13. Örðugasti hjallinn á vegi íslenzkrar skógrækt ar í dag er hin efnahagslega lilið. Vér erum hér ekki að vinna fyrir oss sjálfa, heldur eftirkom- endur vora, fyrir framtíðina. En framtíðin er æskunnar. Það verður því hennar hlutverk að skipa sér í fylkingarbrjóst við að gróðursetja framleiðsluskóga íslands. í fyllingu tímans — og það verður innan fárra ára — mun verða kallað á æskulýð landsins fyrst og fremst til að hervæð- ast í þessari baráttu til að skapa nýja hráefnalind í landi voru, og bæta þarmeð einni traustri stoð undir hina alltof óstöðugu efnahagsbyggingu ís- lenzku þjóðarinnar. Ungmennafélög landsins skortir nú m;ög til- finnanlega verkefni og þess vegna eru þau ekki eins sterk og vera bæri. Skógræktarmálin eru einmitt vettvangur fyrir ungmennafélögin — meðal annars. Og víðáttumikil nakin landflæmi hrópa á pólitísk æskulýðsfélög og íþróttafélög og hvers konar samtök, sem vilja stuðla þau um, að leggia fram sinn skerf til að klæða sig hinni grænu ábreiðu. En fyrst og fremst kallar skyldan, sem vér er- um bundnir niðjum vorum, um að skila í þeirra hendur auðugra og frjósamara landi, sem býð- ur betra og öruggara líf, en því sem vér tókum við. Ef þér sinnið þessu kalli og hjálpið til að fá upp gi-æna skóga á íslandi, geta skógræktarmenn landsins óhikað lofað arftökum yðar auknu gulli til handa. SigurSur Blöndal. 18 LANDNEMINN

x

Landneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landneminn
https://timarit.is/publication/893

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.