Unga Ísland - 01.01.1905, Síða 4
2
UNQA ÍSLAND
)
línga Jsland.
Um leið og fyrsta tölublaðið af „UNGA
ÍSLANDI" fer frá oss, skulum vjer leitast
við að skýra með fám orðum stefnu ogmark-
mið blaðsins.
lnntak blaðsins verður bœði frœðandi og
skemmtandi, og sjerstaklega miðað við aldur
barnanna fram að staðfestingu, en þó jafn-
framt þannig úr garði gjört, að það megi
verða œskulýð landsins á öllu reki iil
gamans og nytsemdar.
Markmið útgefendanna cr að gefa œskulýð
íslands kost á hotlu, skemmtandi ag frœð- •
andi, efni við mjög litlu verði. Sökum þess
œtlast þeir til að blaðið geti komist inn á
hvert heímili landsins. Blaðið verður svo
fjölbreyti sem unnt er. Myndirnar fagrar og
smekktegar og aðallega miðaðar við islenzka
náttúru og þjóðlif. Málið á blaðinu láia út-
gefendurnir sjer annt um, að verði sem bezl,
og stillinn við barnanna hœfi.
Allir foreldrar, sem unna börnum sinum
— og það munu flestir gjöra — œltu eigi
siður að láta sjer umhugað um, að andlega
fœðan þeirra vœri holl og nœrandi, en hin
likamlega.
Hver sú þjóð er dauða dœmd, sem ekki
klekur upp hraustum, frjálsum og hugsandi
œskulýð. Hann er sáð komandi aldar. Sje
þctta sáð gott og frjóríkt, ber það þjóðfje-
laginu fagra og lieillarika ávöxtu á fullorð-
insárunum. Að þvi að þetta megi verða vd
fjelagið „Barnavinirnir“ vinna öllu megni.
Það vill láta blaðið sitt flytja sól og vor,
söng og angan inn á heimili barnanna. Það
villjafnt snerta tilfinningar þeirra, bœta þœr
°S örfa eins og skynsamlega hugsun. Það
víll vekja hjá þeim þá ást og trú á œttjörð-
inni, sem elur í brjósium þeirra traust á öfl-
um hennar og auði, hamingju og heill. Það
vill glœða hjá þeim trú og traust á sjálf sig,
þeirra andlegu og likamlegu hœfileika. í
einu orði innrœta þeim allt, sem er fagurt,
gott og satt, Þess vegna vona útgef, að
allir góðir menn og hugsandí í landinu, ein-
kum þó foreldrarnir, verði þessu fyrirtœki
hlynntir, en það verða þeir bezt með því að
kaupa blaðið og útbreiða.
Útg. fara þess ekki duldir, að útgáfa
blaðsins muni ekki i bráð veita þeim fje i fang,
þvi að myndir og myndaprentun er mjög
kostnaðarsöm. En mœtti þetta verða til að
þroska og auðga anda og hjarta barnanna,
þá er titgangiþeirra náð.
Útg. biðja lesendur blaðsins velvirðingar
á þvi, að blaðið getur eigi strax orðið svo
fjölskrúðugi að myndum og efni, sem iil er
œtlast, en siðar i vetur fœr það fjölda mynda
frá útlöndum, og margt annað, sem til útgáf-
unnar þarf.
Hverri mynd mun fylgja athugusemd og
skýringar, þegar þurfa þykir, svo að þœr
komi börnunum að sem beztu haldi.
Það, sem nú þykir á skorta, að því er efni
blaðsins snerlir, viljum vjer bœta upp siðar,
eftir föngum. Viljumvjerþvi biðja kaupendur
að hafa nokkra bíðlund ogeigifella dóm um
blaðið fyrr en fram í sœkir.
Að svo mœltu óskar „UNGA ÍSLAND“
öllum lesendum sínum Sleðilegs nýjárs!
ÚTG.
Nýja árið.
'Pfamla árið var liðið og horfið í djúp
M tímans, en nýársmorguninn fyrsti
runninn úr hafi fagur ogblíður. Hann
þokaði sjer smátt og smátt hærra og
hærra upp á himinninn og varð allt
af bjartari og bjartari yfirlitum og hýrri
í bragði. Hann renndi glaðlega og
rótt augunum yfir jörðina kalda og
hrímgaða og vaggaði sjer á öldum
himinblámans öruggur og einarðlega
yfir lognhvítum sænum, fannbreiðunni
stálhaldri og fjallatindunum hljóðum
og hjelukrýndum. Hann guðaði á
gluggann í höll og hreysi og leit inn
til fátækra og ríkra. Hann sveif yfir