Unga Ísland - 01.01.1905, Page 9

Unga Ísland - 01.01.1905, Page 9
UNOA ÍSLAND 7 rúnir2, og reita geithafurinn, því ekki mun hann deyja ráðalaus Hann leysir þrautina og verður maður konungs- dótturinnar fögru og höfðingi lands og Iýða. Þessu hafði konungurinn, faðir hennar, lýst yfir. — Hann brá við, skundaði heim og gleymdi skuld- um sínum, bágindum og basli sökum nýju sögunnar, er hann hafði heyrt. Þegar hann kom heim, flýtti hann sjer að segja kerlingu sinni tíðindin. Næsta morgun kallaði hann á Hjálm- rek og sagði honum alla söguna; fjekk honum nesti og nýja skó og annan farkost. Heiman - búnaðurinn var skammur og undinn bráður bugurað förinni. Hann var nú brátt ferðbúinn og hjet að senda vagn með sex hestum fyrir eftir foreldrum sínum; hann þótt- ist þegar vera orðinn konungur. Ljet hann nú all-drembiléga og svalaði skapi sínu með því að gjöra öllu mein, er varð á vegi hans. Fuglana fældi hann úr limi trjánna, er sátu þar og sungu skapara sínum Iof, hver með sínu nefi; hvert dýr, er hann komst í færi við, hrekkti hann með einhverju. Fyrst mætti hann maura-flokki, og skemmti sjer við að láta hestinn troða þá sundur undir hófunum. Maurarnir, sem undan komust, urðu reiðir, skriðu á hann sjálfan og hross- ið og bitu þau. En hann marði þá alla sundur og drap. Síðan kom hann að tærri og fag- urri tjörn. Syntu á henni tólf endur. Hjálmrekur ginnti þær að bakkanum og fjekk drepið ellefu, en sú tólfta komst undan. Að lokum fann hann Ijómandi fal- legt býflugnabú. Býflugurnar Ijek hann3 eins og maurana. Pannig var 2) mun geta ráðið fram úr þessu, sigrað þessa þraut. 3) Fór hann með ; að leika einhvern grátt eða illa, er að fara illa með hann. það hans mesta gleði að kvelja og drepa aumingja saklausu kvikindin. Um sólarlag kom hann að fagurri og skrautlegri höll. í henni sat kon- ungsdóttirin í álögunum. Hliðin voru harðlokuð. Hann barði freklega að dyruin, en enginn gegndi. Dauða- þögn og grafkyrrð hvíldi yfir öllu. f'ví ákafara og harðara knúði hann hurð- ina4, sem seinna var til dyra gengið5 6! Loksins laukst upp gluggi og eld- gömul kerling með náfölu andliti leit út og spurði hann reiðulega erinda. »Jeg er kominn tilaðleysa vandkvæði konungsdótturinnar«, mælti Hjálm- rekur, »ljúktu upp fyrir mjer strax.« »FIas gerir engann flýti, drengur minn« svaraði gamla konan. »Það er nóg- ur tími á morgun; kom þú hingað í fyrramálið.« Að svo mæltu lokaði hún glugganum og hvarf honum. Hjálmrekur kom til mótsins um morguninn á ákveðnum tíma. Var þar kerling fyrir og hjelt á bakka kúf- uðum afhörfræi. F*egar minnst varði, sveiflaði hún bakkanum og' sáði fræ- inu út í allar áttir, tók hún síðan til orða og mælti: »Tíndu upp öll fræ- kornin; stundu seinna mun jeg koma hingað og skaltu þá hafa lokið verk- inu.« — En Hjálmreki þótti sem þetta mundi gaman eitt og Ijet sjer eigi til hugar koma að starfa að því. í þess stað tók hann að ganga sjer til skemmt- unar og þegar gamla konan kom aft- ur, var bakkinn tómur sem fyrr. »IIIa hefur nú tiltekizt«, mælti hún. Síðan tók hún úrvasa sínum tólf lykla gulli roðna0; og varp7 hverjum að öðr- um í tjörn eina mikla, myrka og djúpa, sem þar var, og hjet Hallartjörn. »Kafaðu niður eftir lyklum þessum«, mælti hún, »að stundu liðinni kem jeg 4) barði hann á dyrnar. 5) komið til dyranna. 6) gullroðinn eða gylltur. 7) kastaði,

x

Unga Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.