Unga Ísland - 01.03.1910, Síða 3

Unga Ísland - 01.03.1910, Síða 3
UNGA ÍSLAND. 19 þú vetrungur, hvar náðirðu í þennan hvíta feld?« »Jeg náði ekki í hann«, sagði Iíotick, »hann óx«. Og rjett í því hann ætlaði að velta ura hrigg þeim, sem talað hafði, komu tveir svart- hærðir, breiðleitir, rauðir menn fram undan sandhól, og Kotick, sem hafði aldrei sjeð mann áður, hóstaði og beygði niður höfuð sitt. Yngisselirnir skokkuðu undan nokkra faðma og námu svo staðar og gláptu á mennina eins og tröll á heiðríkju. Mennirnir voru sjálfur Kerick Booterin, foringi seladráparanna á eynni, og Patalamon sonur hans. Þeir komu frá þorpi einu litlu, sem lá ekki hálfa mílu frá sel-látrunum, og eriudi þeirra var að velja úr þá seli, sem þeir ætluðu að reka í drápskvíarnar, (því að selirnir eru reknir eins og sauðfje), svo að þeim yrði breytt í selskinnstreyjur síðarmeir. »Hó!«, sagði Patalamon. »Líttu á! Þarna er hvítur selur!« Kerick Booterin fölnaði upp undir lýsinu og sótinu, því hann var Aljúti °g Aljútar eru ekki þriílegir menn. Þvi næst fói’ liann að þylja bænir s‘>iar. »Snertu ekki á honum, Pat- alamon. Það hefir aldrei verið hvítur selur síðan — síðan jeg fæddist. Ef úl vill er það svipur Zaharrofs gamla. l>ann druknaði í ofsaroki árið sem leið«. »Jeg ætla ekki að koma nálægt honum«, sagði Palalamon. »Hann ei' óheillavænlegur. Heldurðu að það sJe Zaharrof gamli genginn aptur? Jeg skulda honum fyrir nokkur >náxvegg«. »Littu ekki á hann«, sagði Kerick. »Beklu burt þennan lióp af fjögra ^etra selum. Mennirnir ættu að flá í dag, en það er byrjun dráp- úmans og þeir eru óvanir verkinu. 1 hundrað nægir lianda þeim. Flýttu Þjer!« Patalamon hringlaði í tveimur sels- herðablöðum fyrir framan hóp af jmgisselum, og þeir námu þegar staðar másandi og blásandi. Þvi næst færði hann sig nær og selirnir fóru að liafa sig á stað, og Kerick rak þá inn i landið, en þeir reyndu alls ekki að komast aptur til fjelaga sinna. Selirsvo hundruðum þúsunda skipti horfðuá þá rekna, en þeir hjeldu áfram leikum sinum eins og ekkert liefði í skorist. Kotick gerðist einn til að spyrja, og enginn af fjelögum hans gat sagt hon- um neitt, nema það, að mennirnir rækju ávalt burt seli á þennan liált um 6 eða 8 vikna tíma hvert ár. »Jeg ætla að elta«, sagði hann, og augun ætluðu út úr honum er haun dragnaðist áfram á eptir hópnum. »Hvíti selurinn kemur á eptir okkur«, æpti Patalamon. »Það er í fyrsta skipti sem nokkur selur lieíir lcomið á drápsvöllinn af sjálfsdáðum«. »Þey! Líttu ekki aptur«, sagði Kerick. »Það er svipur Zaharrofs! jeg verð að tala við prestinn um þetta«. Það var að eins hálf míla til blóð- vallarins, en þeir voru klukkustund á leiðinni sakir þess að Kerick vissi, að færi hann of hart, mundu selirnir hitna og skinnið síðan losna af þeiin í stykkjum þegar þeir væru flegnir. Þess vegna lijeldu þeir áfram mjög hægt, fram hjá Sæljónseiði og Web- stershúsi, uns þeir komu að salthús- inu sem lá svo, að rjelt að eins fal sýn fyrir selunum í fjörunni. Kotick elti másandi og forviða. Hann hugði að hann væri kominn á enda lieims, en öskrið frá sel-látrunum að baki honum var að heyra sem dynur af eimlest í berggöngum. Því næst sett- ist Kerick niður á mosann, dró upp messingúr eitt mikið og ljet hópinn kæla sig í 30 míilútur, og Kotick gat heyrt þegar þokuvætan lak af hatt- barði hans. Því næst komu þar 1Q

x

Unga Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.