Unga Ísland - 01.03.1910, Síða 5

Unga Ísland - 01.03.1910, Síða 5
21 UNGA ÍSLAND. ungseyjar, sem er lítil, lág og klettótt eyja, hjer um bil beint í norðaustur frá Novastoslina, þar sem hamrasyll- urnar eru alseltar mávahreiðrum og rostungarnir hafast við einir sjer. Hann lenti nálægt Sæforna, hinum afarstóra rostung, sem á heima norð- an til í Kyrrahafi og er ljótur, spik- þrútinn, nöbbóttur, digursvíraður og liefir langar skögultennur; liann er mjög ófrýnilegur nema þegar liann er í svefni, eins og þá var, og löfðu afturhreif- arnir til liálfs niður í sjóinn. »Vaknaðu!« sagði Kotick og brýndi raustina, því að mávarnir liöfðumjög hátt. »Ho! Ho! Hurf! Hvað er þetta«, sagði Sæ- forni og laust næsta rostung með skögultönn- um sínum; sá laust þann sem næstur var og gekk svo koll af kolli uns þeir vöktu allir og gláptu í allar áttir nema þá sem rjett var. »Hi! Það er jeg«, sagði Kotick, sem hossaðist i ylgjunni og leit út eins og lítill hvítur snigill. »Nú, nú! Flái mig!« sagði Sæforni, og þeir litu allir til Koticks eins ogfjelag sifjaðra roskinna heiðursmanna mundi líta til drenghnokka. Kotick fýsti ekki að heyra meira um fláning í svip; honum var nóg boðið af því sem hann hafði sjeð af sliku; hann kallaði því upp: »Er enginn staður til, þar sem selir geta komið, en menn aldrei?« »Farðu og findu hann«, sagði Sæ- forni og lokaði augunum. »Hafðu þig á burt. Við eigum annríkt hjer«. Kotick slökk í lopt upp eins og höfrungur og æpti eins hátt og hann gat! »Skelæta! Skelætak Hann vissi að Sæforni hafði aldrei á æfi sinni tekið fisk, en var altaf að grafa til skelja og róta i þangi, þó að hann þættist vera mjög geigvænlegur ná- ungi. Allir sjófuglarnir, ritur og kríur og lundar og svartbakar, sem sjá sig aldrei úr færi til að sína af sjer ókurteisi, tóku svo sem auðvitað undir hrópið og — eptir því semLimmer- shin sagði mjer — í alt að því fimm mínútur liafði ekki heyrst bj'ssuskot á Rostungsevju. Allir eyjarbúar görguðuí sífellu: »SkeIæta! Starík(karldurg- ur)!« en Sæforni byltisjer og lióst- aði og stundi. »Viltu nú segja fráþví?« sagði Kotick lafmóður. »Farðu ogspurðu Sækúna« sagði Sæforni. »Ef hún er á lífienn, mun hún geta sagt þjer það«. »Hvernig á jeg að fara að þekkja sækúna?« sagði Kotick og snerist til burtferðar. »Það er eina skepna í sjó, sem er ófríðari en Sæforni« gargaði svart- bakur einn og vatt sjer rjett um gran- irnar á Sæforna, »sem er ófriðari og kann sig ver! Staríttw1. (Frh.) 1) Líkt eftir niávagargi; sbr. orðið kria. Fýð. Henrik lbsen.

x

Unga Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.