Unga Ísland - 01.10.1916, Síða 8
80
UNGA ÍSLAND
að afa, hefir maður ráð á, að horga
vel fyrir eina pönnuköku«.
»Dæmalaust! Það hefði eg átt að
vita«, sagði konan, »þá skyldirðu
hafa fengið hníf og gaifal til að borða
pönnukökuna með«.
Týnda brúðan.
Einu sinni, þegar Viktoría Englands
drotning dvaldi í Skotlandi, fekk hún
bréf frá lítilli stúlku. Bréfið hljóðaði
þannig: »Kæra frú drotning«, og litli
bréfritarinn sagði henni svo frá því,
að brúðan hennar hefði dottið ofan
í holu á fjalli einu þar nálægt, og
eftir ællun hennar dottið »gegn um
jörðina«.
Af þvi hún hafði heyrt, að drotn-
ingin ætti land hinum megin ájörðinni,
bað hún hana, góðu drotningu, að
gefa skipun, að þeir, sem þar byggju,
sendu hana aftur«.
Pegar búið var að rannsaka, að
bréfið var skrifað í fullri alvöru, sendi
drotningin litlu stúlkunni njTja brúðu.
Skrítlur.
»Sigurður segist lifa alveg fyrir lisl
sína«.
»Já, að minsta kosti lifir hann ekki
af henni«.
»Hvað er fjármálamaður, pabbi?«
»t*að er sá maður, sonur minn,
sem tekur lán og lætur lánveitanda
borga renturnar«.
Drengur gekk inn í mjög skraul-
lega búð, lagði hálsbindi á borðið
og sagði:
»Eg keypti þetta í fyrradag og eg
vil skila því aftur«.
»En það hefir verið brúkað«.
»Já, eg brúkaði það í gær. Eg var
að biðja mér stúlku og hún neitaði
mér, og það er einmitt þess vegna,
að eg skila því«.
»Fer þú á sunnudagaskóla á hverj-
um sunnudegi, drengur minn?«
»Já, alt af; ef eg geri það ekki,
þá lofar pabbi mér ekki á Bió«.
Myndagátu.
Ráð nin gar
á gátunum í 7. tbl. U. fsl.
Myndag.: Kári. Loki.
1. Fossinn.
2. (Stafat.). 1. svar, 2. vara, 3.
Aron, 4. rani.
Þeir, sem ekki fá Unga ísland með
góðum skilum, eru vinsamlega beðnir
að láta afgreiðsluna vita sem allra
fyrst.
Blaðið er ætíð sent reglulega með
póstum, svo þess vegna ættu kaup-
endur að fá það með bestu skilum.
Útgefendur: Steingr. Arason. Jörnndnr Brynjólfsson
Prentamiðjan Gutenberg.