Unga Ísland - 01.08.1919, Side 8
64
UNGA ÍSLAND
Helena eftirfarandi brjef til Dr.
Holmes:
South Boston, Mass.,
1. mars 1890.
Kæra skáld!
Jeg liefi hugsað um þig oft og
löngum, síðan sunnudaginn inndæla,
þegar jeg kvaddi þig, og nú ætla jeg
að skrifa þjer brjef, af því að mjer
þykir svo vænt uin þig. Mjer þykir
svo leiðinlegt að þú skulir ekki eiga
nein lítil börn, til þess að leika þjer
við af og til; en jeg beld að þjer
líði samt ósköp vel bjá bókunum
þínum og mörgu, mörgu vinunum.
Hjer var fjöldi af gestum á afmæl-
isdegi Washingtons; komu þeir til að
sjá blindu börnin. Jeg las fyrir þá
mörg af kvæðunum þínum og sýndi
þeim ljómandi fallegar skeljar, sem
komu frá lítilli eyju nálægt Palos.
Jeg er að lesa ósköp sorglega sögu,
sem heitir »Lilli Jakey«. Jakey var
yndislegasti drengur, sem bægt er að
hugsa sjer, en hann var fátækur og
blindur.
Jeg hafði þá hugmynd, þegar jeg
var lítil og kunni ekki að lesa, að
allir menn væru altaf hamingjusamir,
og svo þótti mjer svo fjarska leiðin-
legt að heyra um sorgir og sársauka,
en nú veit jeg, að við gætum aldrei
lært að vera hugrökk og þolinmóð,
ef ekkert væri til í heiminum nema
gleði.
Jeg er að lesa um skordýrin; jeg
liefi lært mikið og margt um íiðr-
ildin. Þau gefa okkur ekki hunang
eins og býflugurnar, en mörg af
þeim eru eins falleg og blómin, sem
þau sitja á, og þau auka á gleði litlu
barnanna. Þau lifa inndælu lí fi,
fljúga blóm af blómi og drekka hun-
angsdöggina og kvíða engu. Þau eru
alveg eins og litlu piltarnir og stúlk-
urnar, sem gleyma bókum og námi
og þjóta úl í skóg og graslendi, til
að safna viltum blómum, vaðá út í
tjarnirnar eftir vatnasóleygjum og eru
glöð í sólskininu.
Ef hún litla systir mín kemur til
Boston í júni nk., viltu þá lofa mjer
að koma með hana, henni þætti svo
gaman að sjá þig? Hún er yndislegt
barn, jeg er viss um að þjer mundi
þykja vænt um hana.
Nú verð jeg að kveðja skáldið
mitt góða, því að jeg þarf að skrifa
brjef heim, áður en jeg fer að hátta.
í*in litla elskandi vina
Helen Keller.
(Frh.).
Samgönguvandræði valda því, að
kaupbætirinn getur ekki komið að
þessu sinni. Verður liann sendur við
fyrsta tækifæri, öllum þeim sem þá
hafa greitt andvirði blaðsins.
AV. Hafið þjer gjörsl kaupandi að
»Eimreiðinni<<?
Unga ísland,
barnablað með myndum. Kemur út einu
sinni í mánuði í 4 blaða broti, og auk
þess tvöfalt jólablað. Verð árg. er 2 kr.,
er borgist fj'rir júnilok ár hvert. Skilvísir
kaupendur fá kaupbæti.
núrnUPrnHarÍnn ræðil' dýraverndunarmálið og
uyi avemaarinn nytur dýrasögUr. Sex arkir«
ári, verð 1 kr. Mynd i liverju blaði, þegar kosíur
er. — Utgefandi: Dýraverndunarf]elag Islands. —
Afgreiðsla: Laugavegi C3, Reykjavik. — Ctsölumeim
fá íimta livert eintak i sölulaun. :: :: ;: ::
Útgefendur: Steingr. Arason
Og
,,Skólafjelag Kenuaraskólaus“.
Ritstj.: Steingr. Arason.
Utanáskrift blaðsins (ritstjóra og af-
greiðslumanns) er:
Unga íslund,
Box 337,
Prenlsmiðjan, Gutenberg.