Unga Ísland - 01.09.1929, Blaðsíða 2

Unga Ísland - 01.09.1929, Blaðsíða 2
66 UNGA fSLAND að ólmast í kringum liann, til þess að æsa hann. „Varaðu þig nú, Gunna mín“, sagði Óli. „Nú leysi jeg hann, og nú verður hamagangur á hí)'num“. „Hana nú! Húrra!“ Kusi kom með loftköstum miklum fram af básnum og hljóp ofan á Gránu gömlu. Hún lá í makindum og átti einskis ills von. Hún stóð á fætur og teygði úr sjer. Óli og Gunna voru nú i sjöunda himni um stund. Kusi hamaðist í tryllingi, sperti upp rófuna og gekk á ýmsurn endum. Kýrnar stóðu upp, börðu hölunum og bauluðu. Bolsi tók að kveða við raust, og gerðist nú hávaðasamt i fjósinu. Kusi hljóp upp í auða básinn og setti um allar vatnsföt- urnar. Rann vatnið fram flórinn, og flaut yfir þröskuldinn. Hey- laupur var i tröðinni. Kusi setti báðar framlappirnar ofan í hann og dró hann með sjer um flór- inn, þangað til að laupurinn möl- brotnaði. Gerðist nú svakksamt i fjósinu og leist Óla ekki á blik- una. En þvi hræddari sem hann varð um það, að kálfurinn ætlaði að umturna öllu í fjósinu, því meira gaman þótti honum að lát- um hans. Veltust þau um af hlátri, Gunna og Óli. En nú gerðist atburður, sem breytti skapi þeirra skyndilega: Kusi þaut fram eftir flórnum og lenti svo óþyrmilega á hurðinni, að hún skall upp á gátt, og í sömu svipan var kusi horfinn út úr dyr- unum. Óli rak upp angistaróp og stökk út úr fjósinu. Einhver hafði sagt honum, að kálfar dræpi sig, ef þeim væri slept lausum úti, því að þeir stykkju á hvað sem fyrir væri. Óli sá sannreynd þessa und- ir eins og hann kom út úr dyr- unum. Kusi hafði hlaupið beint i safnforina, en ís var á henni og þítt ofan á honum. Hafði kusi bleytt sig allmikið að neðan, þeg- ar hann skriðnaði til á klakanum. Kusi var kominn út á fiötina, þegar Óli kom út úr fjósinu. Sá Óli aftan á hann, þar sem hann hljóp og bar halann við loft eins og siglu á skipi. Óli hljóp á eftir honum með öndina í hálsinum. Hann vissi i raunini ekki, hvað hann átti að gera, þvi að enga von gat hann gert sjer um að ná kusa. Kusi hljóp og hoppaði, nam staðar öðru hvoru og sneri sjer að óla, skók hausinn og bljes. Hann stefndi út tún. „Ef hann kæmist nú alla leið út að Djúpa- gili“, hugsaði Óli. „Þó steypir hann sjer á hausinn niður í gilið, og þá er úti um hann“. óli hljóp og bljes þungan. Stundum var hann hálfkjökrandi og bað fyrir sjer og kusa. Stundum var reiðin

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.