Unga Ísland - 01.02.1933, Page 18

Unga Ísland - 01.02.1933, Page 18
30 UNGA ÍSLAND _______rrU______________________Ai________ UNGA ÍSLAND. Bign Rauða Jvross íslands. Kemur út 12 sinnum ú ári; alls 192 bls. Verð bla'Ösins er aöeins kr. 2,50 árg\ lUtstjórar: Steingrímur Arason, Arngrímur Kristjánsson. Gjaldkeri blaösins er Arngrímur Kristjáns- son, Bergþórugötu 33, sími 2433. Utanáskrift bla'ðsins öllu viövíkjandi er: Pósthólf 363. Aöal útsölu Unga íslands í Reykja- vík annast Bókhlaöan, Lækjargötu 2. — Þar er t.ekiö á móti nýjum kaupendum og andviröi blaösins. Prentað í ísafoldarprentsmiöju h.f. er boðið þeim. Sá maður, sem notar tóbak og drekkur áfengi, getur aldrei á neinn hátt orðið jafn duglegur og sá maður, sem ver líkama sinn gegn þess- um skaðlegu eiturnautnum. Nú ætla ég að segja söguna af því, þegar tó- bakið barst til Evrópu. I Ameríku vex tóbaksjurtin. Menn fóru að taka eftir því, að flugurnar forðuðust hana. Svo flugurnar höfðu á þann hátt meira vit en við mennirnir. Seinna tóku menn- irnir upp á því að reykja það, því þeim fannst koma ilmandi lykt, þegar kveikt var í því. Svo bar læknir einn það til Englands. Alltaf læsti hann herberginu, þegar hann var að reykja. En einu sinni gleymdi hann því. Og þjónninn kom inn um leið og hann spúði út úr sér reyknum. Þjónninn brá við og náði í vatnsfötu og skvetti á lækninn. En þetta gerði hann í bestu meiningu, því hann hélt að það væri að kvikna í húsbóndanum. Smátt og smátt breiddist það til annara landa, og nú er það notað um allan heim. Að end- ingu vil eg biðja öll börn að byrja aldrei á þeim ósið að reykja. Kristmann Hjörleifsson, 12 ára. Besti greiðinn, sem þið getið gert Unga íslandi, er að útvega því nýja kaupendur. Ef ykkur finnst sjálfum Unga ísland skemmtilegt aflestrar, og þess vert að ná útbreiðslu meðal yngstu lesendanna í landinu, þá er það skylda ykkar að vinna að útbreiðslu blaðsins. Unga ísland er stærsta, ódýrasta og fjölbreyttasta barna- og unglingablað- ið, sem gefið er út hér á landi. — Safn- ið nýjum kaupendum. — Fjölgun kaup- enda er lífsskilyrði fyrir Unga ísland. Talna-maður. Hvað hefir þessi skipstjóri siglt oft ■ á milli Islands og annara landa? Ráðning á þraut í síðasta blaði: Jón- ína át yfir sig. Sigga (7 ára): Siggi vill ekki vera með í mömmuleiknum, af því að við látum hann leika pabba. Siggi: Nei, það er ekki af því, það er ekk- ert að gera nema að kveðja og fara í vinnuni.

x

Unga Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.