Unga Ísland - 01.08.1933, Side 4

Unga Ísland - 01.08.1933, Side 4
112 unga ísland ings, að hæna að bústöðum sínum fugl- ana, gefa þeim á vetrum, sem hér verða eftir á haustin og setja hreiðurkassa á húsin handa þeim, til þess að verpa í á vorin. í húsi einu rétt hjá Reykjavík1) verpti marjátla meðan verið var að byggja það. Eigandi hússins lét bíða með að ljúka við nokkurn hluta af húsi sínu, þar til að ungarnir voru komnir úr hreiðr- inu. Börn hans höfðu mikið yndi af að athuga þesa litlu gesti, sem voru fyrstu íbúar hússins. — Þau hafa látið falleg hreiðurhús á þrjástaði á húsinu, og hafa marjátlur jafnan verpt í eitt þeirra á hverju vori, en þegar hjón eru flutt í eitt húsið, líða þau engum að setjast að í hinum, svo að aldrei eru íbúar í nema einu húsinu. Á hverju vori hlakka börnin í þessu húsi til þess, að gestirnir þeirra fari að koma. Mikla gleði og mikinn fróðleik hafa þau af að gefa fuglunum og horfa á þá. Þar hefir aldrei neinn unnið þeim mein, enda eru þeir gæfir og óhræddir. II. Hér er sönn saga og ný frá Banda- ríkjunum. Járnbrautarvagn, sem flutti lestar- þjóna, var á ferð frá Hartford til Michigan. Vagnstjórinn tók eftir litl- um söngfugli, sem flaug með lestinni. Hversu hart sem hún fór, fylgdi rauð- brystingurinn með, eins og hann ætti lífið að leysa. Vagnstjóranum datt í hug fólk, sem gleymir einhverju og kemur svo á síð- ustu stundu með öndina í hálsinum. ,,Hvað ætli þessi litli fugl sé að viþja“, ’) Hús Eiríks Hjartarsonar: Laugardaiur. sagði hann við mann, sem stóð hjá hon- um. „Ætli að liann sjái ekki tólffótung uppi á vagninum", sagði hinn. ,,Ónei“, svaraði vagnstjórinn. „Fugl- inn hallar höfðinu og horfir niður á hjólin“. Nú fóru aliir í vagninum að athuga málið. Þeim gekk til hjarta að sjá, hve mikið fulginn lagði að sér. Það var eins og hann hefði fastráðið, að springa fyr á fluginu, en að verða að sleppa af vagninum. Það var sama spurningin í allra hug og á allra vörum: „Hvað á að gera?“ Allir litu til vagnstjórans eftir svari. Það var nú farið að hægja á íerðinni, eins mikið og hægt var, og svo var far- ið að reyna að uppgötva orsökina að þessu háttalagi fuglsins. Loks kom það í ljós, að í horninu undir vagnkassanum, þar sem járn- bitarnir koma saman, var ofurlítið hreiður, fallega ofið úr stráum og vel skorðað. í hreiðrinu lágu þrjú, lítil, ljósblá egg. Vagnstjórinn fór nú eins gætilega og ef hann hefði flutt forsetann og alla hans f jölskyldu í vagninum. En honum leið allt af ver og ver eftir því sem hann hélt lengra. — Hann sárlangaði til að bjarga litlu eggjunum. Loks gat ekki veslings litla móðirin fylgt þeim lengur. Það síðasta, sem þeir sáu til hennar var, að hún settist aðfram komin á tré sem stóð við veginn. Á leiðinni til baka voru þeir allt af að svipast eftir fuglinum, en þeir sáu hann hvergi. — Þeir komu nú heim til Hartford og settu vagninn nákvæmlega á sama stað í garðinum og hann hafði verið. En ekki leið augnablik frá því hann nam staðar og þangað til rauð- brystingurinn var floginn á eggin.

x

Unga Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.