Unga Ísland - 01.08.1933, Side 11
UNGA ÍSLAND
119
V e s ú v í u s.
Hér er mynd af einhverju frægasta
eldfjalli í heimi. Það rís yfir 1200
metra hátt í suðaustur af Neapel,
hinni undurfögru borg.
Fjallið á sér fræga sögu. Á dögum
forn-Rómverja virtist það útbrunnið,
eða hætt að gjósa. Má til dæmis um
það nefna, að útileguamaður einn —
Spartakus að nafni — hafðist við í
8'ígnum. Þar hafði hann gott vígi og
sá vel til mannaferða.
Fyrsta eldgosið, sem við höfum
sagnir af, varð árið 79 eftir Krists
fæðingu. Auðvitað hefir fjallið gosið
óendanlega oft áður, því að það er
þann veg til orðið, að eitt gosið hefir
hlaðið hraun- og öskulagi ofan á ann-
að, þangað til þessi himingnæfandi
keila var mynduð.
Það var 24. ágúst árið 79, að gos-
ið varð. Er enn hægt að lesa lýsingar
á gosinu, skrifaðar af sjónarvottum,
Pliníusi hinum yngri og Tasítusi. —
Pliníus eldri fórst af völdum gossins.
Því fylgdi svo mikill kraftur, að þrjár
borgir huldust hrauni og ösku á vet-
fangi. Borgirnar hétu Pompeii, Her-
kúlanum og Stabiæ.