Unga Ísland - 01.08.1935, Síða 13

Unga Ísland - 01.08.1935, Síða 13
UNGA ISLAND 129 gefa Amundsen kost. á styrk til ferð- arinnar gegn því, að hann fengi að fara með honum. Amundsen féllst á þetta. Einhverju sinni bar saman fund- um þeirra Ellsworth eldra og Am- undsens. Segir Ellsworth þá: „Setjum nú svo, að ég hætti við að styrkja yður til ferðarinnar. Hvað munduð þér þá gei*a?“ — „Sama og ég hefi gert hingað til. Halda áfram undir- búningnum án hjálpar yðar“, svaraði Amundsen tafarlaust. Viðkvæði Amundsens var allt af þetta: Þegar mest á ríður, kemur hjálpin. Sama sagði hann, þegar hann lenti í hættum og örðugleikum á flugferðum sínum. Ellsworth féll svar þetta einkar vel. Amundsen fékk styrkinn og Lincoln Ellsworth fór með honum til Noregs. Þar fór allur undirbúningur fram og var ákveðið að leggja upp frá Spitsbergen. Eftir að landkönnuðirnir höfðu eytt löngum tíma til undirbúnings, sem mest fór í að útvega skip og flug- vélar til ferðarinnar, lögðu þeir af stað frá Þrándheimi þ. 9. apríl 1925. Riiser-Larsen, Dietrichson, Omdal, Berge ljósmyndari og Green vélfræð- ingur, fóru á vélskipi með báðar flug- vélarnar, en Amundsen, Ellsworth, Torkelsen liðsforingi, Horgen og fleiri fóru á öðru skipi með Hagerup sjóliðsforingja. Við að lesa frásagnir Amundsens '— þessa óbugandi manns — getur maður skilið, að hann telur sjóferðina til Kingsflóa á Spitsbergen kvíðvæn- iegasta hluta leiðarinnar. Þegar til Kingsflóa kom, var farið að setja flugvélarnar saman og und- irbúa flugið. Þessu lýsir Amundsen þannig: Eftir 4. maí byrjuðum við. Ókunnugir öllu og hvíldarlaust unn- um við í óstöðugri veðráttu hina stuttu daga. Er ég leit út um glugg- ann að morgni þess 21. maí, sá ég að burtfarardagur okkar var kom- inn. Það var unaðslegt sumarveður með litlum andvara frá firðinum. — Þegar klukkan var tíu mínútur yfir fimm, voru hreyflarnir farnir að hitna. Nú var lagt af stað, og var hugmyndin að reyna að halda hóp- inn. „Velkomnir á morgun“, voru síðustu orðin, sem Amundsen heyrði. Flugvélarnar hurfu sem örlitlar agn- ir í norður. Amundsen var stjórnandi vélarinn- ar nr. 25, en loftskeytamaður var Riiser-Larsen og Feucht var vélstjór- inn. Lincoln Ellsworth stýrði vélinni nr. 24 og með honum voru Dietrich- son loftskeytamaður og Omdal vél- stjóri. Sex menn alls. Hér tekur svo Ellsworth við frá- sögninni. Tvo fyrstu tímana var flog- ið gegnum þykka þoku og flugið hækkað upp í 3000 feta hæð. Þá sjá þeir regnboga, en í gegnum glufu á þokunni sjá þeir niður á sjóinn.. En svo huldi þokan þá að nýju. Hið eina, sem þeir sáu eftir það, var heimskautaísinn, er breiddi úr sér fyrir augum þeirra, þegar skyggnt var; það var stærsta ís- og snjóbreið- an, sem til þessa hafði verið litin af mannlegu auga. Hið eina, sem truflaði tilbreyting- arleysi þessara hvítu auðna, 60 til 70 km. til allra hliða, voru sprung- urnar í ísnum, er breiddu úr sér eins og þéttriðið net. Flugvélarnar svifu yfir íssprungunum með 75 mílna hraða á klukkustund.

x

Unga Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.