Unga Ísland - 01.08.1935, Blaðsíða 18

Unga Ísland - 01.08.1935, Blaðsíða 18
134 UNGA ISLAND UNGA ÍSLAND Eign Rauöa Ivross íslands. Kemur út 12 sinnum á, ári; alls 192 bls. Verö blaösins er aöeins kr. 2,50 árg. Gjalddagi blaösins er 1. april. Ritstjórn annast: Arngrímur Kristjánsson, Bjarni Bjarnason, Kristín Thoroddsen. Gjaldkeri blaösins er Arngrímur Kristjáns- son, Egilsgötu 24, sími 2433. Utanáskrift blaösins öllu viövíkjandi er: Pósthólf 363. Aöalútsölu Unga íslands í Reykja- vík annast Bókhlaöan, Lækjargötu 2. — Þar er tekiö á móti nýjum kaupendum og andviröi blaösins. Prentaö I ísafoldarprentsmiðju h.f. í steinlagða húsagarðinum heima hjá þeim. En svo gerði rigningu. Syst- urnar fengu þá ekki að fara út í garðinn hinumegin við götuna, og þær fengu ekki helclur að leika sér í steinlagða garðinum heima. „Þið óhreinkið þar kjólana ykkar“, sagði amma þeirra. Hún sat við vinnu sína og ætlaði að hlusta á útvarpið um leið. Þá kom eldri systirin til hennar. „Sko, amma“, sagði hún, „handleggurinn er dott- inn af gömlu brúðunni minni- Viltu festa hann?“ Svo kom sú yngri og sagði: „Amma, lagaðu augun í stóru brúðunni. Hún get- ur ekki sofnað“. Svona létu syst- urnar alltaf. Þær voru sífellt að kvarta yfir einhverju, þangað til amma þeirra missti þolinmæðina og rak þær upp á háaloft. Það gerði hún æfinlega, þegar hún lagði sig, eða vildi hafa næði. Hún vissi að þeim var óhætt þar. Hún hafði látið setja járngrind fyrir gluggann, svo að þær gætu ekki dottið út um hann, blessaðir litlu óvitarnir. Systurnar höfðu oft unað sér vel í litla herberginu, uppi á háalofti. Þar var lítið borð og tveir stólar, sem amma þeirra hafði gefið þeim. Yngri systirin lá á hnjánum við að hátta brúðurnar sínar, en eldri systirin sat við gluggann og var að klippa myndir úr blöðum- Ein myndin datt út um gluggann. Hún sveif um stuncl í loftinu. Svo féll hún niður á gangstéttina. Báðai' systui'nar voru nú komnar út í gluggann og horfðu á litlu mynd- ina. Þá kom kona fyrir hornið. Hún ók barnavagni á undan sér. Hún beygði sig niður eftir mynd- inni og rétti barninu. Svo hélt konan áfram með vagninn og hvarf. Frh. —-——■— Ráðningar á gátum og þrautum. 5. hefti, bls. 71. 4 9 2 3 5 7 8 16 Svar (við dæmi á sömu síðu) : 18 mílur.

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.