Unga Ísland - 01.08.1935, Page 14

Unga Ísland - 01.08.1935, Page 14
130 UNGA ISLAND Surgið í hreyflunum var loað eina, sem rauf kyrðina. Nú voru átta stundir frá því, að lagt var af stað og áttu þeir því að vera komnir norður á heimskautið, eftir sex hundruð mílna flug. En norðaustan vindurinn hafði hrakið þá af leið. Bensínforðinn var nærri hálfnaður. Það var því nauðsynlegt að lenda, svo unt væri að finna út, hvar þeir væru staddir. Á augnablikinu virtist það því vera alveg dásamlegt að þeir komu einmitt auga á fyrstu vökina, er þeim virtist nógu stór fyr- ir sjóflugvél að lenda á. Klukkan eitt að morgni hins 22. maí byrjaði vél Amundsens að lækka flugið, með hringflugi, til þess að lenda. Vél Ellsworth kom á eftir. En eft- ir því, sem þeir lækkuðu flugið meira, leist þeim ver á lendinguna. Sprung- an var þakin rekís. Jakarnir voru í öllum hugsanlegum stellingum. Sum- ir risu upp á rönd, og ráku trjón- urnar hver í annan með braki og brestum. Þannig blasti hinn fyrirhug- aði lendingarstaður við flugmönnun- um. Það var ekki útlit fyrir að unnt væri að komast hjá árekstri. Þannig fór líka fyrir Ellsworth. Hann lenti á grunnu lóni, og um leið og vélin stöðvaðist, fundu þeir félagar að kominn var leki að henni. Vélinni var lent við stóran ísjaka. En er þeir félagar eru að ganga frá henni, rekur selur upp nefið við hlið flugvélarinnar. Þetta var einasta lífs- markið, sem þeir félagar urðu varir á allri ísauðninni. En hvar var nú Amundsen? Þeim kom fyrst til hugar, þegar þeir sáu hann ekki, að hann hefði haldið áfram. „Slíkt væri Amundsen líkt“, sagði Dietrichson. En það var nú ekki, því að litlu síðar sáu þeir hvar hann flaug í þriggja mílna hæð. Hávaðinn frá vélinni bergmálaði í íshólunum umhverfis. Þetta gat nú ekki orðið nein afbragðs lending, en líklega samt betri en hjá Ellsworth. Enda reyndist svo, því vél hans var í mjög slæmu ástandi, þegar farið var að athuga hana: belgurinn var mikið rifinn og hreyfillinn hálf eyði- lagður. I fáum orðum sagt; vélin var eitt flak. Áhöfnin reyndi að bjarga vél Ells- worth, enda þótt það virtist ætla að verða árangurslaust. Fimm dögum eftir að þeir höfðu flutt allt úr vél- inni, lögðu þeir sig alla fram til þess að halda henni á floti, þótt þann veg liti út, sem það myndi ekki heppnast. Þeir höfðu naumast ráðrúm til þess að senda félögum sínum skeyti um hvernig ástatt væri fyrir þeim, því grimmefldar íshrannirnar héldu hópunum aðskildum. Auk þessa var Dietrichson yfirkominn af snjóblindu. En þegar útlitið var sem verst, fór hjól hamingjunnar að snúast þeim í hag. Vélarnar rak hvora að annari, svo að nú var aðeins hálf ensk míla á milli þeirra. Amundsen sendi þeim loftskeyti þess efnis, að hann hefði nú komið vél sinni í sæmilegt lag og þeir Ellsworth skyldu yfirgefa sína vél og koma til sín. Úr því sem kom- ið var, var þetta einasti möguleikinn og tóku þeir Ellsworth því þennan kost. Þeir urðu að klöngrast yfir ís- hrannirnar með hálffrosnum vökum á milli, En á þessii ferðalagi var Om-

x

Unga Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.