Unga Ísland - 01.12.1954, Blaðsíða 7
SPENNANDI JÓLASAGA
EFTIR TORBEN SCHEUTZ
Finnur litli ætlaði bara að gera Erl-
ingi frænda bylt við, og hann grunaði
ekki, hvaða hættur lágu í leyni fyrir
honum, þegar dinima tók á aðfanga-
daginn.
AÐ VAR þorláksmessukvöld. Litla
systir hafði þegar verið' lögð í rúmið,
« og Finnur var í þanff veginn að fara að
hátta, þegar hann rak upp fagnaðaróp, því
hann hafði heyrt rödd Erlings „frænda“
niðri í forstofunni. Hann hljóp eins og ör-
skot niður stigann og varð ekki fyrir von-
brigðum, því eins og venjulega var Erling-
ur frændi með súkkulaði handa honum.
Erlingur frændi var ekki frændi hans í
raun og veru, en góðvinur pabba hans,
enda voru þeir báðir sjóliðsforingjar, og
Erlingur bjó í einbýlishúsi nokkru utar
með firðinum. Finnur hafði yndi af að
hlusta á hann og pabba, þegar þeir rifjuðu
upp ýmsa atburði frá sjóferðum sínum, en
í kvöld. töluðu þeir alls ekki um neitt
skemmtilegt, svo að Finni var farið að
leiðast í sæti sínu og óskaði næstum að
mamma skipaði honum að fara í rúmið.
„Og þetta er maður, sem við höfum
nauðþekkt í tólf ár,“ sagði pabbi alvarlegur
á svip. „Ég skil þetta ekki ennþá.“
„Mér hefur nú aldrei geðjast að honum,“
UNGA ÍSLAND
8