Unga Ísland - 01.12.1954, Blaðsíða 21
Loftskraut úr pappír
Loftskraut (lengjur) úr pappír geta allir
útbúið fyrir jólin.
Athugið 1. mynd héma til dæmis. Þar er
hring og ferhyrning smeygt hvorum innan
í annan. Þeir eru tvöfaldir og fastir
saman við jaðarinn X. Brjótið pappírinn (t.
d. 5x10 sm. að stærð) saman í miðju. Brjót-
ið hann svo aftur saman á hinn veginn og
teiknið á hann hálfan ferhyrning og hálfan
hring (sjá 2. mynd).
Gætið þess að klippa ekki mjög nærri
horninu, sem merkt er með X. — Notið
tvo eða fleiri liti, en æfið ykkur fyrst vel
á óvönduðum pappír.
Einnig má búa til loftskraut á þennan
hátt: Klippið mjóar pappírsræmur (15 sm.
langar) og límið endana saman, en smeyg-
ið þeim í gegnum næsta hring á undan áður
en límt er.
Skrýtla.
Pétur litli er úti að ganga með móður
sinni. Allt í einu kemur útlenzkur sjóliði á
móti þeim. Pétur getur ekki orða bundist
og segir: „Mamma, er þessi ekki alltof
fullorðinn til að ganga í matrósafötum? “
Klipptar myndir
Pappírsmyndir af krökkum sem haldast
í hendur, er gaman að klippa út úr lituðum
pappír og líma lengjurnar saman í hring.
Pappírsrenningnr er brotinn saman
eins og mynd B sýnir, með alla fleti jafn-
breiða. Myndin er svo teiknuð á fremsta
flötinn (sjá mynd A) og allar myndirnar
klipptar út eftir henni.
„Jólasveinar einn og átta,/
Úr kreppappír má búa til litla og
skemmtilega jólasveina, til skrauts á jóla-
tréð eða jólaborðið.
Á myndunum 1—3 sést greinilega, hvem-
ig farið er að því. Andlitið er teiknað sér-
staklega og það límt á sinn stað. Skeggið
má búa til úr baðmull eða ull. Strúthúfu
gerið þið eins og sýnt er á bls. 14. Og
hendur, háls, mitti og fætur er einfaldast
að gera með því að binda með tvinna utan
um pappírinn (sjá nánar 3. mynd).
UNGA ÍSLAND
17