Unga Ísland - 01.12.1954, Blaðsíða 15
„Heyrðu! “ sagði „Svarti örn“. „Hvað
heldurðu að Alice segi við þessu?“
Þegar mamma og Alice komu heim, var
það heldur en ekki skömmustulegur Skinn-
sokkur, sem varð að játa sekt sína, og Alice
var óhuggandi yfir missi bangsa síns, sem
aldrei framar gat gætt hennar, meðan hún
svaf. Tage leið reglulegar sálarkvalir næstu
daga. Hann hafði séð nýjan bangsa í búðar-
glugga, en hann var óskaplega dýr, — svo
dýr, að ef hann átti að kaupa hann fyrir
sparipeningana sína, myndi hann ekki eiga
neitt afgangs fyrir öðrum jólagjöfum.
Hann átti lengi í stríði við sig, þangað til
hann tók allt úr sparibyssunni og keypti
bangsann handa Alice. ... Og hann, sem
hafði hlakkað svo til að kaupa jólagjafir
handa þeim öllum!
„Pabbi,“ sagði hann kvöld nokkurt rétt
fyrir jól, þegar hann kom að bjóða góða
nótt, „mér þykir það leiðinlegt, og ég veit
líka að ykkur þykir það leiðinlegt, en ég
get engar jólagjafir gefið ykkur rnömrnu."
Það komu svolitlar viprur um munninn,
og hann þurrkaði burt tár með lófanum.
Pabbi þrýsti honum að sér.
„Jú, þú gefur okkur jólagjöf, drengurinn
minn, við fáum þá gjöf að sjá þig bæta
fyrir brot þitt. ... Ég veit vel, að þú gerðir
það ekki af ásettu ráði, heldur í leik; en
þú ollir Alice mikilli sorg. Nú hefurðu glatt
hana á ný — og við mamma þín gleðjumst
yfir því að sjá, að þú hefur getað gert það,
þó að það hafi kostað þig talsverða fórnar-
lund — og ég veit líka, að þú finnur með
sjálfum þér, að þú hefur gert rétt. ... Það
er sem sé fyrst og fremst í því smáa, sem
mikilsvert er að gera það rétta, — þá gerir
maður það líka í því stóra.“
SKRÝTLA.
Móðirin: „Skammastu þín ekki, Siggi!
Hvað sagðist ég ætla að gera við þig, ef ég
sæi þig fara í sultukrukkuna aftur?“
Siggi: „Það er gott að þú hefur gleymt
því, mamma. Ég man það ekki heldur.“
Föt á Stínu
Stínu litlu hefur borizt mikið af all» konar
fötum.
Á jólunum ætlar hún að vera í íslenzkum bún-
ingi.
Allt skraut er gullsaumað, húfa, borðar, belti
3g skór. Hún fær fagurt hálsmen og armbandsúr.
Kristín K. Þorgeirsdóttir, Ytra-Núpi, Vopna-
firði (13 ára) sendi Stínu þessa myndarlegu
jólagjöf.
UNGA ISLAND
11