Unga Ísland - 01.12.1954, Side 16
FYRSTI DAGURINN,
ÞEGAR SKÓLABÖRNIN
SÓTTU
SPARIFJÁRBÆKUR
SfNAR.
Þessi mynd er tekin í afgreiðslu-
sal Landsbankans í Reykjavík
fyrsta daginn, sem sparifjárbæk-
urnar með 10 króna innstæðunni
voru afhentar skólabörnunum.
Eins og sagt hefur verið frá hér
áður áttu öll skólabörn landsins
að fá slíka innstæðubók. — Mikið
líf og f jör var í bankanum þennan
dag, þegar 850 börn sóttu bæk-
urnar sínar. Þá voru oft margar
hendur á lofti!
VERÐLAUNAGETRAUN
Meðal hinna f jölmörgu vina Unga íslands
eru margir kaupsýslumenn og athafna-
menn þjóðarinnar. Nokkrir þeirra senda í
þessu hefti jóla- og nýárskveðjur til les-
endanna.
Nú biður Unga ísland ykkur um að svara
tveimur eftirfarandi spurningum:
1. Hvað heldur þú að það séu margar
heillaóskir í þessu hefti frá fyrirtækjum í
Reykjavík?
2. Hvað margar frá fyrirtækjum í
Hafnarfirði?
Þrenn verðlaun verða veitt. Fyrstu verð-
laun eru 50 krónur, önnur verðlaun 25
krónur og þriðju verðlaun 15 krónur.
Ef mörg rétt svör berast, verður dregið
um verðlaunin. Svörin þurfa að hafa bor-
izt fyrir 25. janúar og mega vera í sama
umslagi og lausn krossgátunnar.
Lausn á síðustu krossgátu.
Þessi börn hlutu verðlaun fyrir rétta
lausn á síðustu krossgátu:
1. Rúnar Á. Pétursson (12 ára), Hellu-
vaði, Rang.
2. Ólöf Bárðardóttir, Berjaneskoti,
Rang.
3. Halldór Kr. Jóhannesson (11 ára),
Lönguhlíð, Svarfaðardal.
Lausnin er þessi:
Lárétt: 1. sá, 3. ári, 5. lá, 7. allan, 10. frú,
12. dá, 14. gnýr, 16. glatt, 17, asi, 18. að.
Lóðrétt: 1. sál, 2. ár, 4. ill, 6. álf, 7. alda,
8. arg, 9. núna, 11. friða, 13. át, 15. ýsa,
16. gá.
SKRÝTLA.
í kennslustund.
Kennarinn: „Óli, hvað ertu að lesa?“
Óli: „Það veit ég ekki.‘
Kennarinn: „Nú, það er skrýtið, þú varst
að lesa upphátt."
Óli: „Já. en ég hlustaði ekki á það.“
12
SJNGA ISLAND