Unga Ísland - 01.12.1954, Qupperneq 32
Gleðileg jól. Farsælt nýár!
VERZLUNIN ÞVERÁ
Bergþórugötu 23
Gleðileg jól. Farsælt nýár!
VERZLUNIN CHIC
Vesturgötu 2
Gleðileg jól. Farsælt nýár!
VERZLUNIN MÆLIFELL
Austurstræti 4
Gleðileg jól. Farsælt nýár!
OLÍUSAMLAG REYKJAVÍKUR
Hafnarhvoli
Gleðileg jól. Farsælt nýár!
VERZLUNIN GRUND
Klapparstíg 31
Gleðileg jól. Farsælt nýár!
Verzlun Sóley Þorsteinsdóttir,
Beint á móti Austurbæjarbíó.
Gleðileg jól. Farsælt nýár!
Verzl. Málning og járnvörur,
Laugavegi 23
Gleðileg jól. Farsælt nýár!
VERZLUNIN TÍZKAN,
Laugavegi 17
Gleðileg jól. Farsælt nýár!
HEILDVERZL. BERG,
Lækjafgötu 6A
Gleðileg jól. Farsælt nýár!
STÓRHOLTSBÚÐ,
Stórholti 16
ÞEGAR MYRKRIÐ FÆRÐIST YFIR
FramhaUl af bls. 6.
„Ég sá sjaldgæfan fugl niðri í flæðar-
máli í dag, fugl, sem þú hefur aldrei séð
áður.“
Finnur hló glaðlega. Nú kannaðist hann
aftur við Erling frænda. Nú var hann ekki
lengur reiður. ...
Þeir fetuðu sig áfram í snjónum eftir
götuslóðanum niður að sjónum. Húsin á
þessari leið voru sumarbústaðir og stóðu
dimmir og mannlausir með svartar, gljá-
andi gluggarúður. Erlingur frændi hélt fast
um hönd Finns og tók svo löng skref, að
drengurinn varð að hlaupa til þess að fylgj-
ast með honum. Það var orðið alveg dimmt,
og Finnur hefði ekki þorað að vera einn
þarna, en hann var alveg rólegur, fyrst
Erlingur frændi var með honum, — jafnvel
þótt hann gengi svona hratt og segði ekk-
ert.
Þeir .voru kömnir alveg niður að ísi lögð-
um firðinum, og þar stanzaði Erlingur
flændi.
„Það var hérna, sem ég sá fuglinn,“
sagði hann undarlega hásum rómi.
„Ég vil helzt fara heim,“ sagði Finnur
bænarrómi og varð alvarlega óttasleginn,
þegar Erlingur frændi greip allt í einu
fast um hálsinn á honum. Hann hafði tekið
af sér hanzkana — og hendur hans voru
ískaldar.
Finnur sleit sig lausan og tók til fót-
anna, en Erlingur frændi hrópaði heiftar-
lega á eftir honum:
„Komdu hingað!“
Finnur fékk aftur undarlegt hugboð um,
að eitthvað hræðilegt vofði yfir, og ■ hann
herti á sér, þegar hann sá hið föla og tekna
andlit frændans.
Nú var Erlingur frændi alveg að ná hon-
um og greip í frakkann hans, en Finnur
gat losað sig og hljóp út á ísinn, því ef
hann færi upp brekkuna, myndi hann hafa
litlar líkur til að sleppa.
Hann heyrði þungt fótatak fyrir aftan
sig, en svo datt Erlingur frændi, og þá
28
UNGA ISLAND