Verktækni - 01.01.1985, Qupperneq 3

Verktækni - 01.01.1985, Qupperneq 3
Heildin eða brotin Fyrir nokkru síðan fjallaði ég um bókina ,, The Systems Appro- ach” í þessu blaði. Eins og þá, sem lásu þann pistil, ef til vill rek- ur minni til, þá boðar hún „kerfishyggju” þ. e. að líta skuli á hvert viðfangsefni út frá heildarsýn og að tekið sé tillit til allra þeirra meginatriða sem máli skipta hverju sinni, án tillits til þess hver þessi atriði eru. Með því sé komið í veg fyrir hættulega einsýni þröngra sérfræðivið- horfa. Víðsýn nálgun er sú aðferð sem á við hverju sinni. Flestir þeir sem fást við þýðingarmikil við- fangsefni gera sér fulla grein fyrir því að ekki tjáir að koma þeim fyrir í básum einstakra sérfræði- greina, sem oft hafa verið af- markaðar á tilviljanakenndan hátt í rás tímans. Þeir þœttir sem eru afgerandi fyrir árangur til- heyra oftast mörgum þekkingar- sviðum en ekki fáum. Vilji menn ná árangri verða þeir að beina Jón Krlendsson sjónum sínum að öllum þeim þáttum sem árangri skila. Þetta sé tekið fram yfir það léttvæga. Allt þetta hljómar eins og upp- talning á augljósum hlutum sem allir gera sér grein fyrir og fara cftir. Augljósar eru þessar stað- fcyndir á hinn bóginn mcð sama hætti og lausn Kolumbusar á því hvernig á að láta egg standa upp á endann. Einfaldleiki lausnar- innar er lítil trygging þess að menn komi auga á hana. Bókin sem fjallað mun um að þessu sinni tekur fyrir þróun kerfissýnarinnar („Systems view”) á mörgum mismunandi sviðum. í henni er einkum lögð áhersla á það með hverjum hætti vísindi og tækni á vesturlöndum eru komin á hálfgerðar ógöngur vegna þeirra aðferða sem í upp- hafi þróunarferils þeirra gáfust vel (þ. e. analýsu eða greiningar), sundurskiptingar (fragment- ation), afmörkunar (eduktion- ism), og raktar eru til eins af feðrum nútímavísinda þ. e. Réne Descartes. Aðferðir Descartes hafa leitt til gífurlegs árangurs við að skilja einstaka og afmark- aða þætti tilverunnar. Á hinn bóginn gefast þessar aðferðir illa um leið og komið er að því að athuga tilveruna sjálfa frá þeim sjónarhólum sem einhverja veru- lega þýðingu hafa (t. d. við efna- hagsmál lækningar o. s. fl.). Öll kerfi (systems) eru samsett af fjölda eininga (components). Samverkun (interaction) þessara eininga felur í sér ferli sem ekki er unnt að skynja með því að athuga einstaka einingar. Og þessar staðreyndir fela einmitt í sér einn þann megin ágalla, sem víða kemur í ljós þegar beita á þröngum og afmörkuðum vís- indaniðurstöðum á raunveruleg vandamál. Þekkingin nær of skammt. Þetta jafnvel þótt mikið hafi verið í það lagt að afla henn- ar. En þetta er ekki allt. Að eygja hið fjölþætta cðli flestra við- fangsefna er ekki nema eitt lítið skref í átt að úrlausn sem tekur mið af fjölbreytileika þeirra. Því fer fjarri að mönnum sé það almennt lagið eða tamt að sjá viðfangsefni sín frá mörgum sjónarhólum og að vera lausir við verulega slagsíðu í nálgunum sín- um vegna eigin l'ræða. En jafnvel þótt menn nái því stigi að geta skynjað tilveruna gegnum sjón- gler fjölbreyttra viðhorfa þá er því sjaldnast að heilsa að þeir geti hagnýtt sér þessa sýn við sjálfa úrlausnina. Meginástæðan fyrir þessu er THE TURNINGr POINT SCIENCE, SOCIETY ANDTHE msiNG cur;ruRE %$_ FHITJOKl’APHA 'UMWGO Aiithorof THE T.VOOF ÞHYSK'S CONTENTS author’s note xi ACKNOWLEDGMENTS xiii PREFACE xvii I. CrisisanoTransformation l .Thc T urning of thc Tidc 1 II. TheTwoParaoigms 2.Thc Ncwtonian VX’orld-Machinc 37 3.ThcNewPhysics 63 III. TheInfi.uenceofCartesian-NewtonianThought 4 Thc Mcchanistic Vicw of Lifc 93 5.The Biomcdical Modcl 118 6.Ncwtonian Psychology 166 7.Thc Impassc of Economics 194 8 Thc Dark Sidc of Growth 248 IV. TheNewVisionofReauty 9.The Systcms Vicw of Liíe 285 lO.Wholcncssand Hcalth 333 11 Journcys Bcyond Spacc and Time 396 12 .Thc Passagc to thc Solar Age 431 NOTES 467 BIBLIOGRAPHY 482 INDEX 495 einföld. Vilji menn vanda lausmr sínar með þeim hætti, og hafa þær sem víðsýnastar, þá kostar það meiri tíma og atorku en menn hafa ráð á eða geta með auðveldum hætti skapað. Niður- staðan verður því oft su að þegar menn gera sér grein fyrir því hve flókin og umfangsmikil mörg mál eru þá fallast þeim hendur og viðleitni þeirra leitar oft beint í hinn þröngsýna farveg sérhæfing- arinnar og hefðanna. Þetta í stað þess að reyna að taka tillit til alla mikilvægra sjónarmiða jafnvel þótt ekki sé unnt að gera það nema með fremur ófullkomnum hætti í mörgum tilvikum. Lausnir sem grundvallast á heildarsýn eiga því oftast heldur er.fitt uppdráttar. Enginn vafi leíkur á því að það væri til mikils i gagns ef fleiri menn gerðu sér fulla grein fyrir þessum stað- reyndum. Oft má sjá að eftir að einhverrar nýrrar þekkingar hef- ur verið aflað þá er henni beitt af ótrúlega mikilli tiltrú og furðu lít- illi gagnrýni. Þetta gerist þótt oft megi auðveldlega sjá við einfalda skoðun á þeim viðfangsefnum sem á að leysa að þau fela í sér þýðingarmikla þætti sem þekk- ingin tekur ekki til og algerlega hefur verið sleppt að athuga. Þetta er ekki sagt til að kasta rýrð á þá þekkingarmola sem menn safna með ærinni fyrirhöfn á löngum tíma heldur til þess að sýna að oft gera menn sér ekki grein fyrir því að fremur má líta á þekkinguna sem örfáa drætti í rniklu stærri mynd. Menn rugla saman þessum dráttum og mynd- inni sjálfri. Þeir halda að myndin sé full- sköpuð þegar aðeins örfáir drættir hafa verið dregnir. Jón Erlendsson THE TURNING POINT Sclence Society and the rising Culture Höfundur: FRITJOF CAPRA Útgefandi: Fontana paperbacks 8 Grafton Street London W1X 3LA Bókin hefur fengist i bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar ' VERKTÆKNI «3

x

Verktækni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/900

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.