Verktækni - 01.01.1985, Side 11
EININGAHUS -
FRAMLEIÐSLU -
EFTIRLIT
Meistaraábyrgð — byggingar-
eftirlit
Samkvæmt Byggingarreglu-
gerð (maí 1979) er það hlutverk
byggingarnefnda og byggingar-
fulltrúa að sjá til þess að upp-
drættir og hönnun nýbygginga sé
í samræmi við reglugerðir, og að
byggt sé samkvæmt samþykktum
uppdráttum, lögum og reglum.
Ábyrgð á byggingarfram-
kvæmdum hafa iðnmeistarar,
hver á sínu sviði, og fjalla greinar
4.2 og 4.3 i áðurnefndri reglugerð
um skyldur þeirra:
4.2
Áður en framkvæmdir hefjast,
skulu hlutaðeigandi meistarar
rita á samþykktan uppdrátt, eða
á þar til gerð eyðublöð, að þeir
taki að sér umsjón með fram-
kvæmdum. Með þeirri áritun
tekur meistari á sig þá ábyrgð, að
framkvæmdir verði í samræmi
við samþykkta uppdrætti, veitt
leyfi, lög og reglur, sem til greina
kunna að koma.
4.3
Ef meistari hættir umsjón með
framkvæmdum áður en verki er
lokið, skal það tilkynnt til bygg-
ingarfulltrúa. Skal þá fara fram
úttekt á þeim hluta byggingar,
sem lokið er, og má ekki halda
áfram framkvæmdum, fyrr en
annar meistari hefur áritað upp-
drætti og tekið við framkvæmd-
um. Fráfarandi meistari er þó
ábyrgur fyrir þeim hluta verks-
ins, sem hann hafði umsjón með.
Jafnframt er í reglugerð (gr.
4.11) ákvæði þess efnis að (undir-
strikun mín),,... byggingameist-
ari skuli með minnst sólarhrings
fyrirvara tilkynna byggingarfull-
trúa um úttektir á eftirfarandi
^yggingarstigum:
1 • Jarðvegsgrunni, áður en
byrjað er á mótauppslætti
eða fyllingu á slíkan grunn.
2- Undirstöðuveggjum.
3- Lögnum í grunni, þ. m. t.
rör fyrir rafmagnsheimtaug
áður en hulið er yfir.
4. Raka- og vindvarnarlögum.
5. Grunni, áður en botnplata
er steypt.
6. Járnalögnum.
7. Grind, bitum og þaki áður
en klætt er.
8. Frágangi á ystu klæðningu
þaka, bæði úr timbri og
öðrum efnum.
9. Frágangi á ystu klæðningu
veggja.
10. Hita- og hljóðeinangrun.
11. Vatns-, frárennslis-, hita-
lögnum og einangrun þeirra.
12. Tækjum og búnaði loft-
ræsti- og hitunarkerfa og
stokklögnum fyrir slíkan
búnað.
13. Frágang allan þ. á m. varð-
andi brunavarnir, sbr. 1.1.7
í brunamálareglugerð, þegar
hús er fullbúið.
í næstu grein á eftir stendur:
„Óheimilt er að halda áfram
framkvæmdum eða hylja lagn-
ir án samþykkis byggingarfull-
trúa . . .”
Af reglugerðinni virðist
augljóst að byggingarfulltrúa er
ætlað að hafa eftirlit með hönn-
un og byggingarframkvæmdum,
en jafnframt að framleiðslueftir-
lit sé innt af hendi af öðrum.
Þannig megi byggingarfulltrúi
(og raunar hönnuðir líka) treysta
því að stál, timbur og samsett
efni svosem límtrébitar og járna-
mottur, svo eitthvað sé talið,
uppfylli einhverjar fyrirfram
ákveðnar gæðakröfur.
í Byggingarreglugerð (gr.
7.2.2) er sagt fyrir um hvernig
slíku gæðaeftirliti skuli háttað:
Byggnigarefnasölum er skylt
að láta gæðaprófa efni, tæki
og byggingarhluta, sem þeir
bjóða til sölu, eða leggja fram
vottorð um slíka prófun.
Gæðaprófanir skulu gerðar
hjá Rannsóknastofnun bygg-
ingariðnaðarins (Rb), viður-
kenndum stofnunum á
Norðurlöndum eða öðrum
prófunarstofnunum sem Rb.
viðurkennir.
Efni, tæki og byggingarhlut-
ar sem hlotið hafa a. m. k.
tveggja ára reynslu hér á landi,
falla ekki undir þessi ákvæði. .
Erlendis eru víða mjög strang-
ar kröfur um gæðaeftirlit, og má
yfirleitt treysta því að vörur sem
hingað eru fluttar séu háðar
gæðaeftirliti í framleiðsluland-
inu.
Hlutur innlendrar framleiðslu
fer nú stöðugt vaxandi í vöru-
framboðinu, en gæðaeftirliti er
lítið sinnt. Má raunar segja að ein-
göngu sements- og steypufram-
leiðsla sé undir stöðugu eftirliti.
Á seinni árum hefur aukning i
einum þætti framleiðslu á bygg-
ingarsviði einkum verið áber-
andi, en það er i gerð eininga-
húsa. í töflu er sýndur fjöldi
framleiddra einingarhúsa á
síðustu árum. Þess má geta að
heildarframleiðsla íbúðarhúsa-
bygginga á þessum sömu árum
hefur legið á bilinu 1600—2100
íbúðir, þannig að hlutur einingar-
húsa í heildarframleiðslu íbúðar-
húsnæðis er á bilinu 8—13%.
Siðustu þrjú árin er hlutfallið um
og yfir 13%.
Framleidd einingarhús á Islandi
á ári1
Ár Steyptar einingar Timbur einingar Alls
1974 124 55 179
1975 103 75 178
1976 78 78 156
1977 99 98 197
1978 75 138 213
1979 64 164 228
1980 66 186 252
1981 119 194 313
1982 59 172 231
1983 52 175 227
1984 88 298 3862
1) Upplýsingar framlciðenda.
2) Áætlun í nóvember 1984.
Einingahúsaframleiðsla á árun-
um 1945—1970 náði stundum
nokkrum tugum húsa á ári, en var
oftar lítil sem engin.
Framkvæmdir við einingahús
hafa verulega sérstöðu ef miðað
er við hefðbundnar byggingarað-
ferðir, og verður hér aftar fjallað
nánar um verkþætti slíkra fram-
kvæmda. Ekki er þó hægt að
sleppa alveg að nefna vandamál
sem tengist meistaraábyrgð á ein-
ingahúsum. Greinar þær úr
Byggingarreglugerð sem vitnað
var til í byrjun geta um ábyrgð
iðnmeistara. Áður en fram-
kvæmdir hefjast við grunn húsa,
og þá einnig einingahúsa, skal
liggja fyrir ábyrgðaryfirlýsing
meistara sem síðan sér um frá-
gang á grunni. Ef um einingahús
er að ræða þá sér framleiðandi
hússins, eða menn sem hann vísar
á, iðulega um að reisa húsið. Ef
meistaraskipti eru ekki tilkynnt
Björn Marteinsson.
byggingarfulltrúa, þá hlýtur sá
meistari sem byrjaði verkið að
bera ábyrgð á því til loka. Meist-
arar eru nú margir farnir að átta
sig á þessu, og taka því aðeins
ábyrgð (með yfirlýsingu) á þeim
hluta verksins sem þeir stjórna.
Ef byggingarfulltrúi tryggir ekki
að aðili sem sér um uppsetningu
hússins útvegi meistara að verk-
inu, þá er stór hluti verksins í
raun án meistaraábyrgðar. Væri í
því sambandi forvitnilegt að vita
hvar ábyrgð á hugsanlegum mis-
tökum við uppsetningu hússins
liggur.
Framleiðsla einingahúsa er oft
rökstudd með því að þannig
vinnist a. m. k. tvennt:
Minni kostnaður vegna auk-
innar hagræðingar, styttri
byggingartima og hagkvæmari
efniskaupa.
Meiri gæði, þar sem fram-
leiðsla fer að hluta fram við
betri aðstæður heldur en bjóð-
ast á hefðbundnum byggingar-
stað.
Það er vissulega rétt að fram-
leiðsla einingahúsa gefur kost á
jafnari og meiri gæðum heldur en
hefðbundnari aðferðir. Þessir
möguleikar eru þó langt í frá full-
nýttir og framleiðslan ekki alltaf
jafn góð og ætla mætti. Munu
ástæður þessa ræddar nánar.
Framleiðslueftirlit/
Innflutningseftirlit
Framleiðslueftirlit með ein-
VERKTÆKNI *11