Verktækni - 01.08.1990, Side 5
Notandi ^
►(^Aðrir fjarskiptarniðia^<
^Notandi
Notandi
C. \ K h
Utburðurskeyta ö<---►l\
Notandi
MHS = (e. Message Handlíng Syslem)
skeytaflutningskerfi
MTS = (e. Message Transfer Serviee)
skeytaflutningsþjónusta
enda við skeytaþjónustuna eða skeyta-
geymslu fara um notendamiðla. Hlut-
verk þeirra er að aðstoða notendur við
frágang á skeytum til sendingar og að
taka við skeytum og veitir jafnframt
aðgang að þeim þjónustum sem kerfið
býður upp á. Sniðið notandi - notanda-
miðill er ekki staðlað, en samskiptin
milli tveggja notendamiðla fara eftir
svo nefndum P2 samskiptareglum og
milli notendamiðla og flutningsmiðla
eru notaðar P3+ samskiptareglur.
Skeytageymsla (MS). Skeytageymsla
er nýjung í staðlinum og gegnir sama
hlutverki og geymsluhólf í tölvupóst-
hólfakerfum fyrir send og móttekin
skeyti. Milli notendamiðils og skeyta-
geymslu eru notuð samskiptaregla,
sem nefnd er P7.
Tengieiningar (AU). Staðallinn gerir
ráð fyrir sérstökum tengieiningum (e.
AU: Access Units) til samskipta við
önnur fjarskiptakerfi, t.d telexnetið.
Utburður skeyta (PDS). Önnur ný
þjónusta í staðlinum er útprentun og
útburður skeyta (e. Physical Delivery
Service)
Saman mynda þær einingar sem tald-
ar voru upp skeytaflutningskerfi.
Hvers konar notendur?
Notendur almennra skeytaflutnings-
kerfa má í aðalatriðum greina í tvo
hópa. Annars vegar eru þeir, sem
tengjast notendamiðlum almenna kerf-
isins og hins vegar einkaskeytakerfi
og notendur þess. I fyrri hópnum eru
lítil og meðalstór fyrirtæki, en í þeim
seinni stór fyrirtæki með eigið tölvu-
kerfi og útstöðvar hjá einstökum starfs-
mönnum. Samskipti milli almenns- og
einkakerfis fara fram milli flutnings-
miðlanna. Notendamiðill getur hvort
sem er verið hjá notandanum eða í
skeytaskiptinum, en búin hafa verið til
forrit, sem gera unnt að keyra notenda-
miðla á einkatölvum.
Fjartengdir notendamiðlar veita meiri
sveigjanleika í notkun skeytakerfa.
Hvernig tengjast
notendur?
X.400 skeytakerfi byggja á öðrum fjar-
skiptaþjónustum fyrir flutning skeyta
og samskipli við notendur. Notendur
tengjast skeytakerfinu um almenna
símakerfið eða um X.25 gagnanetið.
Aðgangur um gagnanetið er annað
hvort með upphringi- eða fasttengdum
samböndum. Auk ]ress geta telexnot-
endur sent áskrifendum í skeytakerf-
inu telex.
Lokaorö
Verulegar vonir eru bundnar við X.400
skeytakerfi og allt bendir til þess að
þau eigi eftir öðlast miklar vinsældir
enda hefur staðallinn náð þeim stöðug-
leika, sem nauðsynlegur er til að
almenn notkun hans geti hafist. Til
marks um það er, að flestir stærri tölvu
og hugbúnaðarframleiðendur, sem hafa
lýst yfir stuðningi við OSl, hafa margir
hverjir sett X.400 kerfi á markaðinn.
Það er því ekki ólíklegt að notkun
X.400 staðalsins aukist verulega á
næstu árum. Þessi staðall er ekki ein-
göngu ætlaður fyrir skeytaflutnings-
þjónustu eins lýst hefur verið, heldur
einnig sem grunnstaðall fyrir tölvu-
samskipti, sem nota geymsluskilatækni
í flutningi á gögnum. Fyrir utan þær
þjónustur sem gert er ráð fyrir núna í
X.400 getur X.400 t.d. orðið grunn-
staðall fyrir flutning á gögnum í skjala-
lausum viðskiptum og má í því sam-
bandi nefna EDl staðalinn.
Tæknifræðingar!
Aætlaö er að afmælisrit vegna 30 ára afmælis
félagsins komi út í nóvember. Leitað verður
til félagsmanna um styrktarlínur og auglýs-
ingar og eru þeir beðnir um að taka slíku vel.
5