Verktækni - 01.08.1990, Síða 7
að kalla á Þrívíddarskip-
anir.
Hönnun og smíö
meö Prívídd
Skipta má Þrívídd í þrjá
hluta; teiknihluta, elem-
entgreiningarhluta og
framleiðsluhluta.
Teiknihluti.
Hönnunarkerfi á borð
við AUTOCAD, sem
einungis innihalda hefð-
bundnar teiknikerfa-
skipanir, er ekki hægt að
nota til að teikna mjög
flókna hluti á borð við
skip, flugvélar og, vel að
merkja, rennur. Slíkt
kallar á sérhæfðari kerfi
á borð við Þrívídd.
Þegar teikna skal hlut í
kerfinu er byrjað á að
teikna upp þau þversnið
sem hluturinn saman-
stendur af. Þá er teiknað
upp langsnið hlutarins
(kjölurinn ef verið er að
teikna skip) og þversnið-
unum er síðan raðað upp
á langsniðið. Loks er
brúað á milli þversnið-
anna. Á mynd 2 eru sýnd
þau þversnið og lang-
sniðið sem notuð voru í
fyrstu fisktalningarrenn-
una sem hönnuð var í
Þrívídd. Þegar búið er að
teikna rennuna er unnt
Vaki hf.
Saga Vaka hf.
Vaki hf. á rætur sínar að rekja til ársins
1985 þegar sala á laxaseiðum frá íslandi til
Noregs stóð sem hæst. Það voru nemendur
við rafmagnsverkfræðiskor HI sem gerðu
sér grein fyrir því að þörf var á nákvæmum
talningarbúnaði til að teljaseiðin. Hugmynd
að tæknilegri lausn leit dagsins ljós meðal
nemendarina og á grundvelli hennar var
ákveðið að stofna fyrirtæki.
Það var síðan á miðju árinu 1988 sem
framleiðsla og sala á Bioscanner fiskiteljar-
anum hófst. Nú hafa selst nærri 200 tæki
til 15 landa í fjórum heimsálfum, en um
95% af framleiðslu Vaka er lil útflutnings.
Fyrirtækið er nú í vexti, en horfur eru á því
að veltan á árinu 1990 verði helmingi meiri
en árið áður, eða um 60 m.kr. Hjá Vaka
endurbæta hönnun og framleiðslu á fisk-
talningarrennu fyrir stóran fisk - Rennu 3.
Helstu ástæður þess að Renna 3 varð fyrir
valinu er að hún er flókin, í smíði, stór og
of þung. Á hverju ári eru seldar um 150
rennur af þessari tegund og því skiptir
miklu máli að rennurnar séu sem ódýrastar
í framleiðslu.
Á undanförnum árurn hafa verið þróaðar
nokkrar rennur, fyrir fiska allt frá 3 g upp í
6 kg, hjá Vaka hf. Helsta vandamálið hefur
verið að færa frumgerðir yfir í mót og einnig
að útfæra óskir um breytingar á frumgerðum.
Hin flókna lögun rennunnar, veldur því að
mjög dýrt er að handvinna mót af henni.
Með þetta allt að leiðarljósi kom upp sú
hugmynd innan fyrirtækisins að leita til
Háskóla Islands um samstarf við endur-
bætur á hönnun og framleiðslu rennunnar.
Höfðu menn þá fyrst og fremst CAD/CAM
tæknina í huga.
Verkefnisvinnan
í lok árs 1989 var haft samband við dr.
Magnús Þór Jónsson dósent við vélaverk-
fræðiskor H.I. og tekin ákvörðun um sam-
starf. I aprfl mánuði varð það síðan Ijóst að
það yrði Helgi Hjálmarsson vélaverkfræði-
nemi sem ynni verkefnið.
Verkefnisvinnan hófst á því að með til-
raunum á rennunni var gerð s.k. virkni-
greining (e. Function Analysis) og á grund-
velli hennar voru unnar upp hugmyndir um
breytingar á hönnun. Helgi tók virkan þátt
í þessu starfi. Þegar þessar meginlínur lágu
fyrir hóf Helgi að skrifa sérhæft hönnunar-
kerfi sem unnt væri að nota almennt við
rennuhönnun. Loks notaði hann kerfið til
að hanna rennuna, hann smíðaði mót af
henni og tók þátt í tilraunum.
Árangur af verkefnisvinnunni
Kröfur Vaka til þessa verkefnis hafa verið
uppfylltar varðandi hönnun á rennunni fyrir
stóran fisk. Rennan er nú orðin helmingi
styttri, aðeins um 30% af fyrri þyngd og
framleiðslukostnaðurog flutningskostnaður
er helmingi minni.
Samstarf við H.l. hefur átt þátt í þessu og
eftir situr hönnunarkerfi sem verður áfram
notað við hönnun og framleiðslu á rennum.
Vegna góðrar reynslu hefur Vaki hug á
frekari samstarfi af svipuðum toga.
Þeir aðilar sem veitt hafa aðstoð við þetta
verkefni eru auk ofangreindra; Upplýsinga-
þjónusta Háskóla íslands, Iðntæknistofnun,
Trefjar hf., Laxalind og íslandslax.
Þorsteinn 1. Víglundsson
þróunarstjóri
Starfsfólk Vaka hf. Frá vinstri: Hrönn
Friðriksdóttir, Hólmgeir Guðmundsson,
Þorsteinn I. Víglundsson, Guðbergur
Rúnarsson og Hermann Kristjánsson.
starla nú 5 manns að þróun, hönnun, fram-
leiðslustýringu og markaðssetningu, en sjálf
framleiðslan er í höndum undirverktaka.
Vöruþróun hjá Vaka hf.
Mikilvægt er fyrir fyrirtæki eins og Vaka
sem er í harðri samkeppni við erlend fyrir-
tæki, að stunda markvissa vöruþróun. Þelta
er bæði þróun á nýjum vörum, aðlögun að
nýjum mörkuðum og jafnframt þróun á
nýjum aðferðum við framleiðslu til að bæta
gæði vörunnar og minnka kostnað. í Ijósi
þessa ákvað Vaki að leita allra leiða til að
7